Page 1 of 2

Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 22:47
by saemi
Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís rassaþurkur, hommar, mellu, kuntur osfrvs.

Er ég sá eini sem finnst að fólk eigi ekki að nota svona orð þegar verið er að skrifa hér á spjallinu?

Ég nenni ekki að vera að röfla yfir þessu og láta þetta fara í pirrurnar á mér ef það er ekki stór meirihluti fólks hér sem er sömu skoðunar og ég.

Ég er bara orðinn nett pirraður á því hvað það er mikið af svona skrifum hér inni og öllum virðist vera sama. Þetta er að setja spjallið skörinni neðar að mínu mati, mér finnst þessi orðanotkun ekki hæfa stað þar sem þroskaðir einstaklingar tjá sig.

A.m.k. finnst mér ég vera sá eini sem er eitthvað að setja út á þessa orðanotkun.

Hvað segir spjallið um þetta?

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 22:51
by bimmer
Er sammála þér með þetta - finnst að Krafturinn eigi að halda smá standard.

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 22:54
by arnibjorn
Ég er sammála þér Sæmi.

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 22:55
by gstuning
+1

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:00
by Lindemann
Mér finnst að menn eigi aðeins að vanda mál sitt hérna inná spjallinu, en þetta þarf samt ekkert að vera eins og spjallsíða hjá Krossinum eða eitthvað......
ég get ekkert sett útá það þó það slæðist einstaka "helvítis" inná milli í einhverjum innleggjum svo lengi sem þau innihalda eitthvað málefnalegt, ég er sennilega ekkert saklaus af þessu sjálfur, en menn verða að gæta hófs í þessu eins og öðru.

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:03
by SteiniDJ
Ég er að mestu leyti sammála þér Sæmi. Stór hluti kraftsmanna er kominn á vissan aldur (eða þroskastig, ef menn vilja kalla það það :) ) þar sem þeir nenna ekki að lesa blót frá yngri kynslóðum. En hinsvegar verð ég að fá að segja eitt. Það blóta allir, en þó hver á sinn hátt og ekki allir jafn gróft, en þeir blóta þó. Mér finnst að stjórn klúbbsins ætti ekki að vera of hörð á þessu. Þeir blóta sem vilja. En það er lágmarks kurteisi að halda því innan siðferðislegra marka, því það er fátt leiðinlegra en að lesa 'rant' frá einhverjum sem inniheldur fimmtán blótsyrði og tvær samtengingar.

Þeir sem geta ekki hamið sig í skrifum sínum fá bara á sig þann stimpil að þeir eru ekki marktækir og óáhugaverðir. En að sjálfsögðu ræður stjórnin hvað hún gerir í þessum málum. Hvað varð annars um *kjáni* filterinn?

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:05
by Alpina
:|

senda bara viðkomandi tiltal,,

ég sem aðrir :biggrin:

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:10
by doddi1
Lindemann wrote:Mér finnst að menn eigi aðeins að vanda mál sitt hérna inná spjallinu, en þetta þarf samt ekkert að vera eins og spjallsíða hjá Krossinum eða eitthvað......
ég get ekkert sett útá það þó það slæðist einstaka "helvítis" inná milli í einhverjum innleggjum svo lengi sem þau innihalda eitthvað málefnalegt, ég er sennilega ekkert saklaus af þessu sjálfur, en menn verða að gæta hófs í þessu eins og öðru.

sammála þessu... það er skiljanlegt að menn brjálist aðeins þegar það er búið að stela eins og einni innréttingu úr bílnum hjá manni og slæðist eitthvað bölv í skriftirnar, en ef menn fara að venja sig á að blóta í hverri setningu þá þarf að gefa viðvörun og bann ef viðkomandi heldur áfram.

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:17
by saemi
doddi1 wrote:

:?: :?: :?:

Er stundum í lagi að skrifa svona og stundum ekki???

Það gengur ekki upp í mínum huga.

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:18
by SteiniDJ
Það vantar eiginlega annan kost í könnunina, einhverja millileið.

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:23
by doddi1
saemi wrote:
doddi1 wrote:
Lindemann wrote:Mér finnst að menn eigi aðeins að vanda mál sitt hérna inná spjallinu, en þetta þarf samt ekkert að vera eins og spjallsíða hjá Krossinum eða eitthvað......
ég get ekkert sett útá það þó það slæðist einstaka "helvítis" inná milli í einhverjum innleggjum svo lengi sem þau innihalda eitthvað málefnalegt, ég er sennilega ekkert saklaus af þessu sjálfur, en menn verða að gæta hófs í þessu eins og öðru.

sammála þessu... það er skiljanlegt að menn brjálist aðeins þegar það er búið að stela eins og einni innréttingu úr bílnum hjá manni og slæðist eitthvað bölv í skriftirnar, en ef menn fara að venja sig á að blóta í hverri setningu þá þarf að gefa viðvörun og bann ef viðkomandi heldur áfram.

:?: :?: :?:

Er stundum í lagi að skrifa svona og stundum ekki???

Það gengur ekki upp í mínum huga.

það gengur upp í mínum huga :lol: :lol:

agree to disagree

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:27
by Schulii
SteiniDJ wrote:Það vantar eiginlega annan kost í könnunina, einhverja millileið.

Já sammála því.. ég reyndar merkti við já en sá svo fyrsta póstinn hans Sæma og var nú kannski ekki beint að meina þannig orðbragð.. heldur líklega milliveg eins og Steini er að ýja að hér.

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:31
by HK RACING
Sæmi þú mátt breyta fyrirsögninni hjá mér í "Reiður sköllóttur partasali leitar að innréttingu sem var fjarlægð úr BMW e36 Coupe dökkgráum í Hafnarfirði" :lol:

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:42
by saemi
Alpina wrote::|

senda bara viðkomandi tiltal,,

ég sem aðrir :biggrin:

Já ég nenni ekki að senda hverjum einasta punkt... :?

Re: Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís...

PostPosted: Sun 12. Jul 2009 23:43
by saemi
HK RACING wrote:Sæmi þú mátt breyta fyrirsögninni hjá mér í "Reiður sköllóttur partasali leitar að innréttingu sem var fjarlægð úr BMW e36 Coupe dökkgráum í Hafnarfirði" :lol:

Sorrý, ég er ekki þessi sköllótta týpa sem er í því að breyta öllum fyrirsögnum á kraftinum :P

Það er eiginlega betra að hver hreinsi upp eftir sjálfan sig.