Page 1 of 2
HELVÍTIS SNJÓRINN

Posted:
Tue 30. Dec 2003 14:13
by BMW 323I
jæja ég lenti í því helvíti í gær að festa mig svo það þurfti að draga mig úr skaflinum en þá kom það vesen að það var ekkert á helvítis bílnum sem við gátum fest spottan í Þannig að það eina massífa sem við fundum var víst balanserstönginn, svo var ég dreginn og bíllin í fokki eftir það stöngin hefur ábyggilega bognað eða eitthvað, þannig að þegar ég er að keyra á einhverjum hraða þá byrjar bíllin að hristast og láta hundleiðinlega svo finst mér stýrið líka vera eitthvað klikkað, þannig að ég er svo að spá hvort þið vitringarnir hérna gætuð sagt mér að ef stönginn hefur bognað eða eitthvað hvað skuli þá gera????


Posted:
Tue 30. Dec 2003 14:27
by Logi
Fara á verkstæði og láta ath þetta. Kæmi mér ekki á óvart að þú þyrftir að skipta um stöngina og svo náttúrulega hjólastilla.....

Posted:
Tue 30. Dec 2003 15:17
by BMW 323I
en helduru að það sé í lagi að keyra bílinn svona?? hvað helduru að það kosti að skipta um svona stöng???

Posted:
Tue 30. Dec 2003 15:29
by hlynurst
A arm and a leg!
Nei segi svona... en er ekki stykki í skottlokinu hjá þér sem þú getur skrúfað í bílinn að framan til að draga hann?

Posted:
Tue 30. Dec 2003 15:41
by fart
ef þetta er "late model" bmw þá er svona stykki í verkfærasettinu.
Re: HELVÍTIS SNJÓRINN

Posted:
Tue 30. Dec 2003 16:02
by saemi
BMW 323I wrote:jæja ég lenti í því helvíti í gær að festa mig svo það þurfti að draga mig úr skaflinum en þá kom það vesen að það var ekkert á helvítis bílnum sem við gátum fest spottan í Þannig að það eina massífa sem við fundum var víst balanserstönginn, svo var ég dreginn og bíllin í fokki eftir það stöngin hefur ábyggilega bognað eða eitthvað, þannig að þegar ég er að keyra á einhverjum hraða þá byrjar bíllin að hristast og láta hundleiðinlega svo finst mér stýrið líka vera eitthvað klikkað, þannig að ég er svo að spá hvort þið vitringarnir hérna gætuð sagt mér að ef stönginn hefur bognað eða eitthvað hvað skuli þá gera????

Binda i balansstongina...hmmmmm
Thad er ekkert skritid ad billinn se skritinn i akstri!

Posted:
Tue 30. Dec 2003 16:18
by Logi
Ég myndi ekki keyra hann svona nema bara til að fara beint á verkstæði.........

Posted:
Tue 30. Dec 2003 17:07
by BMW 323I
fart wrote:ef þetta er "late model" bmw þá er svona stykki í verkfærasettinu.
man eftir þessu stykki núna þegar ég fer að pæla í því

en í hvað skrúfa ég það???

Posted:
Tue 30. Dec 2003 18:54
by fart
plokkar úr lítið ferkantað stykki úr framstuðaranum, og skrúfar þetta í.

Posted:
Tue 30. Dec 2003 19:23
by iar
Ouch.. þetta hefur verið dýr dráttur!
Hér eru myndir af þessu á E46, þetta er svipað á öðrum. Litla lokið er hægt að taka af með skrúfjárni sem ætti líka að vera þarna í skottinu.
Hér er lokið merkt:
Aftan á bílnum er líka svipað lok.
Og hér sést lykkjan sem er skrúfuð í skrúfganginn á bak við lokið:
(hægt að smella á myndirnar til að stækka)

Posted:
Tue 30. Dec 2003 22:02
by fart
Innlegg: Þri 30. Des 2003 19:23 Efni innleggs:
--------------------------------------------------------------------------------
Ouch.. þetta hefur verið dýr dráttur!
Skemmtilega orðað...

Posted:
Tue 30. Dec 2003 22:22
by moog

híhí. En samt... leiðinlegt að lenda í þessu.
.

Posted:
Wed 31. Dec 2003 03:00
by Wolf
Það er náttulega líklegt að stöngin hafi bognað, en er ekki mögulegt að það sé bara klaki í felgunum, sem setur balanseringuna úr skorðum og veldur þessum titringi..?? Maður hefur nú alveg lent í svoleiðis eftir að hafa verið að djöflast í sköflum.

Posted:
Wed 31. Dec 2003 17:07
by Kristjan
ég keyrði nú Justy-inn minn gamla með lausa balancestöng í mánuð, fann eigilega engan mun á aksturseiginleikunum enda voru þeir gríðarlega takmarkaðir til að byrja með.

sko

Posted:
Wed 31. Dec 2003 17:45
by Tommi Camaro
ef þetta er E 36 þá ég ég þetta til ,
en ef bíllinn hrisist á ferðinni er þá ekki bara snjó í felgunum.