bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
DYNO testið .... https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=385 |
Page 1 of 2 |
Author: | Haffi [ Sun 01. Dec 2002 00:22 ] |
Post subject: | DYNO testið .... |
Hvernig fannst ykkur svo útkoman í testinu á bílunum ykkar? Eg persónulega var mjög ánægður með mína útkomu þ.e.a.s. Ekki nema 0.1% loss og bíllinn er alveg stock. Þarf núna að lána GSTuning veskið mitt og bæta nokkrum hrossum í stóðið ![]() |
Author: | Kull [ Sun 01. Dec 2002 00:42 ] |
Post subject: | |
Ég er alveg sáttur, 260 hestöfl út í hjól eða 290 í vél. Ekki langt frá upprunalegu 315 hestöflunum. Miðað við að bíllinn nálgast 12 ára aldurinn og er kominn yfir 150 þús km þá er þetta bara fínt. En það má alltaf gera betur og verður spennandi að sjá hvað tjúnið með tölvunum frá GSTuning gerir. Ég pantaði eitt stykki og fer síðan með hann aftur í test þegar við verðum búnir að tjúna hann til. |
Author: | Gunni [ Sun 01. Dec 2002 20:07 ] |
Post subject: | |
minn var að gefa 200 út í hjól og 230 í vél. ábyggilega alveg hægt að gera betur en ég er sáttur. hann virkar allavega mjög vel hjá mér ![]() |
Author: | M110 [ Sun 01. Dec 2002 21:16 ] |
Post subject: | |
Mælir BMW skráð hestöfl út í hjól eða úr vél? Eruð vissir um að þið hafið verið að taka allt úr bílnum; vera á réttum snúning og svona? Meina 260 hö úr M5?????? það getur ekki verið!! |
Author: | gstuning [ Sun 01. Dec 2002 21:27 ] |
Post subject: | |
Eftir að ég kom heim með 225hp í vélinni þá var ég nú ekkert of sáttur þannig að ég fór að troubleshoota, ég hélt áfram í átt að sandgerði og þar og var að gera nokkur run á hraða og mæla til að geta séð hvort að það væri einhver munur, ég náttúrulega þurfti að vera fyrir ofan 5000snúninga, og það gengur ekkert í 4rða eða 5ta, þannig að ég var í 3ja, en málið var að ég var alltaf 3,7-4,2 sek, úr 5000rpm í 7000rpm, þannig að ég raunverulega gat ekkert mælt með neinni nákvæmni, þannig að ég fór bara heim, Svo tók ég rafmagnið af bílnum til að resetta tölvuna, og þegar ég kom til baka þá var bíllinn með alveg 100% fullkominn lausagang, þannig að tölvan er öll búinn að stilla sig hingað og þangað til menga ekki, ég fór og prófaði aftur og það var sko miklu meira power til staðar, ég fann svo rosalega munn, svo eftir smá akstur þá byrjaði hann að ganga eins og fyrr og svo varð hann aftur kraftminni, ekki alveg eins og á dynoinu en augljóslega þó nokkuð, þetta segir mér að þegar ég fæ piggy-back tölvuna þá hagræði ég fyrst O2 skynjaranum til að ljúga að tölvunni til að segja henni að við séum ekki að menga til að fá góðan gang og aflið tilbaka, svo get ég farið að tjúna til að fá enn meira, Ég sá á mörgum sem voru búnir að tjúna aðeins eða með kubb og svona að þeir voru ekki að fá réttar tölur, eða allaveganna það sem þeir vildu, Nema 320i, Stefán, og rauði 325i bíllinn fengu réttar tölur, 735i bíllinn er með kubb og hann fékk stock tölur, Þetta segir okkur að nýrri bíllarnir geta dowtjúnað sig til að menga ekki, og þeir gera það, en e30 bílarnir geta ekki downtjúnað sig í raun heldur reyna þeir bara að hagræða lausagang, því að við WOT þá slekkur tölvan á O2 skynjara merkinu, þetta gerist ekki á nýju bílunum, og þess vegna er gott að geta lagað O2 merkið til að henta manni. þ.e til að fá aflið tilbaka, Ég er alveg að bilast ég get ekki beðið eftir SMT6 tölvunni minni |
Author: | Kull [ Mon 02. Dec 2002 01:48 ] |
Post subject: | |
BMW, eins og allir framleiðendur, mælir hestöfl í vél. Að mæla hestöfl í hjól er náttúrulega miklu meira vit því það eru raunveruleg hestöfl sem bíllinn er að skila í götuna. Síðan er mismunandi hversu mikið tap þú hefur í gegnum gírkassann og allt það, 15% er ekkert óvanalegt, sem myndi setja minn í 300 hestöfl í vél. Það er samt skrýtið að þessi mæling sýnir mest afl við 6550 rpm en það ætti að vera við 6900. Síðan er spurning um hversu nákvæmt dyno tækið er. Aðal kosturinn við að mæla svona er að þá sér maður hvort að breytingar sem maður gerir séu að skila sér eða ekki. |
Author: | Dr. E31 [ Mon 02. Dec 2002 03:53 ] |
Post subject: | |
Já, ég var ekki ánægður ![]() ![]() |
Author: | Gunni [ Thu 05. Dec 2002 19:24 ] |
Post subject: | |
Við ætluðum að smella útkomunni úr þessu Dyno testi inná síðuna. það klikkaði soldið oft að fá aðra útprentun úr vélinni þannig að ég þarf að biðja alla þá sem fóru í Dynoið, fyrir utan Stefán, Haffa og Sævar , að senda mér útkomuna fyrir sinn bíl annað hvort í PM eða ímeili. kraftakveðja, Gunni |
Author: | Svezel [ Thu 05. Dec 2002 19:46 ] |
Post subject: | |
Verst að hann gat ekki mælt hann hjá mér útaf skiptingunni, langaði að fá solid tölur. Rak reyndar augun í eina mælingu hjá honum sem gaf 118kW en ég veit ekkert hvort það er bara eitthvað bull. |
Author: | gstuning [ Thu 05. Dec 2002 20:22 ] |
Post subject: | |
M110:> Bílarnir hjá þeim sem voru ekki að virka eins og þeir áttu eru annað hvort eitthvað bilaðir, eða tölvan í þeim er búinn að stilla sig uppá nýtt til að ekki menga, því að flestir þeirra eru með minnst OBD1 Kull prófaðu að taka rafmagnið af bílnum í 2mín, eða kannski aðeins lengur, þá resettar tölva sig og ætti að vera kraftmeiri, samt nokkuð erfitt að meta mun á 290 og 310-315hö, Ég veit að ég fann alveg rosalega mun |
Author: | Kull [ Thu 05. Dec 2002 21:50 ] |
Post subject: | |
Það er ekkert svo langt síðan rafmagnið var tekið af honum þannig að það gerir ekkert. Það var samt eitthvað undarlegt á seyði með hitastigið á vélinni, veit ekki hvort það var eitthvað klikk í mælinum eða hvað. Það virtist eins og hann kældi sig alltaf meira og meira þó það væri verið að þenja hann á fullu. Hef samt ekki séð það gerast aftur þó mælirinn fari ekki alveg upp að miðju, heldur sig aðeins vinstra megin við miðjuna. Kannski að vatnslásinn sé að gefa sig. Hvenær má ég búast við tölvunni minni annars? |
Author: | Haffi [ Thu 05. Dec 2002 22:47 ] |
Post subject: | |
gæti verið að kúplingin í viftunni sé að gefa sig.. |
Author: | Kull [ Thu 05. Dec 2002 22:54 ] |
Post subject: | |
Neibb, nýbúið að skipta um hana. |
Author: | gstuning [ Fri 06. Dec 2002 00:42 ] |
Post subject: | |
Ég fer að setja í bílinn minn og stefáns um helgina, svo kem ég til þín í næstu viku og smelli henni í og við skemmtum okkur á bílnum þínu að prufa stillingar ![]() Ef það er eitthvað að hita skynjaranum, loftflæðimælinum, TPS, súrefniskynjaranum þá sjáum við það þegar við setjum tölvuna í hann. |
Author: | Kull [ Fri 06. Dec 2002 00:54 ] |
Post subject: | |
Glæsilegt, verst að ég er kominn á 16" vetrardekkin ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |