Ráðleggingar vegna kaupa á 320d touring

Hér skal spjalla um BMW.

Ráðleggingar vegna kaupa á 320d touring

Postby joipalli » Thu 02. Jul 2009 21:08

Góðan daginn/kvöldið !

Fyrsti pósturinn minn í einhver ár, og er loks að spá í kaup á BMW touring !

Hef verið að velta fyrir mér kaupum einnahelst á 320d touring.
Budget hjá mér er staðgreiðsla upp á hámark 1.200 þús.ísl.kr.
Er það raunhæft fyrir árgerð 2001-2002 ekinn u.þ.b. 175-200 þús.km. ?

Mínar aðstæður:
Á góðabíla öllujafna lengi og keyri 35.000 km á ári.
Sinni viðhaldi að stórum hluta sjálfur.

Hvað er það sem þarf að varast í þessum bílum ? (mótor, túrbína, IC, o.s.fr.)
Er góð ending á þessum vélum ? (300+þús.km)
Eru aðrir dísel BMW touring möguleikar betri ? (520d,525d,330d,318d)

kv.
Jóhannes Páll
joipalli@gmail.com
joipalli
Kassabílstjóri
 
Posts: 214
Joined: Thu 10. Oct 2002 02:27
Location: Vesturbær

Re: Ráðleggingar vegna kaupa á 320d touring

Postby Einarsss » Thu 02. Jul 2009 21:09

ef það er búið að skipta um túrbínu þá ertu nokkuð solid bara
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Ráðleggingar vegna kaupa á 320d touring

Postby Andrynn » Thu 02. Jul 2009 21:14

og skipta um olíu á sjálfskiptingu ef hann er þannig búinn
Image BMW 540 E39 1999
Image Husaberg FE450 2004
Andrynn
Kassabílstjóri
 
Posts: 220
Joined: Sun 16. Apr 2006 13:03
Location: Mývatnssveit

Re: Ráðleggingar vegna kaupa á 320d touring

Postby joipalli » Thu 02. Jul 2009 21:20

Var einmitt að lesa nýlegan dísel þráð, þar sem hraunað var yfir viðhaldskostnaði.
Hversu mikið kostar helstu dýru varahlutirnir án vinnu, s.s. túrbína, converter í sjálfskiptingunni o.s.fr.

Vill helst ekki detta inn í reikning fyrir 500 þús kr.
joipalli
Kassabílstjóri
 
Posts: 214
Joined: Thu 10. Oct 2002 02:27
Location: Vesturbær

Re: Ráðleggingar vegna kaupa á 320d touring

Postby Gunnar Þór » Thu 02. Jul 2009 22:00

joipalli wrote:Var einmitt að lesa nýlegan dísel þráð, þar sem hraunað var yfir viðhaldskostnaði.
Hversu mikið kostar helstu dýru varahlutirnir án vinnu, s.s. túrbína, converter í sjálfskiptingunni o.s.fr.

Vill helst ekki detta inn í reikning fyrir 500 þús kr.


Blessaður passaðu þig á þessum handónýtu diesel vélum, miklu öruggara að fara í ///M deildina...
MY2002 E46 330d Touring - Mr.X remap
User avatar
Gunnar Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 205
Joined: Sat 12. Aug 2006 19:59
Location: Hafnarfjörður

Re: Ráðleggingar vegna kaupa á 320d touring

Postby 300+ » Thu 02. Jul 2009 22:25

Hef aðeins unnið við svona bíl sem félagi minn átti, var einhver truntugangur í honum og við skiptum um hráolíusíu sem ætti í flestum bílum að vera lítið mál en shiiii þetta var bara hræðilegt að eiga við þetta í þessum bíl, svo reyndist það ekki vera málið heldur þurftum við að taka EGR ventilinn úr og hreinsa hann, en hann stóð fastur hálf-opinn, þá lagaðist gangurinn en ég verð að segja fyrir mína parta að ég hef sjaldan unnið í jafn leiðinlegum bíl hvað varðar að komast að hlutunum.
300+
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 339
Joined: Tue 01. Apr 2008 14:00

Re: Ráðleggingar vegna kaupa á 320d touring

Postby Schulii » Fri 03. Jul 2009 00:27

Ég er búinn að eiga þrjá diesel BMW!! Algjörir snilldar bílar!! :thup: :thup:

Einhverjar voða sögur af viðhaldi í einum þræði já, ég hef líka séð voða sögur af viðhaldi á bensínbílum. Það er þrususkemmtileg vinnsla í þessu og 320d diesel touring er mjög skemmtilegur bíll þó svo að ég verði að segja að mér finnst 520d eins og ég á núna soldið meiri bíll.

Það eru engar ýkjur með hversu lítið þeir nota af diesel olíu! Minn 320d fór með 6,5l/100km innanbæjar en 520d er að fara með rúma 8l/100km!!
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests