Page 1 of 1

Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Fri 26. Jun 2009 23:27
by Budapestboy
Var að velta því fyrir mér hvort að svona lyklakaup gangi þar sem að lykill uppí b&l kostar 50 þúsund minnir mig... Er hægt að láta smíða eftir þessu hérna og láta b&l programma ??

http://cgi.ebay.com/ebaymotors/1997-199 ... ccessories

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Fri 26. Jun 2009 23:47
by Dóri-
Budapestboy wrote:Var að velta því fyrir mér hvort að svona lyklakaup gangi þar sem að lykill uppí b&l kostar 50 þúsund minnir mig... Er hægt að láta smíða eftir þessu hérna og láta b&l programma ??

http://cgi.ebay.com/ebaymotors/1997-199 ... ccessories



lykilinn verður að vera CE merktur, veit um einn sem lenti í veseni með audi lykla frá usa

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Sat 27. Jun 2009 00:26
by Budapestboy
Ok gott að vita af því en vitiði hvað kostar að programma lykilin í b&l?

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Sat 27. Jun 2009 03:39
by Dóri-
Budapestboy wrote:Ok gott að vita af því en vitiði hvað kostar að programma lykilin í b&l?


lyklarnir koma skornir og kóðaðir hjá bogl

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Sat 27. Jun 2009 07:49
by siggik1
veit nú ekki með bmw en vantaði 1 kylill að 300c srt8 hérna heima og átti að rukka 47 þús fyrir hann en fékk hann á ebay og heim kominn skorinn og kóðaður á 17 þús

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Sat 27. Jun 2009 10:46
by elli
Dóri- wrote:
Budapestboy wrote:Var að velta því fyrir mér hvort að svona lyklakaup gangi þar sem að lykill uppí b&l kostar 50 þúsund minnir mig... Er hægt að láta smíða eftir þessu hérna og láta b&l programma ??

http://cgi.ebay.com/ebaymotors/1997-199 ... ccessories



lykilinn verður að vera CE merktur, veit um einn sem lenti í veseni með audi lykla frá usa


Akkúrat!!

Farðu varlega í þetta. Þessi lykill er örugglega ekki CE merktur og þar af leiðandi stoppar tollurinn hann.
Ég flutti eitt sinn inn gamla E32/34 fjarstýringu og af sjálfsögðu var hún ekki með CE merki það var ekki einusinni búið að finna það upp þá.

Þannig að helvítins :twisted: tollurinn stoppaði hana með þeim rökum að segja að fjarstýringar sem senda frá sér útvarpsbylgjur VERÐI að bera CE merki eða fá blessun fjarskipta eftirlitsins.
Ég komst í einhvern verkfræðing hjá fjarskiptaeftirlitinu og átti í töluverðum bréfaskriftum við hann þangað til að við komumst að því að gömlu E32/34 fjarstýringarnar eru IR (Infra read) og þá var allt OK.
Fjarskitpa eftirlitið sagðist meira að segja vera í mikklum vandræðum með bílaumboðin og eftirlitið taldi sig vera nokkuð viss um að bílaumboðin flyttu inn ómerktar fjarstýringar.

Þannig að ekki kaupa þetta nema vera 100% viss um CE merkið

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Sat 27. Jun 2009 13:51
by Budapestboy
Já þetta er nú meira ruglið með þetta CE dót en ég hafði samband við gaur sem er að auglýsa á flóamarkaðnum undir nafninu lyklapétur ég hitti hann áðan og honum tókst að græja gamla lykilinn algjör snilld núna virka samlæsingarnar :) Sparaði mér 50 þúsund þar!

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Sun 28. Jun 2009 22:08
by Daníel
Má líka ekki gleyma að ameríkubílar eru með fjarstýringar á 315MHz meðan í evrópubílum eru þær á 434MHz, þannig að svona ebay fjarstýringar kæmu líklega ekki til með að virka á flesta bíla hér á landi.

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Sun 28. Jun 2009 22:22
by Alpina
KLyX wrote:Má líka ekki gleyma að ameríkubílar eru með fjarstýringar á 315MHz meðan í evrópubílum eru þær á 434MHz, þannig að svona ebay fjarstýringar kæmu líklega ekki til með að virka á flesta bíla hér á landi.



þetta voru flottar og gagnlegar upplýsingar :thup: :thup:

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Sun 28. Jun 2009 23:04
by Budapestboy
X2 :thup:

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Fri 24. Jul 2009 10:18
by Zed III
Hver er niðurstaðan með þetta ?

Ef manni vantar lykil er best að kaupa CE merktan evrópulykil á eBay eða ætti maður að selja nýrað úr sér og kaupa hann hjá umboðinu?

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Fri 24. Jul 2009 11:32
by elli
Zed III wrote:Hver er niðurstaðan með þetta ?

Ef manni vantar lykil er best að kaupa CE merktan evrópulykil á eBay eða ætti maður að selja nýrað úr sér og kaupa hann hjá umboðinu?

Jebb... veður að ver EU + CE lykill

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Fri 24. Jul 2009 13:00
by Zed III
þ.a. það er möguelgt að kaupa lykil og fá hann skorinn og endurforritaðan án þess að borga yfir 60k. Bara passa að hafa eu/ce merkingar í lagi.

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Fri 24. Jul 2009 21:10
by slapi
Ein pæling , hvernig veit framleiðandinn af þessum lykli númer hvað hann á að vera ?????
Ég hef skoðað svona lykil og þetta er svolítið jingwhansjæ bragur á þessu.
Ég mæli með að fólk kaupi OEM lykla.

Re: Hefur einhver reynslu af lyklakaupum á ebay

PostPosted: Sat 25. Jul 2009 07:02
by elli
Zed III wrote:þ.a. það er möguelgt að kaupa lykil og fá hann skorinn og endurforritaðan án þess að borga yfir 60k. Bara passa að hafa eu/ce merkingar í lagi.

Tja... ég er bara ekki viss. Er hægt að fá þessa rák skorna heima?
Ég hef bara ekki hugmynd um það :oops:

Ég keypti mér nýjan lykil á E32 sem ég átti 2006/2007 þá kostaði járnið 8000. Þá hafði ég verið nýbúinn að flytja inn fjarstýringuna í gegnum Ebay, sbr þessi saga sem ég fór í gegnum hér að ofan.