bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 22. May 2025 03:49

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 9 posts ] 
Author Message
PostPosted: Mon 22. Dec 2003 08:21 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Nú er maður farin að sjá nýju fimmuna nær daglega hér í umferðinni í Reykjavík. Ég verð bara að segja að e´g kemst varla yfir það hve vel þessi bíll er heppnaður.

Að mínu mati er þetta mögulega svalasta fimman frá upphafi, jafnvel fallegri en E34 sem var alltaf mitt uppáhaldsboddí í fimmunum.

Línurnar eru í þessu bíl eru ótrúlega nútímalegar og kraftalega, bíllinn laglegur og "compact" og hefur með sér þetta yfirbragð sem dýrir bílar hafa.

Það var líka skondið að það var nýlegur E Benz við hliðina á þessum bíl þegar ég ók í vinnuna í morgun og hann var bara eins og gömul Corolla í samanburði - svo gamaldags og afkáraleg var hönnunin, mest áberandi er að sjá hvernig Benz menn hafa klúðrað brettum og og "overhang" til samanburðar við nýju fimmuna.

Þetta hlýtur að vera nýji "besti bíllinn" í heimi.

Svo er merkilegt að myndir geta ekki sýnt þennan bíl eins fallegan og hann er séður með berum augum.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 22. Dec 2003 08:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Ef þú ert að tala um nýju E linuna er ég VERULEGA ósammála
Ég er alls ekki neitt MERCEDES fan en ber fulla virðingu fyrir fallegum glæsilegum bílum,,sama nafni hvað þeir heita
Nýi E Combi ((((station)) er að mínu mati flottasti ,,skutbíllinn,, á götum veraldar í dag,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,Myndirnar af E60 eru líka :shock: :shock: 8)

Sv.H


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 22. Dec 2003 08:36 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Mér finnst E línan koma ágætlega út á 18" felgum en þeir eru hálf undarlegir á minni fótabúnaði.

Ég er mikið hrifnari af eldri Benzunum heldur en þessum nýju.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 22. Dec 2003 11:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Er alveg sammála þér/ykkur varðandi E60, þetta eru svakalegir bílar, segi bara eins og bebecar sagði, "I'm in love" þetta eru svo magnaðir bílar. Keyrði einn svona á nagladekkjum um daginn og það lá við að ég færi útúr bílnum aftur til að athuga hvort hann væri ábyggilega á nöglum, það heyrðist nákvæmlega ekkert inní bíl og allt umhverfi ökumanns til fyrirmyndar og idrive kerfið gargandi snilld. :D Semsagt snilldarbíll frá a-ö. :D

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 22. Dec 2003 11:22 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Er einmitt sammála með hönnunina á E60. Það er alveg merkilegt hvað hver lína og hvert brot virðist vera mikið útpælt og í heildina alveg ótrúlega vel heppnaður bíll. Og það hvort sem litið er á hann sem algerlega standalone hönnun eða sem "afkomanda" E34 og E39.

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 22. Dec 2003 11:39 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Iar það er einmitt málið - hver lína og hvert brot útpælt OG stand alone hönnun! Þetta er fullkomið og dugar sennilega BMW næstu 10 árin í hönnun.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 22. Dec 2003 15:49 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Posts: 1690
Location: BIRK
Ég er alveg sammála. Þessi bíll er tær snilld og verður alltaf fallegri og fallegri í hvert skipti sem ég sé hann!!!!!!!

_________________
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 22. Dec 2003 18:07 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Hann er nefninlega svo miklu miklu flottari en þegar maður sá hann bara á myndum. Hlakka til að sjá M5 8)

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 22. Dec 2003 18:42 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Posts: 559
Location: Garðabær
Já ég er sammála að E60 er SVAKALEGA flottur og vel hannaður bíll...
'Eg held að það sé minn helsti draumur að eiga glænýjan 545i... sá bill er bara snilld...

_________________
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 9 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group