bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bensínverð á Íslandi https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=381 |
Page 1 of 1 |
Author: | iar [ Sat 30. Nov 2002 16:53 ] |
Post subject: | Bensínverð á Íslandi |
Sælir veriði. Ég hef skrifað græju sem sækir bensínverð á heimasíður Esso, Olís og Orkunnar og safnar þeim saman og setti upp vefsíðu sem sýnir þessar upplýsingar sundurliðað í nokkra flokka (Esso, Olís, Orkan, 95 oktan, 98 oktan, Dísel, Sjálfsafgreiðslustöðvar og svo auðvitað allt í einni súpu). Þetta ætti að vera tilvalið fyrir þá sem vilja aðeins fylgjast með bensínverðinu og spara kannski eitthvað í leiðinni. Nú eða þá bara fyrir þá sem vilja fylgjast með hinni "ógurlega miklu og æsispennandi samkeppni" í þessum bransa. ![]() Hér er síðan: Bensínverð á Íslandi Njótið vel! ![]() |
Author: | hlynurst [ Sat 30. Nov 2002 17:09 ] |
Post subject: | Snilld... |
Þetta er helvíti flott framtak hjá þér... verst að olíufélögin eru með sama verð þannig að línurnar hverfa hver bak við aðra! ![]() |
Author: | Gummi [ Sun 01. Dec 2002 01:06 ] |
Post subject: | |
úff það eru engar smá sveiflur í þessu. Mikilvægt að vera fljótur að kaupa þegar verðið er lágt. ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 02. Dec 2002 14:15 ] |
Post subject: | |
Viltu ekki bæta Skeljungi inn í þetta og ÓB og Express... Ég þarf aðeins að taka upp hanskann fyrir olíufélögin. Sú litla samkeppni í eldsneytisverði sem er, fer fram með afslætti í sjálfsafgreiðslu. Þar er reyndar talsverð samkeppni þar sem dæmu eru um allt að 10 krónur í afslátt... það er 800 kall í tankfyllingu á mínum bíl. Margir eru að bjóða 4-5 krónur þannig að það munar ansi mikið um það líka. Olífélögin kaupa eldsneyti af sama aðilanum (of litlir til að geta keypt sér) og flytja heim með sama skipinu. Bensín getur ekki annað en kostað það sama hjá þeim! |
Author: | bebecar [ Mon 02. Dec 2002 14:49 ] |
Post subject: | |
Afsláttur hjá Orkunni hefur verið mestur upp á síðkastið 6.90 krónur og hefur verið frá 5-10 krónur frá listaverði olíufélaganna. Hjá Shell er sjálfsafgreiðsluafsláttur á Select við Vesturlandsveg núna 4 krónur. Viðskiptavinir olíufélaganna fá afslátt ef þeir eru í þokkalegum viðskiptum, sá afsláttur er þó minni en sjálfsafgreiðslu afsláttur. Ég sjálfur er með Skeljungskort og nota það bæði hjá Shell en mest hjá Orkunni þar sem þar get ég tekið 98 okt og líka til að fá betra verð. Bensíns verð á 95 okt er núna 91.20 hjá Orkunni, ég held þeir séu alltaf lægstir - alveg sama hvað. |
Author: | saevar [ Mon 02. Dec 2002 15:13 ] |
Post subject: | |
Tók bensín á sunnudagin á esso í keflavík. Þá var einhver spes afsláttur ef ég dældi sjálfur 7kr. Það kom út á 89.6 kr. |
Author: | iar [ Mon 02. Dec 2002 15:35 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Viltu ekki bæta Skeljungi inn í þetta og ÓB og Express...
ÓB og Express eru þarna með en Skeljungur ekki. Það er einfaldlega vegna þess að bensínverðin eru ekki eins aðgengileg hjá þeim og hinum. ![]() Sjálfur hef ég helst fylgst með hver af Orkunni, Express og ÓB er ódýrastur. Orkan er það yfirleitt en alla síðustu viku var ÓB ódýrari og svo lækkaði Orkan niðurfyrir ÓB og svo lækkaði Express niður fyrir þá báða og nú sýnist mér Orkan og ÓB vera lægstir. Hver var eiginlega að segja að það væri ekki samkeppni þarna!!? ![]() |
Author: | bebecar [ Tue 03. Dec 2002 09:12 ] |
Post subject: | |
ESSO EXPRESS segir að lægsta verð hjá sér sé 92.30 sem er í takt við það sem verið hefur, alltaf tíu aurum dýrara en Orkan. |
Author: | bebecar [ Tue 03. Dec 2002 09:17 ] |
Post subject: | |
Staðreyndin er bara sú að það er "fákeppni" á bensínmarkaðinum hér heima, en það þýðir samt ekki að bensínverð sé óhagstæðara hér en annarsstaðar. Bensínverð hér heima hefur síðustu ár færst sífellt nær og nær verðinu í evrópu sem er talsvert afrek miðað við smæð markaðarins. Matvöruverð hefur hinsvegar eins og allir vita fjarlægst verðin erlendis. Ég vann á bensínstöð 1988 og man mjög vel þá að bensínlíterinn kostaði 50 kall á meðan mjólkin kostaði 25 kall líterinn. nú 14 árum síðar kostar líterinn af bensíni sirka 95 kall og líterinn af mjólk kostar 92 krónur. Mjólkin er innlend framleiðsla en að einhverju leiti háð sveiflum í fóðurverði - en hvað er í gangi hér??? |
Author: | iar [ Tue 03. Dec 2002 12:18 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Ég vann á bensínstöð 1988 og man mjög vel þá að bensínlíterinn kostaði 50 kall á meðan mjólkin kostaði 25 kall líterinn.
nú 14 árum síðar kostar líterinn af bensíni sirka 95 kall og líterinn af mjólk kostar 92 krónur. Mjólkin er innlend framleiðsla en að einhverju leiti háð sveiflum í fóðurverði - en hvað er í gangi hér??? Sammála þessu.. þetta er ansi merkilegt. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |