Sælir/Sælar,
Ég er í mastersnámi í Háskóla Íslands og er að vinna rannsóknarverkefni þar sem ég kanna kauphegðun bílaáhugamanna. Mig vantar ykkar hjálp við vinnslu verkefnisins og væri ég því mjög þakklátur ef þið gæfuð ykkur tíma til að svara könnuninni sem á aðeins að taka 5 mínútur.
Því fleiri sem svara könnuninni því betra og þakka ég öllum sem svara henni kærlega fyrir hjálpina. Fyrir neðan er linkur á könnunina:
http://cs.createsurvey.com/c/12/3112/survey/4192-n8kXB0.htmlUm könnuninaÞessi spurningalisti er hluti af verkefni í rannsóknum í markaðsfræði unnu af Jóhanni Sveini Sigurleifssyni, Jss á BMWKrafts spjallinu, sem hluti af meistaranámi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands.
Markmið rannsóknarinnar er að mæla hversu mikil áhrif niðursveiflan í þjóðfélaginu hefur haft á kauphegðun bílaáhugamanna. Þátttakendur eru valdir með það fyrir sjónum að þeir sem skoða heimasíðu BMWKrafts eru bílaáhugamenn, hvort sem þeir eiga BMW eða aðra bíla. Spurningalistinn er stuttur eða aðeins 18 spurningar og á því ekki að taka meira en ca. 5 mínútur að svara honum. Mikilvægt er fyrir mig að spurningalistanum sé svarað samviskusamlega þar sem hann er hluti af meistaranámi mínu. Vil ég þakka ykkur kærlega fyrir hjálpina. Svör verða ekki rakin til þáttakenda.
_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR