Page 1 of 2

www.bmwkraftur.com límmiðar

PostPosted: Wed 04. Sep 2002 23:40
by Gunni
Sælir félagar. ég var að velta fyrir mér að tjékka á því hvað kostar að gera svona netta límmiða til að setja neðst í aftari hliðarrúður sem á stendur www.bmwkraftur.com . þetta yrði ansi fyrirferðarlítið og nett, svipað og límmiðarnir sem www.dtmpower.net eru með. ég veit náttlega ekkert hvað þetta mundi kosta á haus, en það væri varla meira en 1000-1500kall. hverjir hefðu áhuga á svona miða ??

PostPosted: Wed 04. Sep 2002 23:44
by Gunni
hérna er ein mynd, sést frekar illa, en þið náið punktinum. tjékkiði á aftari hliðarrúðunni. Image

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 08:58
by bebecar
Rosalega er ljótur spoiler á bílnum á myndinni (bara mitt álit).... En límmiða hugmyndin hljómar ágætlega, ég er samt ekki viss um að ég myndi setja hann í bílinn þar sem ég er á móti óþarfa prjáli þar, t.d. er ég ekki með neina lyklakyppu :idea:

Ég gæti hinsvegar hugsað mér að setja hann í rúðuna í vinnuna eða á básinn minn :lol:

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 09:50
by Gunni
jamm spoilerinn er ansi ósmekklegur, því er ég sammála. ég tók bara ekki eftir honum fyrst þar sem myndin er svo dökk hjá mér.

en ein spurning, er lyklakippa eitthvað prjál ? er það ekki til að halda lyklunum saman ? en þessir límmiðar yrðu ansi nettir þannig að þetta væri ekkert eins og bleiku L2C límmiðarnir sem taka hálfa afturrúðuna :lol: en það er líka s.s. ekkert verra að hafa svona fínan límmiða í rúðunni í vinnunni!

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 10:20
by bebecar
Lyklakyppur eru jú til að halda lyklunum saman....

Ég er svo skrítinn. Ég er bara með lykilinn stakann og ekkert hangandi á honum, með því móti dinglar hann ekki eða slæst í. Svona er ég búin að hafa þetta mjög lengi.

Mazda bíllyklar eru samt slæmir því þeir eru svo litlir! Auðvelt að týna þeim.

Ef maður kemst hinsvegar yfir dinglfría lykklakyppu þá er það besta mál.

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 11:34
by Djofullinn
Ég væri alveg til í að setja límmiða á minn, þá fáum við örugglega fleiri menn í klúbbinn og það er ekkert nema gott mál :D

Sammála, ljótur spoiler 8) (vonandi móðgar maður engann)

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 12:22
by iar
bebecar wrote:Rosalega er ljótur spoiler á bílnum á myndinni (bara mitt álit).... En límmiða hugmyndin hljómar ágætlega, ég er samt ekki viss um að ég myndi setja hann í bílinn þar sem ég er á móti óþarfa prjáli þar, t.d. er ég ekki með neina lyklakyppu :idea:

Ég gæti hinsvegar hugsað mér að setja hann í rúðuna í vinnuna eða á básinn minn :lol:


Alveg hjartanlega sammála með spoilerinn! :shock:

Og reyndar límmiða í rúðuna líka. Smurstöðvarlímmiðinn er eini límmiðinn hjá mér og pirrar mig stundum. En það er aldrei að vita nema maður myndi samt fá sér og koma einmitt fyrir einhversstaðar annarsstaðar, t.d. í vinnunni.

Áhugaverð "sérviska" með lyklakippuna en engu að síður mjög skiljanlegt.

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 12:29
by bebecar
iar, ert þú á 850 bílnum á smurstöðinni?

Það er ekki bara lyklakippan, ég vil heldur ekki hafa dót hangandi úr speglinum í bílnum hjá mér. Ég held ég sé voða basic :?

En hinsvegar er mér alveg saman hvernig aðrir hafa þetta, þó það nú væri. Þetta er bara eitthvað með truflun í bílnum, ég er t.d. yfirleitt með slökkt á útvarpinu ef ég er að keyra af einhverju viti.

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 12:47
by Flicker
Sniðug hugmynd með límmiðana... væri örugglega til í að skella í minn

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 14:21
by Gunni
jæja ég held ég sé að fara að fá fínan díl á þessa rúðumiða og einnig númeraplötumiða ef við viljum svoliðis. endilega látið mig vita í kvled ef þið viljið svona miða, prísinn fer audda eftir því hvursu margir vilja fá sér svona.

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 15:44
by bebecar
Eru númerplötumiðarnir ekki bannaðir?

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 16:56
by Kull
Þeir eru bannaðir. Það má aðeins vera límmiði með viðkomandi sveitarfélagi, en ég held að þessu sé nú ekkert framfylgt.

PostPosted: Thu 05. Sep 2002 19:21
by iar
bebecar wrote:iar, ert þú á 850 bílnum á smurstöðinni?


I wish :? Er á E46 318i.

Límmiðar.....

PostPosted: Wed 11. Sep 2002 09:58
by GauiJul
Sko... það fer enginn límmiði á minn burra sko en þetta kemur samt vel út á svona bíl eins og þínum Gunni en etta passar enganveigin á minn + það að ég hef alltaf sagt að það fer enginn límmiði á hann samt í lagi með númeraplöturnar sko má alveg vera miði þar :lol:

PostPosted: Wed 11. Sep 2002 15:52
by Gunni
urg.....þetta er lítill límmiði :) og fer ekki á bílinn heldur í hliðargluggann og ber lítið á honum. þetta er ekki eins og bleiku l2c bakglugga límmiðarnir!!! ég ætla allavega að setja svona í minn glugga.