Page 1 of 1
Heddpakkning í e46

Posted:
Sun 14. Jun 2009 18:05
by Dísin
Jæja nú er heddpakkningin farin í bílnum hjá mér...er með e46 328i 98 árg. Er einhver hérna sem hefur lent í því að þurfa að láta skipta um hana og getur mögulega sagt mér hver kostnaðurinn er á þessu svona c.a og hvar best er að láta gera þetta?
Re: Heddpakkning í e46

Posted:
Sun 14. Jun 2009 18:10
by ömmudriver
Er það alveg pottþétt að heddpakkningin er farin??
Re: Heddpakkning í e46

Posted:
Sun 14. Jun 2009 18:16
by Dísin
Já svona nokkuð pottþétt...heddið aða pakkning og það bara getur eginlega ekki verið heddið
Re: Heddpakkning í e46

Posted:
Sun 14. Jun 2009 18:23
by ömmudriver
Hver eru einkennin eða hvað er það sem að gefur það til kynna að pakkningin sé farin?
Re: Heddpakkning í e46

Posted:
Sun 14. Jun 2009 18:26
by Dísin
Var þjöppumældur og spýtir vatni inná einn stimpil
Re: Heddpakkning í e46

Posted:
Sun 14. Jun 2009 18:34
by slapi
Það hafa farið hedd í þessu þannig að það kemur sprunga inn í vatnsgöngin þannig að láttu byrja að láta taka heddið af og láta skoða það vel.
http://www.edalbilar.is bjallaðu á þá og sjáðu hvað þeir gefa sér í þetta.
Re: Heddpakkning í e46

Posted:
Sun 14. Jun 2009 18:37
by Alpina
Þarf einnig að skoða hvort hægt sé að sjóða í þetta eður ei
Bjarki og co meta þetta ,, eins og Davíð ((slapi)) benti á ,, ef þú ákveður að leggja leið þangað
Re: Heddpakkning í e46

Posted:
Sun 14. Jun 2009 18:39
by Dísin
Okay bjalla í þá á morgun...takk fyrir það

Re: Heddpakkning í e46

Posted:
Sun 14. Jun 2009 18:48
by slapi
Alpina wrote:Þarf einnig að skoða hvort hægt sé að sjóða í þetta eður ei
Bjarki og co meta þetta ,, eins og Davíð ((slapi)) benti á ,, ef þú ákveður að leggja leið þangað
Félagi minn lenti í þessu og þetta er inn í brunahólfinu og springur út í ventlasætin einhvernveginn minnir mig.
En það er nátturulega ekkert víst í þessu.
Heddið þarf af ef að þjappan er ekki eðlileg og kælivatn finnst í strokk.
Re: Heddpakkning í e46

Posted:
Sun 14. Jun 2009 18:57
by Alpina
Geri mér fulla grein fyrir að heddið þurfi að fara af..
veit ekkert hvort hægt sé að sjóða í þetta osfrv
Re: Heddpakkning í e46

Posted:
Sat 27. Jun 2009 13:20
by Tommi Camaro
200 til 500 þús
fer eftir því hvort þú ferð í nýtt hedd