Page 1 of 2

Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 21:35
by Maddi..
Sælir.
Vantar svona yfir helgina, skottlokið og toppurinn eru orðin smá bleik, ætla að byrja á að massa og sprauta húddið áður en ég fer út í það að heilsprauta bílinn, þar sem lakkið er annars hreint ekki svo slæmt.
Jafnvel til í að borga eitthvað klink.. þetta væri hugsanlega bara á morgun þá. Myndi reyna að sækja-nota-skila samdægurs.

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 23:11
by Zed III
taka þetta bara í höndunum, hefur gaman af því.

Ég á annars svona Byko vél og unit til að setja framan á borvél ef þú vilt fá lánað.

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 11:37
by Maddi..
Zed III wrote:taka þetta bara í höndunum, hefur gaman af því.

Ég á annars svona Byko vél og unit til að setja framan á borvél ef þú vilt fá lánað.

Gerði hálft skottlokið þannig, hafði verulega takmarkað gaman af því, hehe.
En það væri mega vel þegið ef þú værir til í að lána mér það í smá tíma, pm'aðu mig kannski með símanúmer sem ég get bjallað í þig í. :)

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Sun 14. Jun 2009 02:36
by Dannyp
Getur leigt svoleiðis hérna :)

Tækjaleigan Áhöld - Hafnarfirði

Áhalda og tækjaleiga hefur opnað að Hjallahrauni 4 í Hafnarfirði.

Aðkoma frá Helluhrauni.

Sími: 586-8400 og 843-3009.

Góð tæki, gott verð.

Opið:

Laugardaga: 9-12 og 16 - 18

Virkadaga: 7.30-9 & 16 - 18

Utan opnunartima má hafa samband í 843-3009.

Dæmi um tæki eru t.d. Vélagálgi, Vélastandur, massavél og margt fleira

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Thu 09. Jul 2009 18:31
by Astijons
lánað smánað...
er ekki til eitthvað svona ódyrt drasl ?? t.d. fræga og gæða merkið "einhell" sem maður getur bara keypt sér???????
þarf svona græju

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Thu 09. Jul 2009 19:56
by Master
Held að ég hafi séð svona græju í Europris.

apparatið var eins og veltikall í laginu, nema með stórum púða að neðan og með handföngum þar sem hendurnar á veltikarlinum ættu að vera.

Ætti að vera nothæft sem hobbygræja, eða hvað?

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Fri 10. Jul 2009 01:04
by SteiniDJ
Ég myndi ekki treysta hverju sem er á bílinn minn. Planið mitt var allta fað kaupa alvöru mössunarvél, en það er neðarlega á forgangslistanum.

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Sat 11. Jul 2009 22:56
by Astijons
ekki flottur bíll sem ég er að fara nota þetta á :D

hvað þarf rpm að vera til að massa?
er slípurokku of hraður?

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Mon 13. Jul 2009 09:01
by Axel Jóhann
Astijons wrote:ekki flottur bíll sem ég er að fara nota þetta á :D

hvað þarf rpm að vera til að massa?
er slípurokku of hraður?

Hraðastillanlegur slípirokkur sleppur og hafa hann á hægasta!

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Mon 13. Jul 2009 22:58
by Thrullerinn
Ég á svona loftpressu´mössunarvél sem kostaði lítið, hinsvegar
verslaði ég Meguiars mössunarvél um daginn. Var vel undir 30 þús,
þvílík gargandi snilld, málið er að hún snýr ekki bara púðanum, heldur
hendist í allar áttir í leiðinni :thup:

Búinn að prófa bát, bíl antík ísskáp og sturtugler !

Mæli hiklaust með henni !

(edit: ...og er með hraðastilli)

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Mon 13. Jul 2009 23:05
by Einsii
Thrullerinn wrote:Ég á svona loftpressu´mössunarvél sem kostaði lítið, hinsvegar
verslaði ég Meguiars mössunarvél um daginn. Var vel undir 30 þús,
þvílík gargandi snilld, málið er að hún snýr ekki bara púðanum, heldur
hendist í allar áttir í leiðinni :thup:

Búinn að prófa bát, bíl antík ísskáp og sturtugler !

Mæli hiklaust með henni !

(edit: ...og er með hraðastilli)

Hjámiðju slípari þá ?
Voru menn ekki að tala um einhvertíman að þetta virkað illa í að massa en flott í að bóna ??

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Mon 13. Jul 2009 23:30
by Thrullerinn
Einsii wrote:

Virkaði vel á það sem ég prófaði þetta á.. en ég er ekki reynslubolti í þessu :)

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Tue 14. Jul 2009 08:52
by Zed III
hvar keyptir þú Meguiars vélina? eBay ?

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Tue 14. Jul 2009 13:22
by Thrullerinn
Zed III wrote:hvar keyptir þú Meguiars vélina? eBay ?

Málningarvörum

Re: Getur einhver lánað mér mössunarvél?

PostPosted: Tue 14. Jul 2009 20:00
by kelirina
Meguiars hjámiðjuvélin (g220) er hægt að nota við að massa bíla en getur tekið langan tíma. Þetta er fín vél sem ég nota þegar við á. Vélin sem fæst í Europris og Byko er drasl.

Rotary vél sem gerð er fyrir mössun fer allt að 2700 rpm. Slípivélar fyrir byggingariðnaðinn eru allt of hraðar 12000rpm og á ekki að notast við að massa bíla. Rotary vélar valda mun meiri hitamyndun en hjámiðjuvélarnar og því er mun auðveldara að eyðileggja lakkið ef vankunnáttan er til staðar.

hraðinn sem ég mæli með er 900rpm *2 umferðir, 1200rpm *4 umferðir, 1700rpm *6 umferðir, 1200rpm *4 umferðir, 900rpm *2 umferðir, 500rpm *2 umferðir.

Gangi ykkur vel.

kv.
Ólafur Þór