Page 1 of 1

VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 11:41
by Þórður Helgason
VIP passar (armbönd) fyrir alla viðburði á Bíladögum 2009 eru seldir í OLÍS í Álfheimum, OLÍS í Fellabæ og Ellingsen á Akureyri og kosta kr. 4000.- Það jafngildir 20% afslætti á alla atburðina og að auki opnar VIP-passinn leið framhjá biðröðunum í miðasölunni, sem hafa því miður myndast hjá okkur undanfarin ár og opnar að auki aðgang að stúkusætum á BurnOutinu og aðgang að nýjum sérsmíðuðum áhorfendapöllum á Götuspyrnunni.
Þetta fyrirkomulag með passana hefur reynst mjög vel undanfarin ár.

ATH breytt röð frá fyrstu auglýsingum. Drift og Burn víxlast frá fyrstu áætlun.

17. júní Bílsýningin kr. 1.000.- á staðnum
18. júní Drift kr. 1.000.- á staðnum
19. júní BurnOut kr. 1.000.- á staðnum
20. júní OLÍS götuspyrnan kr. 1.000.- á staðnum
21. júní RallyCross kr. 1.000.- á staðnum

Með von um að sjá ykkur öll í sólinni.

Með kveðju
F.h. Bílaklúbbs Akureyrar

Þórður Helgason

http://www.ba.is

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 18:08
by SteiniDJ
Ég hélt að það væri frítt inná events. :lol: En þetta er flott, er nokkuð takmarkað magn af þessu?

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 18:38
by Ingsie
SteiniDJ wrote:Ég hélt að það væri frítt inná events. :lol: En þetta er flott, er nokkuð takmarkað magn af þessu?

Já það held ég, yfirleitt uppselt skillst mer :)

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Fri 12. Jun 2009 18:50
by SteiniDJ
Ingsie wrote:
SteiniDJ wrote:Ég hélt að það væri frítt inná events. :lol: En þetta er flott, er nokkuð takmarkað magn af þessu?

Já það held ég, yfirleitt uppselt skillst mer :)


Ah, veistu nokkuð hvort þetta sé komið á sölu?

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 09:42
by sosupabbi
Þetta er til í olís álfheimum veit ég..

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 19:15
by AriH
kaupir maður þessa vip miða og þarf samt að borga innná atburðina og fær 20% afsláttmeð vip passanum eða


eða kaupir maður vip passa og fær frítt inná keppnirnar?


hvort er rétt ? 1 eða2 ?

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 19:59
by birkire
AriH wrote:kaupir maður þessa vip miða og þarf samt að borga innná atburðina og fær 20% afsláttmeð vip passanum eða


eða kaupir maður vip passa og fær frítt inná keppnirnar?


hvort er rétt ? 1 eða2 ?

:D VIP Passi og þú borgar ekkert inná keppnirnar

5000kr inná allar keppnirnar án hans en VIP dótið á 4000kr, þar reiknast þessi 20% afsláttur

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Sat 13. Jun 2009 20:09
by AriH
heyrðu yndislegt og takk fyrir upplýsingarnar:D

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Sun 14. Jun 2009 11:38
by Þórður Helgason
Magnið er frekar takmarkað en samt slatti til.
Komið í OLÍS Álfheimum, Fellabæ og Akureyri.
Og Ellingsen Akureyri, við Spyrntryggvabrautina sjálfa.
ÞH

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Sun 14. Jun 2009 12:23
by Stefan325i
Hvernig er það þeir sem eru að taka þátt í atburðum þarna eins og t.d ég ætla að vera með í spyrnuni og driftkeppnini og borga þar mörg þúsund í keppnisgjöld, fær maður þá ekki frítt inn á aðra atburði??? ég er nefnilega svo nískur :roll:

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Sun 14. Jun 2009 13:09
by Danni
Stefan325i wrote:Hvernig er það þeir sem eru að taka þátt í atburðum þarna eins og t.d ég ætla að vera með í spyrnuni og driftkeppnini og borga þar mörg þúsund í keppnisgjöld, fær maður þá ekki frítt inn á aðra atburði??? ég er nefnilega svo nískur :roll:

Finnst það alveg réttlátt, þar sem án keppandanna væru engir áhorfendur að borga sig inná...

Re: VIP passar fyrir Bíladaga til sölu í OLÍS:

PostPosted: Mon 15. Jun 2009 09:51
by Þórður Helgason
Stefan325i wrote:Hvernig er það þeir sem eru að taka þátt í atburðum þarna eins og t.d ég ætla að vera með í spyrnuni og driftkeppnini og borga þar mörg þúsund í keppnisgjöld, fær maður þá ekki frítt inn á aðra atburði??? ég er nefnilega svo nískur :roll:



Það er nú ekki auglýst þannig, en við lítum vissulega á heildarmyndina ef menn eru með í mörgum keppnum.

Og við erum að jafnaði ekki erfiðir.

Muna bara eftir viðaukanum.....hann er alltaf skoðaður....

kv Þórður H