bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E34 ///M5 á íslandi
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=37840
Page 1 of 3

Author:  Aron Fridrik [ Sun 07. Jun 2009 21:24 ]
Post subject:  E34 ///M5 á íslandi

Ég er nörd og ákvað að reyna að gera lista eins og Stebbi gerði um E30.. ekki að það sé erfitt að gera það um E34 M5 þar sem ekki margir eru á íslandi..

Byrjum á 3.6 bílunum..

Þekktasti er sennilegast
MJ 877

Image

Image

Image

Image

Ingvar Örn (bebecar) átti þennan bíl og var þetta held ég fyrsti E34 m5 sem sást á kraftinum.. Logi hefur einnig átt hann.. eigandi á eftir Loga breytti honum.. gerði hann chromeline, seldi BBS RS (Aron Jarl á þær í dag), henti rondell58 undir og hvítum stefnuljósum..

lítur hann nokkurn veginn svona út.. (gamlar myndir frá því að Úlli átti hann)

Image

Apollo hérna á kraftinum á hann í dag :) nýjar myndir af honum
Image

NV-097
Þessi bíll er búinn að vera hérna frá 1999 held ég.. Hann var fluttur inn af Marteini sem flutti einnig inn 3.8 bílinn minn.. Raggi M5 átti hann um tíma og var duglegur við að pósta myndum af honum..

Bílinn tjónaðist fyrir 2 árum.. Er í eigu Þóris sem á einnig tvo aðra 3.8 bíla.. Hann ætlar að setja hann aftur á götuna..

Image
Image

TE-802
Bíll sem var í eigu Zneb og Bmw-owner hérna á kraftinum.. x5power- Nonni Bras á hann í dag.. bílinn er með hvítu leðri og svartur á litinn..
Image
Image
Image

UO-948
Sæmi flutti þennan bíl inn.. @li e30 (þáverandi eignandi) tók alveg svakalegt rönn á honum upp á akstursbraut.. roark85 átti hann einnig.. Hann er núna á Snæfellsnesi á bæ þar

Image
Image
Image
Image

AP-978
Sæmi flutti þennan einnig inn.. Hann var í eigu Kidda M5 (sem gerði E30 335i mtech til).. Bílinn er lítur mjög vel út í dag.. Eigandinn mætir reglulega á samkomur á honum

Myndir síðan að kiddi átti hann
Image
Image

Nýleg mynd tekin af honum á samkomu.. Hann er kominn með E39 M5 copy stuðara og á Rial felgur
Image

RO-119
Bíll sem margir meðlimir hafa átt.. Kull, Anger, Sezar og Alpina.. Sezar skipti um gírkassa í honum og í hanskahólfinu voru stórir reikningar þegar hann keypti hann.. Alpina kaupir hann svo og lætur heilmála bílinn og tekur bílinn alveg í nefið.. setur í hann bilstein fjöðrun og spaðar hann til..

myndir frá Kull
Image
Image

Nýjustu myndirnar..
Image
Image
Image

Bílar sem ekki eru lengur í umferð PD348 (bílinn sem Sh4rk reif ?)

OK núna eru það 3.8 bílarnir..

SX-739
Bíll sem Þórir Garðarson á.. Bílinn er með alcantara/tau sætum og nurburgring fjöðrun..
Þrusu flottur með Hella dark og þessi litur er mjög fallegur..
Image
Image
Image

MP-662
Þórir Garðarsson á þennan bíl líka.. hann er víst mjög heill.. Svartur á litinn.. Hann hefur ekki farið á númer síðan 2003 held ég..

LZ-554
Ég á þennan bíl. 2002tii átti hann á undan mér.. Hann keypti hann af toyota árið 2000 og á undan toyota átti hann maður sem hét Marteinn og flutti hann einnig inn NV097.. Bílinn er með alcantara/tau sætum og svörtu mælaborði.. Hann er Daytona Violett og er einnig með Nurburgring pakkann..

Image
Image
Image


Ef einhver eigandi þessara mynda vill að ég taki þær út má hann senda mér PM og því verður reddað..

Gaman væri að fá meira info um alla bílana og ekki vera ef fólk myndi henda inn myndum.. og já einnig ef einhverjar villur eru í þessu endilega leiðrétta mig..

Author:  birkire [ Sun 07. Jun 2009 21:47 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

Halli(roark85) átti UO948 en ekki RO119.

Flottur listi hjá þér :thup:

Author:  elli [ Sun 07. Jun 2009 22:08 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

Skemtilegur þráður :thup:

Author:  bebecar [ Sun 07. Jun 2009 22:12 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

:thup:

Mjög skemmtilegur þráður, merkilega mikið af þessu á landinu svona miðað við hvað þetta er sjaldgæft. Verst að það skuli ekki vera neinn Touring!

Author:  gmg [ Sun 07. Jun 2009 22:14 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

Góður þráður !

Author:  sh4rk [ Sun 07. Jun 2009 22:38 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

Vantar ekki eitthvað af M5 þarna? Ég reif einn og man ekki nummerið af honum

Author:  bErio [ Sun 07. Jun 2009 22:59 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

Skemmtileg lesning

http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/73139-1/_MG_0306.jpg
Persónulega finnst mér að hann ætti að losa sig við þennan stuðara og fara í orinal aftur
IMO eiga E34 M5 eða hvað M5 body sem er að vera ALVEG orginal stuðaralega séð og bodylega séð, undanskildum roof eða lipspoiler og því tengt.

Author:  apollo [ Sun 07. Jun 2009 23:18 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

Þar sem ég er eigandi á mj877 í dag langaði mig að bæta nokkurum myndum við

verseegúú

Image

Image

Author:  Aron Fridrik [ Sun 07. Jun 2009 23:21 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

varstu að versla ? :)

Author:  apollo [ Sun 07. Jun 2009 23:24 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

Aron Fridrik wrote:
varstu að versla ? :)



jeb eignaðist þennann fyrir 26 maí

Author:  Aron Fridrik [ Sun 07. Jun 2009 23:28 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

til hamingju með gripinn.. endilega hentu í þráð í bílar meðlima :)

Author:  balli750 [ Sun 07. Jun 2009 23:33 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

UO948 er núna á Snæfellsnesi á bæ þar, var í TB svoldið lengi og BJB

Author:  apollo [ Sun 07. Jun 2009 23:33 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

Aron Fridrik wrote:
til hamingju með gripinn.. endilega hentu í þráð í bílar meðlima :)


takk takk :) já það kemur þráður bráðlega

Author:  Danni [ Mon 08. Jun 2009 00:48 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

Flott samantekt hjá þér Aron.

Líka mjög flottar myndirnar af þessum fjólubláa :mrgreen:

Author:  arnibjorn [ Mon 08. Jun 2009 00:55 ]
Post subject:  Re: E34 ///M5 á íslandi

Góður þráður en ætti þetta ekki frekar heima í Áhugaverðir bimmar? :D

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/