Page 1 of 1

Garðar hinn heppni!

PostPosted: Mon 25. May 2009 01:55
by gardara
Ég var að keyra heim rétt áðan, er að beygja á ljósum og haldið þið ekki að helvítis dekkið hafi flogið undan vinstramegin að aftan.... Fór út og þá liggur bíllinn á bremsudisknum og allir boltarnir horfnir úr felgunni :shock: Fór að litast um og aðeins aftar sé ég alla boltana 5.

Annaðhvort er einhver svona gífurlega fyndinn að losa boltana hjá mér... eða ég veit ekki hvað.. Jú gæti þurft að hjólastilla bílinn, finnst samt ólíklegt að slæm hjólastilling geti losað boltana á 2-3 dögum þar sem boltarnir voru allir rígfestir í vikunni....

:evil:

Re: Garðar hinn heppni!

PostPosted: Mon 25. May 2009 04:47
by birkire
maxel lenti í þessu svipuðu á sínum e34 degi eftir að við svissuðum felgum á honum.. svínhertum á felgunum meira að segja. hefur bara losnað :? double tjekka alltaf núna eftir smá keyrslu..

varstu nýlega búinn að setja felguna undir ?

Re: Garðar hinn heppni!

PostPosted: Mon 25. May 2009 08:47
by Djofullinn
birkire wrote:maxel lenti í þessu svipuðu á sínum e34 degi eftir að við svissuðum felgum á honum.. svínhertum á felgunum meira að segja. hefur bara losnað :? double tjekka alltaf núna eftir smá keyrslu..

varstu nýlega búinn að setja felguna undir ?

Þetta er góð regla.
Ég hef lent í þessu nokkrum sinnum, hef alltaf verið fljótur að stoppa þegar ég finn smá auka titring og hef náð að bjarga mér frá því að felgan fljúgi undan

Re: Garðar hinn heppni!

PostPosted: Mon 25. May 2009 08:49
by arnibjorn
Djofullinn wrote:
birkire wrote:maxel lenti í þessu svipuðu á sínum e34 degi eftir að við svissuðum felgum á honum.. svínhertum á felgunum meira að segja. hefur bara losnað :? double tjekka alltaf núna eftir smá keyrslu..

varstu nýlega búinn að setja felguna undir ?

Þetta er góð regla.
Ég hef lent í þessu nokkrum sinnum, hef alltaf verið fljótur að stoppa þegar ég finn smá auka titring og hef náð að bjarga mér frá því að felgan fljúgi undan

Ekkert smá óþægilegt að lenda í þessu! Ég lenti einu sinni í því á E30 að 1 bolti var horfinn og hinir 3 alveg laflausir í þegar ég stoppaði! :shock:

En djö. klúður Garðar :(

Re: Garðar hinn heppni!

PostPosted: Mon 25. May 2009 13:23
by gardara
birkire wrote:maxel lenti í þessu svipuðu á sínum e34 degi eftir að við svissuðum felgum á honum.. svínhertum á felgunum meira að segja. hefur bara losnað :? double tjekka alltaf núna eftir smá keyrslu..

varstu nýlega búinn að setja felguna undir ?



Jebb skipti um fóðringar og gorma að aftan í vikunni...
Annars finnst mér búinn að vera ansi mikill titringur í bílnum síðan ég gerði það, gæti þurft að hjólastilla eftir svona fóðringa/gorma skipti?

Re: Garðar hinn heppni!

PostPosted: Mon 25. May 2009 17:13
by Stefan325i
Mjög sennilegt að ef bíllinn titraði síðan þú skipir um fóðringar að þú hafir bara ekki hert eina felgu nógu vel.

Lenti næstum því í þessu einusinni á blæjuni hans Gunna á rúntinum, vorum frekar tæpir að misssa annað frammdekkið undann.

Re: Garðar hinn heppni!

PostPosted: Mon 25. May 2009 17:49
by sh4rk
hef lent í svipuðu dæmi með E23 bílinn hjá mér fannst hann vera eitthvað svagur að aftan og stoppaði til að tékka á hvort að það væri laust dekkið og það var allveg dinglandi

Re: Garðar hinn heppni!

PostPosted: Mon 25. May 2009 19:04
by siggir
Sem minnir mig á það! Ég var að skipta um bremsudiska og á eftir að herða aftur.

Re: Garðar hinn heppni!

PostPosted: Mon 25. May 2009 21:37
by gardara
Jæja ég fór og leit á þetta áðan, þetta fór mikið betur en ég þorði að vona.
Járnhringurinn sem er utan með bremsudiskinum hafði beyglast upp yfir bremsudiskinn, ég rétti úr honum og þá virðist allt vera í lagi... Sér ekki á bremsudiskinum eða öðru.... Á svo pantaðan tíma í hjólastillingu á miðvikudaginn :thup: