Page 1 of 2
330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 17:42
by Elnino
Ég er búinn að vera að skoða einn e46 í vikunni. Jafnvel að spá í að kaupa hann.
Er eitthvað í þessum bílum sem er að klikka meira en á að gera? Veit að það er nú töluvert meira til að bila í þessum e46 bílum heldur en e36 sem ég átti. Þetta er 2002 bíll.
Eruði með einhver tips sem er gott að vita með þessa bíla?
kv.
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 18:07
by SteiniDJ
Ég hef átt tvo E46 og eitt sem ég þurfti að skipta í þeim báðum var par af þessu:

, spindilfóðrningar minnir mig að þetta heitir.
Svo gaf kælivökvaforðabúrið sig í báðum bílum, en það var ekkert stórmál að gera við.
Allt í allt, þá eru þetta sweet bílar.

Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 18:23
by ValliFudd
Eina sem ég get sett út á gamla minn.. 330 '00.. Var helvítis gjaldeyrislánið hehe..
En annars var ég alveg sjúklega ánægður með hann og sakna hans sárt..
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 18:51
by slapi
Kramið í þessu er alveg solid dót.
Ef þetta er sjálfskiptur bíll þá er það veikur punktur allaveganna.
Mér finnst bara vera að menn virðist ekki sinna þessum bílum alveg nægilega vel.
Búinn að skoða nokkra E46 og það er oft 150-250 þús kr pakki að fá þá í 100% stand.
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 19:05
by ValliFudd
Mótorinn vann engine of the year nokkur ár í röð minnir mig. En jú, sammála, það fór ekkert hjá mér en ég var alltaf hræddur um sjálfskiptinguna. En hún var mjööög skemmtilegt samt sem áður.
Touring - 14,887@94 mph

ssk.. og kona undir stýri
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 19:31
by Elnino
eru ssk í þessum bílum eitthvað lélegar? eða bara eruð þið meira fyrir bsk

Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 19:33
by Alpina
330 E46 þrusuvinnur
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 19:55
by íbbi_
það eru bara sömu standart atriðiin og í flestum bmw, ath ástand á hjólabúnaði, og skoða bílin vel.
ég hef notað á daglegum basis E46 alpina b3, m3,320d 330d og 318i, og allir hafa þeir hafa þeir keyrt án þess að vera til eftirtektarverðra vandræða nema 320d bíllinn.
E46 eru frábærir bílar
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 22:04
by Andri Fannar
Er þetta sjálfskiptingarvandamál ekki bara í pre-facelift bílum og svo LANGalgengast í '00 323i?
Annars er ég með '02 af 318i e46 ssk og mér finnst hann frábær.
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 22:07
by Elnino
eru semsagt einhver vandræði með skiptingarnar í þessum bílum?
2002 330 ? eru skiptingarnar slappar í þeim ?
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 22:18
by Andri Fannar
Elnino wrote:eru semsagt einhver vandræði með skiptingarnar í þessum bílum?
2002 330 ? eru skiptingarnar slappar í þeim ?
Ef hann er 2002 þá er hann facelift og þá ætti þetta ekki að vera vandamál held ég,
pre-facelift voru aðallega í veseni með þetta, er 99% viss.
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 23:15
by DABBI SIG
assi wrote:Elnino wrote:eru semsagt einhver vandræði með skiptingarnar í þessum bílum?
2002 330 ? eru skiptingarnar slappar í þeim ?
Ef hann er 2002 þá er hann facelift og þá ætti þetta ekki að vera vandamál held ég,
pre-facelift voru aðallega í veseni með þetta, er 99% viss.
Hvaðan hefur þú þessa 99% vissu þína?
Hef ekki heyrt að skiptingar í þessum bílum séu neitt slappari en annað. Ef rétt er farið með þetta og jafnvel skipt um olíuna þó að það eigi að heita "life-time" olía á þessu.
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 23:25
by ///MR HUNG
Hef aldrei heyrt að skiptingarveseni með E46.
Re: 330 e46

Posted:
Sun 24. May 2009 23:49
by Hlynur___
Alpina wrote:330 E46 þrusuvinnur
ahh ég er ósammála þér þarna
ég prufaði 330 coupe einu sinni og fannst þetta varla hreyfast úr spori
haugmáttlaust alveg hreint
en mér finnst vélin í 330d bílnum mikið mikið skemmtilegri í alla staði
fengi mer svoleiðis ef ég væri í E46 pælingum
Re: 330 e46

Posted:
Mon 25. May 2009 00:30
by Andri Fannar
DABBI SIG wrote:assi wrote:Elnino wrote:eru semsagt einhver vandræði með skiptingarnar í þessum bílum?
2002 330 ? eru skiptingarnar slappar í þeim ?
Ef hann er 2002 þá er hann facelift og þá ætti þetta ekki að vera vandamál held ég,
pre-facelift voru aðallega í veseni með þetta, er 99% viss.
Hvaðan hefur þú þessa 99% vissu þína?
Hef ekki heyrt að skiptingar í þessum bílum séu neitt slappari en annað. Ef rétt er farið með þetta og jafnvel skipt um olíuna þó að það eigi að heita "life-time" olía á þessu.
http://www.noreverse.orgsíðan eru milljón þræðir um þetta á e46fanatics