bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Vesen með skottlok á e34 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=37340 |
Page 1 of 1 |
Author: | Vlad [ Sun 17. May 2009 17:28 ] |
Post subject: | Vesen með skottlok á e34 |
Þannig er það nú að það var greinilega reynt að brjóstast inn í bílinn minn í nótt en hann var læstur... en takkanum á skottlokinu hefur verið alveg þrýst inn og er fastur þar og skottið vill alls ekki opnast. Gæti verið algjör noobakökuspurning en svar sem fyrst væri vel þegið. ![]() |
Author: | Einsii [ Sun 17. May 2009 18:32 ] |
Post subject: | Re: Vesen með skottlok á e34 |
Reyndu að plokka takkann út og þá geturu tekið læsinguna af. Greynilega nokkuð algengt að þessir takkar festist svona inni |
Author: | Svessi [ Sun 17. May 2009 18:35 ] |
Post subject: | Re: Vesen með skottlok á e34 |
Ég er ekki með neina töfralausn. Áður en þú gerir nokkuð myndi ég reyna ath hvort nokkru hafi verið troðið inn í lásinn. En ég myndi benda þér á að kaupa þér lásaolíu, fæst á flest öllum bensínstöðvum og lítur svipað út eins og efnið sem maður setur í lása til að þeir frjósi ekki, margir sem rugla þessu saman. Kostar nokkrar hundraðkalla. (Alls ekki nota WD-40, lásinn getur orðið verri eftirá) Sprautaðu lásaolíunni inn í lásinn og í kringum ef þú getur. Notaðu svo bíllykilinn, mæli með að nota varalykil ef þú átt, því þú gætir þurft að þjösnast aðeins á þessu. Reyndu að snúa aðeins lyklinum og togaðu svo út, getur verið mjög stíft, gott að hafa stóra lyklakippu til að ná betra gripi. Verður að geta snúið lyklinum aðeins því annars rennur lykillinn bara aftur út. Lásinn á að vera svoleiðis að lykillinn fer ekki út nema hann sé alveg lóðréttur. Ég held að það sé svoleiðis að samlæsingin, skottið opnist ekki nema takkinn sé úti. Gangi þér vel. |
Author: | Axel Jóhann [ Sun 17. May 2009 18:45 ] |
Post subject: | Re: Vesen með skottlok á e34 |
Það er þannig. ![]() |
Author: | Vlad [ Sun 17. May 2009 19:57 ] |
Post subject: | Re: Vesen með skottlok á e34 |
Takk kærlega fyrir þessi svör, fór út og prófaði aðeins að juðast í þessu með lyklinum, tók ekki nema 5 sek að redda þessu. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |