bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

520iA steptronic
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=3667
Page 1 of 1

Author:  jens [ Thu 11. Dec 2003 14:45 ]
Post subject:  520iA steptronic

arnib skrifadi:
Quote:
Skelltu þér á 4D 325i sem er til sölu uppá höfða!
Fínn bíll!

Fór í bæinn til aðskoða bíllinn en hann seldist á föstudaginn, svo ég tók rúnt um sölurnar í bænum OG kolféll fyrir 520iA steptronic. Þvílíkir bílar hef aðeins séð fyrir mér 300 bíla en núna [-o< for 500.
Hvernig hafa þessir bílar komið út í viðhaldi og eyðslu.

Author:  Jss [ Thu 11. Dec 2003 14:49 ]
Post subject: 

Ég held að þeir hafi nú bara komið mjög vel út í báðu, en þetta er engin raketta.

Author:  Kristjan [ Thu 11. Dec 2003 16:09 ]
Post subject: 

E34 520is félaga míns er nú með þægilegri bílum sem ég hef keyrt, ég get rétt ýmindað mér hvernig er að keyra E39.

Þó þeir séu bara 150 bhp þá dugar það nú ágætlega hér á landi.

Author:  saemi [ Thu 11. Dec 2003 16:40 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
E34 520is


Það er nú ekki til!!! is fimma!

Á þetta kannski að vera ia?

Author:  jens [ Thu 11. Dec 2003 16:44 ]
Post subject: 

Jss skrifaði:
Quote:
Ég held að þeir hafi nú bara komið mjög vel út í báðu, en þetta er engin raketta.


Ég veit það vel en hann er þó nokkuð hagstæðari í verði en 523i.

Author:  fart [ Thu 11. Dec 2003 21:33 ]
Post subject: 

ég er á 523 og er mega sáttur, beinskiptur eðalvagn.

Félagi minn á einn fallegasta 520i steptronic bíl sem ég hef séð, þ.e. af eldri árgerðum.

Þetta er 1997 minnir mig, lítið ekinn, dökkblár með leðri.

hann er til sölu, held að það sé þessi http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CARIMAGE&BILASALA=0&BILAR_ID=100998&IMAGEID=282

Author:  Ozeki [ Thu 11. Dec 2003 21:50 ]
Post subject:  Re: 520iA steptronic

jens wrote:
arnib skrifadi:
Hvernig hafa þessir bílar komið út í viðhaldi og eyðslu.


Ég á einn svona - og er alveg harðánægður með hann.
Með skemmtilegri bílum í akstri. Datt í hug að auglýsa hann til sölu hérna en það var bara drullað yfir mig að verðið væri allt of hátt :roll:
Bara grín 8) enda hefur gagnrýnin ábyggilega verið réttmæt.

Í 150k fór ég í gegnum Inspection II
Setti nýja framdempara, bremsudiska og eitthvað meira smotterý
Maður getur orðið sér úti um ódýra varahluti úti, svo ég var ekkert sár að eyða 50-60 kalli í bílinn og vita að allt væri í toppstandi á eftir, allt sem gert var voru fyrirbyggjandi hlutir - t.d. skift um alla vökva.

Nú er ég búin að keyra bílinn rúm 25k og það hefur ekkert komið uppá. Í vinnuni er ég annað slagið að keyra nýlega bíla sem kosta þetta 2 til 2,5 millur en einhvernvegin virka þeir ódýrari í akstri en bimminn ...

Hann er að eyða þetta frá 10 - 12 lítrum á 100 og ég keyri að mestu korters-túra úr og í vinnu. Eyðslumælir liggur á þetta 6-9 á langkeyrslu.

Með 150 hp er þetta nálægt því að vera slappasti bimmin á þessum aldri, en ég er mjög ánægður með vinnsluna. Maður verður bara að miða við að það er 2 lítra vél í bílnum ...

Ég myndi hiklaust mæla með E39 ef það á að fara að kaupa bíl í þessum stærðarflokki. Fyrir mig er Steptronic, topplúga og sími möst og annað aukaatriði ... það eru nokkrir svona bílar á sölu svo það ætti að vera lítið mál að finna einn sem maður er sáttur við.

Bara vera viss um að hann hafi fengið regluegt viðhald (þjónustubók) sé ekki logið til um akstur (þjónustubók) og sé nýlega yfirfarin (þjónustubók)

Author:  jens [ Thu 11. Dec 2003 23:18 ]
Post subject: 

Takk fyrir góð svör og ég er sammála um þetta með viðhaldið.

Ozeki skrifar:
Quote:
Bara vera viss um að hann hafi fengið regluegt viðhald (þjónustubók) sé ekki logið til um akstur (þjónustubók) og sé nýlega yfirfarin (þjónustubók)

MJÖG flottur bíll hjá þér en er með ákveðinn bíl í huga, takk samt veit af þínum.

Author:  Jss [ Thu 11. Dec 2003 23:24 ]
Post subject: 

jens wrote:
Jss skrifaði:
Quote:
Ég held að þeir hafi nú bara komið mjög vel út í báðu, en þetta er engin raketta.


Ég veit það vel en hann er þó nokkuð hagstæðari í verði en 523i.


Ég get ekki neitað því, þessi bíll dugar alveg, vildi bara benda á þetta, tók sjálfur 328 til að flytja inn heldur en að fá mér 323 þannig að mínar áherslur ættu að vera augljósar :D

Author:  GHR [ Thu 11. Dec 2003 23:40 ]
Post subject: 

Úff soldið stór avatar mynd :lol:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/