bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

nýja pústið mitt
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=366
Page 1 of 2

Author:  Gunni [ Mon 25. Nov 2002 11:09 ]
Post subject:  nýja pústið mitt

jæja ég var að fá M3 púst hjá honum Gunna sem ég ætla að setja undir bílinn minn. hlakkar til að heyra svala hljóðið sem á eftir að koma úr því :D veit einhver um hagstætt pústverkstæði ??

Author:  GHR [ Mon 25. Nov 2002 11:43 ]
Post subject: 

Pústverkstæði Einars, prófaðu hann.
Vinur minn lét smíða pústkerfi í Trans Am sem hann átti, var mjög vel gert og tók bara einn dag.

Author:  Djofullinn [ Mon 25. Nov 2002 17:41 ]
Post subject: 

Einar áttavilti er nú frægur fyrir að "prófa" alla kraftmikla bíla sem hann er að vinna í og hann fer ekkert voðalega vel með bílana, en hann er mjög klár :)
Hef heyrt góða hluti um BJB í Hafnarfirði.

Author:  Gunni [ Mon 25. Nov 2002 18:05 ]
Post subject: 

já ég vill ekki hafa það að einhver apaheili sé að nauðga elskunni minni þegar hann á að vera að þjónusta hann! ég fyrirlít bílaþjónustuaðila sem geta ekki séð skemmtilega bíla í friði án þess að þurfa að skemma þá! URG

Author:  GHR [ Mon 25. Nov 2002 18:38 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
Einar áttavilti er nú frægur fyrir að "prófa" alla kraftmikla bíla sem hann er að vinna í og hann fer ekkert voðalega vel með bílana, en hann er mjög klár :)
Hef heyrt góða hluti um BJB í Hafnarfirði.



Það er nú gott að vita það :D Ég hata svona fyrirtæki sem ''prófa'' aðeins bílana :evil:
Er ekki hægt bara að speed limita bílinn í 10-20 km með OBC, svona svo þeir séu ekki að nauðga bílunum

p.s. Gunni, er þetta ekki bara aftastu kúturinn sem þú varst að fá?

Author:  gstuning [ Mon 25. Nov 2002 18:44 ]
Post subject: 

Jú,

ég fékk hann með vélinni þegar hún kom frá þýskalandi

Author:  Gunni [ Mon 25. Nov 2002 19:03 ]
Post subject: 

Gummi 750 wrote:
p.s. Gunni, er þetta ekki bara aftastu kúturinn sem þú varst að fá?


jú aftasti kúturinn með sverari rörum sem ná alveg að túpunum sem eru í miðjunni, og svölu m3 krómstútunum 8)

Author:  Svezel [ Mon 25. Nov 2002 19:14 ]
Post subject: 

Eru þeir hjá Fjöðrinni ekki ágætir?

Annars hef ég heyrt ágætis hluti af bílaverkstæði Ella.

Author:  GHR [ Mon 25. Nov 2002 23:21 ]
Post subject: 

svezel wrote:
Eru þeir hjá Fjöðrinni ekki ágætir?

Annars hef ég heyrt ágætis hluti af bílaverkstæði Ella.


Ha,ha bróðir minn er að vinna hjá Bílaverkstæði Ella niðrá Seltjarnanesi :D

Author:  saemi [ Tue 26. Nov 2002 14:36 ]
Post subject: 

Eg er sattur vid pustverkstaedid i noatuni (einnar attavillti). Teir settu nyan kut (ur 560sec) i stadin fyrir hvarfakutinn i 6-uni. Reyndar ekki Einar, heldur annar gaur tarna. Agaetis kallar.

Saemi

Author:  Kull [ Tue 26. Nov 2002 16:36 ]
Post subject: 

Er Einar áttavillti ekki með pústverkstæði Einars þarna hjá Skemmuvegi og þar?

Annars get ég staðfest að gaurarnir í nóatúninu eru fínir, fékk þá til að laga laust púst hjá mér á öðrum bíl og það var hræbillegt, minnir að ég hafi borgað um 2000 kall.

Author:  GHR [ Tue 26. Nov 2002 18:46 ]
Post subject: 

Kull wrote:
Er Einar áttavillti ekki með pústverkstæði Einars þarna hjá Skemmuvegi og þar?

Annars get ég staðfest að gaurarnir í nóatúninu eru fínir, fékk þá til að laga laust púst hjá mér á öðrum bíl og það var hræbillegt, minnir að ég hafi borgað um 2000 kall.



Jú,jú það passar hann er í smiðjuveginum.
Já mér finnst hann frekar ódýr og mjög fljót þjónusta. Eins og ég sagði þá smíðaði hann complett pústkerfi (frá flækjum) á Trans Am sem vinur minn átti og það tók bara einn dag og kostaði 40 þús. kall. Mér finnst það nokkuð góður díll fyrir 3" tvöfalt rustfree pústkerfi

Author:  Dr. E31 [ Tue 26. Nov 2002 23:28 ]
Post subject: 

Ekki díla við Einar áttavilta, ég verslaði einusinni tvöfalt púst hjá honum undir Capri'inn minn og ég þurfti að fara með hann þrisvar sinnum til að láta laga það vegna þess að það rakst uppí gólf á bílnum. Auk þess notaði hann venjuleg stál rör sem ryðguðu eftir fyrstu rigninguna og voru þrefallt þyngri en álblöndurörin sem eru notuð allstaðar annarstaðar. Mjög ódýrt en ekki góð vinnubrögð.

Ég mæli með BJB í Hafnafirði, þeir smíðuðu nýja pústið undir Capri'inn sem ég er mjög ánægður með, vandvirk fagmannleg vinnubrögð.

Author:  Gunni [ Wed 27. Nov 2002 19:08 ]
Post subject: 

jæja bíllinn minn er uppí BJB þar sem verið er að setja pústið undir :) það kom í ljós að það voru hvarfakútar undir bílnum. ég lét setja túpur í staðinn og hlakkar til að heyra soundið á eftir :) læt ykkur vita hvernig þetta kemur út :)

Author:  Gunni [ Wed 27. Nov 2002 22:51 ]
Post subject: 

jæja kominn á bílinn og þetta er svo sweet. hljóðið er djúpt og geðveikt flott :) ansi magnað. gaurin reif hvarfakútana af og setti 2x 2" túpur í staðinn. núna er ansi óheft flæði þarna í gegn, sem er gott 8)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/