Page 1 of 1
er e-r sem slípar gler

Posted:
Sat 06. Dec 2003 02:42
by ta
þokuljósin hjá mér eru ansi sandblásin
og mött, er einhver sem getur slípað
þau upp og gert þau glær og tær aftur.

Posted:
Sat 06. Dec 2003 10:14
by Gunni
Mér þætti líka gaman að vita hvort það geri þetta einhver, ég veit nebblega um framljós sem þyrftu smá yfirhalningu


Posted:
Sat 06. Dec 2003 14:49
by Gunnar H
ég á svona þokuljós ef þú vilt en einhverjar festingar eru brotnar

Posted:
Sat 06. Dec 2003 15:02
by Jökull
Ég er að vinna á bónstöð og það er til ekker glerslípimassi til að slípa gler.Ég hef reyndar aldrei prufað það.Prufaðu allavega að hringja á ekkerar bónstöðvar

og spurðu um þetta

Posted:
Sat 06. Dec 2003 18:10
by Alpina

Posted:
Sat 06. Dec 2003 19:13
by zazou
Jökull wrote:Ég er að vinna á bónstöð og það er til ekker glerslípimassi til að slípa gler.Ég hef reyndar aldrei prufað það.Prufaðu allavega að hringja á ekkerar bónstöðvar

og spurðu um þetta
Vil ekki vera með leiðindi en 'ekker'


Posted:
Sat 06. Dec 2003 19:21
by bjahja
einhver


Posted:
Sun 07. Dec 2003 01:17
by arnib
zazou wrote:Jökull wrote:Ég er að vinna á bónstöð og það er til ekker glerslípimassi til að slípa gler.Ég hef reyndar aldrei prufað það.Prufaðu allavega að hringja á ekkerar bónstöðvar

og spurðu um þetta
Vil ekki vera með leiðindi en 'ekker'

Ef þú vilt ekki vera með leiðindi, ekki vera með leiðindi


Posted:
Sun 07. Dec 2003 02:14
by Halli
sammála það þurfa engin að fá svona svör það er betra að sleppa að skrifa þau (bara að hugsa)


Posted:
Mon 08. Dec 2003 20:49
by Bjarkih
Þú getur prufað efni sem heitir að ég held "pimsteinn" mynnir að hann fáist í apótekum. Þetta er duft sem er stundum notað til að slípa upp gamlar rúður. Setur það á glerið og svo smá vatn.

Posted:
Tue 09. Dec 2003 18:59
by Haffi
hey profaðu að tala við "Glerslípanir Og Sandslípanir/Blástur"
Var að mæla út fyrir innréttingu hjá kauða sem var merktur þannig fötum


Posted:
Tue 09. Dec 2003 19:02
by Benzer
Það er líka ekkað gler fyrirtæki á hellu sem heitir samverk...veit ekki hvort þeir geri þetta en það sakar ekki að hringja og spurja


Posted:
Wed 10. Dec 2003 20:05
by poco
Annars eru leiðbeiningar um hvernig eigi að slípa gler á bmwtips.com, ef þú þorir að reyna þetta sjálfur.
Good luck

Posted:
Wed 10. Dec 2003 20:25
by bebecar
Það eru engin leiðindi að biðja fólk um að vanda málfar. Og það ætti engin að skammast sín fyrir að leiðrétta - vandið málfar!!!

annað er óvirðing við viðmælanda!

Posted:
Thu 11. Dec 2003 12:15
by ta
ég talaði við mann hjá Glerinu sf.
hann sagði að það væri ekki hægt
að ná þessu góðu, þeir væru búnir að
prófa nokkrar gerðir massa.
það væri hægt að ná burt fínum rispum,
en ekki þegar þetta er orðið svona sandblásið,
það sé of djúpt.