Page 1 of 2
Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Thu 26. Mar 2009 20:07
by GústiX
Rakst á gamlan '95 730 hvítan á Bílabankanum uppi á höfða. Frekar farinn
að láta á sjá greyið auk þess sem hann er með ónýtan geymi og fer því
ekki í gang.
Veit einhver um ástand og fyrri sögu þessa bíls?
Væri þetta skemmtilegur fixer-upper ef hann fæst á slikk?
Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Thu 26. Mar 2009 20:29
by Axel Jóhann
Hann er búinn að vera örugglega á annað ár þarna.
Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Thu 26. Mar 2009 21:01
by GústiX
Sorglegt að sjá svona kagga rotna á bílasölu
Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Thu 26. Mar 2009 21:25
by Wolf
http://www.bilasolur.is/CarDetails.aspx ... &schpage=1Það hefur greinilega þótt ráðlegt að lækka hann úr 990K...............
Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Thu 26. Mar 2009 22:17
by Axel Jóhann
Mér var boðinn hann á 300kall.
Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Thu 26. Mar 2009 22:26
by birkire
úff frekar myndi ég kaupa mér kynsjúkdóm en þetta flak
Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Thu 26. Mar 2009 23:13
by íbbi_
tja.. hann er búinn að standa á sölu núna í á fjórða ár, búinn að skipta um eigendur oftar en einu sinni, en yfirleitt notaður sem skiptimynt í öðrum viðskiptum,
bíllinn er orðinn vel stirður eftir að hafa staðið svona lengi, en hann lýtur als eki ila út, væri finn til að laga held ég, mér var boðinn hann á 300k
Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Fri 27. Mar 2009 08:03
by Angelic0-
300k, allt of dýrt fyrir þetta eintak...
gott og gilt að borga 300k, fyrir semi fínan E38 730.. en ekki þetta eintak

Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Mon 30. Mar 2009 16:04
by emilth
Ég fékk að skoða þennan bíl fyrir alls ekki svo löngu síðan, var boðinn hann á 350 þúsund, "því að þessir bílar fara sko alls ekkert neðar í verði nema allt sé ónýtt"

Eini gallinn sögðu þeir að mótorinn væri ónýtur, eða allavega illa farinn

Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Tue 31. Mar 2009 14:22
by Axel Jóhann
emilth wrote:Ég fékk að skoða þennan bíl fyrir alls ekki svo löngu síðan, var boðinn hann á 350 þúsund, "því að þessir bílar fara sko alls ekkert neðar í verði nema allt sé ónýtt"

Eini gallinn sögðu þeir að mótorinn væri ónýtur, eða allavega illa farinn

Já okei, semsagt bara "smávægilegur" galli!

Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Tue 31. Mar 2009 16:22
by sindrib
ég var að spá í þessum bíl fyrir 2 árum síðan, þá var hann alveg ágætur, minnir að topplúgan hafi verið styrð og speglarnir ekki virkað, og eitthvað.. en samt alveg ágætur, gæti trúað að hann sé bara ónýtur núna..
Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Wed 01. Apr 2009 08:04
by emilth
Axel Jóhann wrote:emilth wrote:Ég fékk að skoða þennan bíl fyrir alls ekki svo löngu síðan, var boðinn hann á 350 þúsund, "því að þessir bílar fara sko alls ekkert neðar í verði nema allt sé ónýtt"

Eini gallinn sögðu þeir að mótorinn væri ónýtur, eða allavega illa farinn

Já okei, semsagt bara "smávægilegur" galli!


nákvæmlega, en annar gaur sem ég talaði við þegar ég skilaði lyklinum sagði að það væri bara bull, hann færi í gang og það væri hægt að keyra bílinn, en mótorinn gengi mjög illa, s.s. alveg algjört samskiptaleysi í gangi í sambandi við bíl sem er gjörsamlega gróinn við planið hjá þeim

Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Wed 01. Apr 2009 10:59
by íbbi_
Stórfréttir, bíllin er farin af planinu. Sá hann lagdan ásamt 540LM
Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Mon 06. Apr 2009 12:52
by bjornf
Re: Hvítur 730 '95 á bílasölu

Posted:
Mon 06. Apr 2009 16:41
by Angelic0-
íbbi_ wrote:Stórfréttir, bíllin er farin af planinu. Sá hann lagdan ásamt 540LM
