bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=35809 |
Page 1 of 1 |
Author: | Rednex [ Wed 18. Mar 2009 15:55 ] |
Post subject: | Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ? |
Sælir Hvernig er það með bíla sem keyptir hafa verið á Vöku-uppboði og löggan hefur klippt af plöturnar, hvar sækir maður þær ? Er þetta hjá löggunni í Reykjavík, því hún klippti af honum, eða er þetta hjá Birfreiðaeftirlitinu ? |
Author: | ValliFudd [ Wed 18. Mar 2009 15:58 ] |
Post subject: | Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ? |
Þú getur væntanlega ekki sótt þær ef það var klippt af t.d. vegna þess að bíllinn fór ekki í skoðun. Þá þarftu að láta senda þær á skoðunarstöðina sem þú ætlar að láta skoða bílinn á.. En ég veit ekki, endar þetta ekki allt hjá Umferðarstofu? www.us.is |
Author: | Ingsie [ Wed 18. Mar 2009 16:00 ] |
Post subject: | Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ? |
Ef það var klippt af bílnum á höfuðborgarasvæðinu þá eru þær í umferðarstofu. 5802000, getur hringt og ath hvort þær séu þar opið frá 8-4 Ef það var klippt af bílnum vegna þess að hann er óskoðaður þá verðuru að láta skoða bílinn fyrst til þess að fá plöturnar (Getur látið senda plöturnar á hvaða skoðunarstöð sem er) Ef það var klippt af honum vegna þess að bílinn var ótryggður þá er nóg að vera búin að hringja í tryggingafélagið og fá staðfestingu á tryggingu. *edit* já og aðeins skráður eigandi má sækja plöturnar, nema að fólk sé með umboð. |
Author: | Rednex [ Wed 18. Mar 2009 16:55 ] |
Post subject: | Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ? |
Takk fyrir þetta ![]() |
Author: | íbbi_ [ Thu 19. Mar 2009 01:06 ] |
Post subject: | Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ? |
er búið að taka vikufrestinn út sem maður hafði? þ.e.a.s maður fékk plöturnar og hafði viku til að koma honum í skoðun |
Author: | Einarsss [ Thu 19. Mar 2009 08:05 ] |
Post subject: | Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ? |
íbbi_ wrote: er búið að taka vikufrestinn út sem maður hafði? þ.e.a.s maður fékk plöturnar og hafði viku til að koma honum í skoðun Það er í gildi ef þú hefur lagt inn plöturnar sjálfur, sennilega annað ef að lögreglan hefur "klippt" plöturnar af |
Author: | íbbi_ [ Thu 19. Mar 2009 08:06 ] |
Post subject: | Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ? |
djö! það á nú eftir að valda einhverri seinkun hjá manni ![]() |
Author: | Svessi [ Fri 20. Mar 2009 14:02 ] |
Post subject: | Re: Sækjanúmerplötur fyrir bíl sem klippt var af ? |
Eftir því sem ég hef heyrt þá er þetta eins og einarsss sagði hér fyrr: Ef þú (eða fyrri eigandi) hefur lagt númerplöturnar sjálfur inn þá getur þú sjálfur náð í þær og hefur viku til að koma bílnum í skoðun, ef hann er óskoðaður þar að segja. Það er samt ekki ætlast til þess að fólk sé að nota bílana eitthvað áður en það er farið með þá í skoðun, þú hefur bara þessa 7 daga til að koma bílnum í skoðun. Veit dæmi þess að strákur tók svona út númerið á bílnum sínum og fór út að rúnta á laugardagskvöldi með félagana með sér, löggan stoppaði hann og klippti af því bíllinn var óskoðaður og hann var alveg hundfúll og skildi ekki afhverju löggan klippti af því hann hélt virkilega að hann hefði 7 daga sjéns. Ef lögreglan hefur klippt númerin af vegna skoðunar þá verður þú sjálfur að koma bílnum á skoðunarstöðina númerlausum, færð ekki númerin fyrr en þú hefur farið í gegnum skoðun og ég held að þú verðir alveg örugglega að vera búinn að borga bifreiðagjöldin líka. Svo á ekki að vera neitt mál að hringja eða fara niður í umferðastofu eða niður á næstu skoðunarstöð og komast að því hvar númerin eru niðurkomin, og ef svo ber undir að láta flytja þau á milli staða, tekur yfirleitt nokkra daga og átt ekki að þurfa borga neitt fyrir það. p.s. svo vegna þess að við erum að tala um bifreiðaskoðun. Ég fór með pajeroinn í skoðun í morgun því hann átti að fara í skoðun á síðasta ári og sektirnar verða lagaðar á núna í apríl - 15.000 kr, ég fékk endurskoðun útaf slappri legu og spyrnufóðringum, en allavega, maður fær einn mánuð og eftir þann tíma er það bara orðinn 15.000 kr sekt og full skoðun aftur. Ég fór í Aðalskoðun og þar er full skoðun um 8000 kr og endurskoðun 1500 kr Í frumherja er það 7300 kr Endalaust peningaplokk allsstaðar. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |