Page 1 of 1
BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Tue 17. Mar 2009 15:49
by Gaui88
Góðan daginn kraftsmenn
Ég hef mikið verið að leita mér að bíl uppá síðkastið og rakst á þennan 316 bíl (sami bílinn á 2 sölum)
http://www.bilasolur.is/CarDetails.aspx ... &schpage=1og
http://www.bilasolur.is/CarDetails.aspx ... &schpage=1og var að spá hvort ég gæti fengið ykkar álit á þessum bíl, verðinu og ef þið þekkið eitthvað til hans, og almennt með þessa bíla, bilanatíðni, viðhald, eyðsla og fleira sem ykkur dettur í hug.
Og til að sleppa við röfl um að þetta máttlaus bíll og annað þá er ég bara að leita mér að krúser innanbæjar sem endist mér nokkur ár fram í tíman ánþess að verða ein vandamálahrúga því ég er í skóla og fjármagn er af skornum skammti...
endilega ef einhver getur reddað eigendasögunni væri það frábært líka
fyrirfram þakkir
Gaui88
Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Tue 17. Mar 2009 15:52
by IceDev
Of dýr, of máttlaus, illa útbúinn bíll, eyða miklu miðað við vélarstærð, frekar dýrt viðhald
Myndi ekki mæla með þessum sem skólabíl
5 eigendur, tjónlaus
Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Tue 17. Mar 2009 15:58
by ValliB
Myndi persónulega aldrei fara í svona bíl sem skólabíl.
Heillar mig mjög lítið
Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Tue 17. Mar 2009 16:01
by Jón Ragnar
ég persónulega færi í 318 frekar, mun meiri vél eitthvað
Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Tue 17. Mar 2009 19:05
by IceDev
http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... 86b56802ddSbr þessi. Hann er ekinn meira og eldri en það er líklegast hægt að viðhalda bílnum í 4-5 ár fyrir mismuninn á bláa 316
veit reyndar ekkert um ástandið á honum, en þetta er náttúrulega bara eitt dæmi af mörgum ódýrari E46 á sölu í dag
Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Tue 17. Mar 2009 23:21
by gardara
IceDev wrote:http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid=71&cid=105602&sid=58405&schid=a1b1a349-b315-43ce-a92c-bc86b56802dd
Sbr þessi. Hann er ekinn meira og eldri en það er líklegast hægt að viðhalda bílnum í 4-5 ár fyrir mismuninn á bláa 316
Og beinskiptur, svo að hann er mun skemmtilegri í akstri.
Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Wed 18. Mar 2009 11:24
by Jónas
..Og marglitur

Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Wed 18. Mar 2009 11:30
by SteiniDJ
Flottur bíll samt!
Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Wed 18. Mar 2009 16:01
by DABBI SIG
Þessi blái er örugglega mjög solid eintak og flottur bíll. Virðist allavega vera gott eintak miðað við tjónlaus og lítið ekinn. Væri samt óneytanlega skemmtilegra að hafa hann bsk með þetta lítilli vél. Gæti verið mjög góður bíll ef þú ert að hugsa um að eiga svona bíl til einhvers langs tíma. Væri líka eflaust hægt að fá hann á góðu stgr verði.
Þessi grái er á góðu verði já, en ekinn meira og gæti því þýtt meira viðhald ef þetta á að vera bíll sem þú ert að tala um að endast vel í einhver ár... Sömuleiðis þá er eitthvað athugavert við litamismuninn í bílnum (tjón?) og bílinn hefur verið eitthvað að flakka á milli manna undanfarið...
Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Wed 18. Mar 2009 16:16
by Grétar G.
1,5 mills fyrir 316! Það fór nú einn E46 323i coupe á 900þús nýlega !
Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Wed 18. Mar 2009 16:55
by BjarkiHS
Re: BMW 316 - ykkar álit?

Posted:
Thu 19. Mar 2009 00:23
by Angelic0-
Ég get vottað að þessi grái bíll er mjög góður, mislituninni kann ég ekki skil á en mjög nýlega er búið að yfirfara allar fóðringar og annað og því tæki ég hann frekar en þennan blá'a... sem að er BARA OVERPRICED