Page 1 of 3

Bílaáhugamenn - könnun - Niðurstöður komnar

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 17:34
by Jss
Sælir/Sælar,

Ég er í mastersnámi í Háskóla Íslands og er að vinna rannsóknarverkefni þar sem ég kanna kauphegðun bílaáhugamanna. Mig vantar ykkar hjálp við vinnslu verkefnisins og væri ég því mjög þakklátur ef þið gæfuð ykkur tíma til að svara könnuninni sem á aðeins að taka 5 mínútur.

Því fleiri sem svara könnuninni því betra og þakka ég öllum sem svara henni kærlega fyrir hjálpina. Fyrir neðan er linkur á könnunina:

http://cs.createsurvey.com/c/12/3112/survey/4192-n8kXB0.html

Um könnunina

Þessi spurningalisti er hluti af verkefni í rannsóknum í markaðsfræði unnu af Jóhanni Sveini Sigurleifssyni, Jss á BMWKrafts spjallinu, sem hluti af meistaranámi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands.

Markmið rannsóknarinnar er að mæla hversu mikil áhrif niðursveiflan í þjóðfélaginu hefur haft á kauphegðun bílaáhugamanna. Þátttakendur eru valdir með það fyrir sjónum að þeir sem skoða heimasíðu BMWKrafts eru bílaáhugamenn, hvort sem þeir eiga BMW eða aðra bíla. Spurningalistinn er stuttur eða aðeins 18 spurningar og á því ekki að taka meira en ca. 5 mínútur að svara honum. Mikilvægt er fyrir mig að spurningalistanum sé svarað samviskusamlega þar sem hann er hluti af meistaranámi mínu. Vil ég þakka ykkur kærlega fyrir hjálpina. Svör verða ekki rakin til þáttakenda.

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 17:44
by Einarsss
Búinn að svara, gangi þér vel með verkefnið :)

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 17:45
by Jss
Kærar þakkir fyrir það. :D

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 18:02
by Mánisnær
Búinn að svara, gangi þér vel.

Hvað ertu að læra?

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 18:04
by Jss
Mánisnær wrote:Búinn að svara, gangi þér vel.

Hvað ertu að læra?


Takk fyrir það.

Ég er í MS í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum í Háskóla Íslands.

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 18:05
by gunnar
Búinn að svara,

Spurning 2 og 3 angra mig svolítið þar sem maður eyðir auðvitað mjöööög mismunandi í bílana sína eftir mánuðum. En ég reyndi bara að svara svona almennt.

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 18:11
by Dóri-
finnst þetta hálf kjánalegt, maður er spurður um bílinn þinn/bílana þína, svo allt í einu er spurt um tegund bílsins sem svarað er um.

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 18:12
by Axel Jóhann
Búinn að svara. :D

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 18:14
by Aron Andrew
Kominn með svar frá mér, gangi þér vel að vinna úr þessu :)

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 18:17
by Jss
Dóri- wrote:finnst þetta hálf kjánalegt, maður er spurður um bílinn þinn/bílana þína, svo allt í einu er spurt um tegund bílsins sem svarað er um.


Þetta hefur slæðst einhvern í gegn svona þrátt fyrir allnokkra yfirlestra og lagfæringar, þetta átti í raun að vera "bílinn þinn" alls staðar en eitthvað hefur misfarist við uppsetninguna á könnuninni.

Ef svarað er með tegund bíls og þið svarið miðað við fleiri en einn bíl þá er t.d. hægt að skrifa það í tegundarreitinn, t.d. 1 BMW og 1 Benz.


Og aftur þakka ég ykkur kærlega fyrir svörin.

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 19:01
by jon mar
Done

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 19:14
by ValliB
jon mar wrote:Done


x2

Sumar spurningarnar þarna mætti útfæra aðeins betur þó, en gangi þér vel með verkefnið

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 19:18
by Jón Ragnar
Done :)

gangi þér vel með þetta! 8)

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 20:09
by Zed III
Jss wrote:
Dóri- wrote:finnst þetta hálf kjánalegt, maður er spurður um bílinn þinn/bílana þína, svo allt í einu er spurt um tegund bílsins sem svarað er um.


Þetta hefur slæðst einhvern í gegn svona þrátt fyrir allnokkra yfirlestra og lagfæringar, þetta átti í raun að vera "bílinn þinn" alls staðar en eitthvað hefur misfarist við uppsetninguna á könnuninni.

Ef svarað er með tegund bíls og þið svarið miðað við fleiri en einn bíl þá er t.d. hægt að skrifa það í tegundarreitinn, t.d. 1 BMW og 1 Benz.


Og aftur þakka ég ykkur kærlega fyrir svörin.


Bílarnir mínir detta í sitthvorn ártals hópinn

Done samt

Re: Bílaáhugamenn - könnun - vantar ykkar hjálp

PostPosted: Tue 10. Mar 2009 20:12
by Tombob
Svarað,

Soundar eins og skemmtilegt verkefni, gangi þér vel.

kv,
Tómas