Já ég á hann, var að setja hann á númer.
Debadgaði hann þar sem þetta er sett eftir á (bíllinn kom úr verksmiðjunni án merkis).
Ég þarf að klára þetta ég veit, en ég fór með hann í skoðun og eina sem var vandamál (fyrir utan nokkrar perur) var flauta, stýrisupphengja (hvar fæst hún ódýrt en samt ekki það ódýr að hún sé drasl) og bensínleki aftan á bensíntanknum, eitthvað svaka lítið sem kemur úr járnröri aftan á tanknum og ég veit ekki hvað þetta rör er þar sem bensínleiðslurnar fyrir mótorinn koma að framanverðu. Það er plasttankur undir bílnum.
Annars er ég búin að fjárfesta í Zender svuntusetti komplett.
Hugsanlega E36 style sílsum sem er glænýjir, koma drulluvel út, en þeir fara ekki undir minn þar sem ég með Zender.
Svo er ég með leður sport-sæti.
Og já, mjög líklega OEM Hella Dark, en ég er enþá á yndislegum hjólkoppum.

En já ástæðan af hverju ég vildi upplýsingar um bílinn var að mig langaði að athuga hvort einhver hér hefur átt hann, kannski eitthver saga á bakvið hann.
