bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Einhver sem vinnur í búðinni í N1 sem er til í verkefni! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=35574 |
Page 1 of 1 |
Author: | saemi [ Mon 09. Mar 2009 18:30 ] |
Post subject: | Einhver sem vinnur í búðinni í N1 sem er til í verkefni! |
Mig vantar nefnilega einhvern til að ganga á lagerinn af spindilkúlum og athuga fyrir mig hvort það er séns að það finnist kúla sem ég get notað. Málið er að í E34 ix bílana er bara hægt að kaupa alla spyrnuna að framan, þar sem spindilkúlan er í framströttinum. Það er hins vegar hægt að ná kúlunni úr og ég er að gæla við að það finnist kúla sem hægt er að nota. E36 kúlan er mjög svipuð, en því miður er kónninn á henni ekki eins :/ Allavega.. ef það finnst einhver sem er til í að taka kúluna hjá mér og bera saman við það sem er á lagernum, þá fær hann 5000 kall frá mér ![]() Fínt til að eyða restinni af hádegismatnum í ![]() |
Author: | Lindemann [ Mon 09. Mar 2009 18:35 ] |
Post subject: | Re: Einhver sem vinnur í búðinni í N1 sem er til í verkefni! |
prófaðu að fara í fálkann og athuga hvort þeir geti hjálpað þér. |
Author: | saemi [ Mon 09. Mar 2009 18:44 ] |
Post subject: | Re: Einhver sem vinnur í búðinni í N1 sem er til í verkefni! |
Lindemann wrote: prófaðu að fara í fálkann og athuga hvort þeir geti hjálpað þér. Eru þeir með mikið úrval af spindilkúlum? |
Author: | Lindemann [ Mon 09. Mar 2009 19:42 ] |
Post subject: | Re: Einhver sem vinnur í búðinni í N1 sem er til í verkefni! |
ég held ég sé ekki að rugla með það, allavega stýrisenda. Þeir tóku t.d. töluvert af drasli frá Ræsi.....all frá viftureimum uppí mótorpúða í vörubíla. |
Author: | saemi [ Mon 09. Mar 2009 19:49 ] |
Post subject: | Re: Einhver sem vinnur í búðinni í N1 sem er til í verkefni! |
Hmmm... já. Stýrisendar hjálpa mér lítið .... En málið er að það er ekki hægt að labba inn í búð og biðja fólk um að ganga á lagerinn og leita! Við erum ekki að tala um að fletta upp partanúmeri, þetta "er ekki til" officially. |
Author: | Lindemann [ Mon 09. Mar 2009 20:06 ] |
Post subject: | Re: Einhver sem vinnur í búðinni í N1 sem er til í verkefni! |
jájá, ég veit hvað þú ert að meina. En ef maður hefur málin á hlutnum þá getur maður verið heppinn og lent á starfsmanni sem nennir að skoða þetta aðeins, ég hef a.m.k. fundið hluti á þann hátt. |
Author: | íbbi_ [ Tue 10. Mar 2009 03:24 ] |
Post subject: | Re: Einhver sem vinnur í búðinni í N1 sem er til í verkefni! |
í þeim varahlutaverslunum sem ég hef unnið í hefði þetta bara ekki gengið.. maður hefði þurft að vera með lagerinn gífurlega á hreinu til að vita hvar maður ætti að leyta eftir útliti kúlunar, og svo væri ekki vel liðið að maður væri opnandi allar umbíðir og gramsandi, en það má að sjálfsögðu reyna ![]() |
Author: | Jss [ Tue 10. Mar 2009 18:20 ] |
Post subject: | Re: Einhver sem vinnur í búðinni í N1 sem er til í verkefni! |
Þegar ég vann í B&L þá gerði ég nú svipaða hluti nokkuð oft og veit að aðrir reyndu það sama. Auðvitað eiga svona fyrirtæki að reyna að þjóna viðskiptavinum, og mögulegum viðskiptavinum, eins vel og þau geta. ![]() En tek undir það með Íbba að það er oft hægara sagt en gert að finna svona hluti nema þekkja lagerinn nokkuð vel. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |