bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Dísel uppls
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=35403
Page 1 of 2

Author:  siggik1 [ Mon 02. Mar 2009 17:57 ]
Post subject:  Dísel uppls

Er búinn að vera reyna googla einhverjar uppls um dísel e46, finn frekar lítið, td buyer´s tip og svona, hvað þarf að hafa í huga við kaup á 320d td. hvenær á að skipta um túrbínu osfr

hafið þið rekist á eitthver forums þarsem eitthvað svona kemur fram ?

Author:  Astijons [ Mon 02. Mar 2009 18:09 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

talaðu við AntiTrust...
HAHAHAHAHA :D

Author:  AntiTrust [ Mon 02. Mar 2009 18:14 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

Ég keypti nýverið 320D, með bilaða bínu, hún hefur sumsé farið í ca 240þús.

Í 2002 - 04 er víst voðalega algengt að bínan fari, misjafnt hvenær það er hinsvegar.

Þrátt fyrir allt þetta smáa sem ég hef verið að brasast við og laga, fíla ég þennan bíl í botn, 5-6l/100 innanbæjar, rúmlega 4l/100 utanbæjar, fer rúmlega 1000km á tankinum. Rosalega skemmtilegt tog líka, skilar sér skemmtilega. Þótt að þú heyrir alveg Diesel rokkið utanfrá þá felur hann hljóðið rosalega vel þegar inn er komið. Mæli samt eindregið með að fá þér 06/2001 + bíl til að fá M47TU vélina, en ekki gömlu 130hö vélina. Líka rosalega góð regla að ef bíllinn er mikið keyrður að fá helst smurbók með, geta fengið að skoða hana fyrir kaup allavega.

Edit : ÁSTÞÓR ÞEGIÐU :lol:

Author:  íbbi_ [ Mon 02. Mar 2009 19:20 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

flestir 320d sem ég hef "kynnst" hafa átt það sameiginlegt að vera alveg brilliant að hverju einasta leyti nema bilanatíðni

Author:  siggik1 [ Mon 02. Mar 2009 22:01 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

já, ég hef eitthvað verið að gaufa á netinu og hef verið að sjá að það þyrfti að kíkja á bínurnar í 100þ km´s, veit ekki hvað er til í því

er að skoða dísela sem eru flestir facelift og eru keyrðir í kringum 120-160þús

hef smá áhyggjur með viðhaldið á þessu nefnilega, olíuverki osfr

Author:  íbbi_ [ Mon 02. Mar 2009 22:12 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

ekkert olíuverk í svona kagga,

það sem ég hef rekið mig á varðandi þessa bíla, eru gífurleg túrbo vandræði, bínurnar sjálfar að fara, sprengjandi intercoolerhosur og flr, spíssar, gangtruflanir, E46style hleðsluljós jú en þar er ekki grútabrennaranum um að kenna, seldi töluvert af nemum og flr í "samrásainnsprautunina" í þeim þegar ég var að brasa með varahluti frá bosch eins og sumir muna eftir,

það sem að hefur samt setið mest í mér varðandi t.d þær bilanir sem ég nefndi, er hversu gríðarlega kostnaðasamar þær hafa verið,

ég held í fullri hreinskilni að ég fengi mér frekar 318i, -->mín<-- reynsla er sú að þeir séu einfaldlega ódýrari í rekstri til langs tíma litið. 320d er náttúrulega afar mikil snilld í akstri, en ef hann rukkar um miklu feitari þjónustukosntað þá er eldsneytiskostnaðurinn varla að gera nógu haldbæran mun, þar sem að dieselolían er nú ennþá allavega töluvert dýrari en bensín, og s.k minni reynslu eru 316/18 E46 bílarnir mjög fínir bara varðandi eyðslu,

Author:  Svessi [ Tue 03. Mar 2009 02:33 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

Ég hef aðalega notað http://www.carsurvey.org til að skoða hvað fólki finnst um bíla sem það hefur átt eða á.

Svo er eitthvað hægt að finna á Fifth Gear síðunni: http://www.five.tv/fifthgear
Fann þetta t.d. strax:
Quote:
i have had my 52/2003 plate 320d touring for 2.5 years,although its a smashing car to drive ive spent quite a lot of cash on it in the last 12 months,this includes 3xbottom ball joints(you have to replace the wish bone)not cheap,new CAT(exhaust pipe cracked below it and already been repaired once),new air flow meter(not cheap),rear wiper tends to sieze,squirt of WD40 (cheap),also,radio signal goes when heated rear screen"s switched on.
I have also had ECU remapped from150 to 183 bhp,with loads more torque and "18 MV3s it GOES and handles brill,the remap didnt affect the mpg and still get 38-42 mpg although car computer says 48-56.
Not sure how some people claim 50+ combined though.

shaun foster 24 January 2009


Svo hefur Top Gear stundum verið með survey, fann það ekki flýti og var ekki að leita meira þá:
http://www.topgear.com

Svo myndi ég benda þér á að leita að heimasíðum bílablaða, helst að þú finndir einhverja buyers guide þar.

Svo í sambandi við þessar turbínur í dísel bílunum þá virðist vera dálítið algengt að þær fari, en það er samt rosalega misjaft hvað menn segja hvenær þær hafa farið, yfirleitt er það ekki fyrst fyrr en eftir um 100 þús km akstur og svo alveg uppúr. En svo hef ég líka séð bíla sem hafa verið komnir í 250 þús km og ekkert gert nema það sem kallast eðlilegt viðhald.

Author:  Andrynn [ Tue 03. Mar 2009 17:51 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

Pabbi á svonna 320 D árgerð 2002 og hann er kominn í rétt rúma 260.000 km og það sem búið er að gera við hann er að skipta um túrbínu, var gert í 230.000 og í 245.000 var convertorinn tekinn upp

og það eina sem er að hrjá þennann bíl núna eru glóðarkertin




þegar túrbínan fór hjá honum þá leitaði hann að einhverju um þetta á netinu og þá hafa túrbínurnar verið að fara frá 100.000 og convertorinn um 200.000 minnist mig

Author:  AntiTrust [ Wed 04. Mar 2009 03:34 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

Þegar þú talar um convertor, ertu þá að tala um hvarfakút?

Author:  Alpina [ Wed 04. Mar 2009 06:45 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

AntiTrust wrote:
Þegar þú talar um convertor, ertu þá að tala um hvarfakút?


neiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii :argh: :argh:

Author:  Andrynn [ Wed 04. Mar 2009 09:12 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

convertor þjónar samahlutverki og kúpling í beinskiptum bílum

það sem gerist er að lock-op ið slitnar og convertorinn hættir að læsa sér á endanum,
Lock-op ið læsir convertornum þannig að það snýst jafn hratt útúr honum eins og inní hann og þegar lock-op ið fer að sltina þá lýsir það sé með leiðinda víbringi.

og þetta getur haft slæmar afleiðingar því að þá kemst svarf í olíuna á skiptingunni og þá getur dæluhúsið fyrir smurolíudæluna fyrir skiptinguna rifið sig og það er BAAAARA vesen að lenda í því hefur maður heyrt.

Author:  gunnar [ Wed 04. Mar 2009 10:14 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

Það virðist nú vera BAAAARA mikið vesen á þessum bílum.

Get sagt fyrir mitt leyti að ég er ekki maður í rekstrarkostnað á svona bíl alla vega næstu 5 árin :shock:

Maður hefði nú haldið að reynt hefði verið að hafa endinguna á þessum bílum í lagi þar sem þetta er auðvitað keyrt í döðlur á autobahn úti.

Author:  ValliFudd [ Wed 04. Mar 2009 10:17 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

Það sem ég veit um þá, er að þetta eru nokkrir hlutir sem þarf að fylgjast aðeins með.. Og ef það er gert, eiga þetta að vera fínustu bílar..
Bróðir minn fann langan þráð, tugi/hundruði bls. um 320d e46 :) Allir virtust vera með sömu vandamálin..
Bið hann að pósta honum..

Author:  Einarsss [ Wed 04. Mar 2009 10:18 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

Lenti ekki í neinu veseni á mínum gamla 320d touring 2004 árg, reyndar bara ekinn 135k þegar ég seldi hann minnir mig.

en úff hvað ég er ánægður að hafa náð að selja hann í október :shock:

Author:  IvanAnders [ Wed 04. Mar 2009 19:41 ]
Post subject:  Re: Dísel uppls

Benzin->Dieselkraftstoff

Þetta agalega tog og fína eyðsla kostar BARA fyrir rest.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/