Page 1 of 2

Analog klukka

PostPosted: Fri 27. Feb 2009 10:22
by Zed III
Er einhver hér sem veit hvað klukkan úr E30 er mikil í þvermáli ?

Ég ætla að setja analog klukku hjá mér og hef 60mm gat í mælaborðinu sem ég vill nota. Ég tými eiginlega ekki að borga 35þúsund fyrir orginal klukku hjá B&L.

Ef einhver hefur aðra hugmynd með svona klukku þá endielga látið flakka. Gæti þetta t.d. verið til í N1 ?

Re: Analog klukka

PostPosted: Fri 27. Feb 2009 14:13
by Geirinn
Þetta geturðu eflaust fengið hjá einhverjum spjallverjanum á sæmilegum prís, þ.e. klukkuna sjálfa, notaða :)

Re: Analog klukka

PostPosted: Fri 27. Feb 2009 15:19
by Jón Ragnar
Geirinn wrote:Þetta geturðu eflaust fengið hjá einhverjum spjallverjanum á sæmilegum prís, þ.e. klukkuna sjálfa, notaða :)



Já allir æstir í að skipta þessu út

Re: Analog klukka

PostPosted: Fri 27. Feb 2009 15:32
by IceDev

Re: Analog klukka

PostPosted: Fri 27. Feb 2009 15:52
by Zed III
Wicket, IceDev !!

ég reyni að ná þessari.

Skulda þér knús

Re: Analog klukka

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 10:43
by Zed III
Vann þetta, kostar með sendingu til Shopusa 36$. Aðeins skrárra en 35 þúsund hjá umboðinu en samk fokdýrt þegar allt er tekið saman, tollur og slíkt.

Nú er spurning hvort ég geti tengt olíumælinn sem fylgir með..

Re: Analog klukka

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 10:47
by Einarsss
væntanlega ekki olíuhita nemi hjá þér, spurning hvort þú gætir ekki keypt svoleiðis frá t.d autometer eða vdo.

Re: Analog klukka

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 11:08
by IceDev
DrWho wrote:Vann þetta, kostar með sendingu til Shopusa 36$. Aðeins skrárra en 35 þúsund hjá umboðinu en samk fokdýrt þegar allt er tekið saman, tollur og slíkt.

Nú er spurning hvort ég geti tengt olíumælinn sem fylgir með..



Til hamingju :)

Re: Analog klukka

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 11:23
by Zed III
einarsss wrote:væntanlega ekki olíuhita nemi hjá þér, spurning hvort þú gætir ekki keypt svoleiðis frá t.d autometer eða vdo.


Það væri nú skemtilegt að fá þetta hérna heima. Veit einhver hvort svona skynjari sé í m50b25 vélum ?

Re: Analog klukka

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 11:24
by Einarsss
gætir möglega fengið bara nemann í VDO niðrí borgartúni eða N1(bílanaust)

Re: Analog klukka

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 11:38
by Zed III
einarsss wrote:gætir möglega fengið bara nemann í VDO niðrí borgartúni eða N1(bílanaust)


Ahh skil.

Hvernig er annars að tengja þetta, þar maður ekki að koma nemanum fyrir inní vélinni. Líst í sjálfu sér ekki rosalega vel á að "útbúa" gat fyrir skynjarann á vélinni.

Re: Analog klukka

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 11:55
by Einarsss
Getur sett þetta í olíupönnuna, spurning hvort þetta sé electric mælar eða mechanical

Re: Analog klukka

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 12:25
by Zed III
cool, kanna þetta með pönnuna nánar. Takk kærlega fyrir hjálpina.

Maður er alltaf að læra.

Re: Analog klukka

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 12:30
by arnibjorn
DrWho varstu búinn að gera einhvern þráð um bílinn þinn?? :)

Re: Analog klukka

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 12:47
by Zed III
Nei, ég var reyndar ekki bùinn ad setja upp thràd fyrir bilinn. Thetta er I bitum hér og thar.