bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Styttist í sumarið, eru menn reddí??
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=35230
Page 1 of 10

Author:  arnibjorn [ Tue 24. Feb 2009 09:40 ]
Post subject:  Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Jæja núna fer alveg að koma mars strákar, sumarið svo gott sem komið :wink:

Hvað eru menn að gera og græja akkúrat núna til að klára og hvað stefna menn á að gera í sumar? Ætla menn að taka þátt í driftinu, rallykross, kvartmílu eða bara bjórþambi? :D

Ég held að þetta sumar verði alveg legendary og ég ætla að sjá til þess að krafturinn verði mjög virkur. Það er engin kreppa hjá kraftinum! :)

Sjálfur þá er ég alveg að vera búinn. Smá dútl eftir, aðallega útlitslega.

Koma svo... hvar eru menn staddir og hvað er eftir af projectunum?

Kv. Einn spenntur fyrir sumrinu! :)

Author:  Dóri- [ Tue 24. Feb 2009 09:50 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

arnibjorn wrote:

2 mán í sumarið, ekkert stress, ég fer að byrja að vinna í bílnum bráðum :oops:
verð n/a í sumar.

Author:  ValliFudd [ Tue 24. Feb 2009 09:51 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Bjórþamb hér.. En aldrei að segja aldrei..

Author:  Einarsss [ Tue 24. Feb 2009 09:53 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Minns er alveg að verða ready, Þarf að dunda mér smá innan í bílnum, setja hátalara afturí, tappa í götin á hurðarspjöldunum þar sem þau komu úr bíl með manual rúðum :lol: , festa einhverja lista, finna rafmagnsviftu líklega og ef ég nenni að pólera lippin á felgunum.

Er sammála um að þetta sumar verði legendary og verður munað eftir um ókomin ár!

Author:  gstuning [ Tue 24. Feb 2009 10:02 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Myndi segja að hlutirnir gangi vel fyrir sumarið.
Get ekki unnið í íslands bílnum fyrr enn í lok maí :)
Enn það verður þá bara unnið hart fyrir bíladaga.

Spurning svo hver verður með kraftmesta E30 bílinn í sumar?
:lol:
Enn það verður bókað 400hö+ bíll.

Rauði 4cyl heima verður svo notaður driftið þangað til ég fer heim.
Þá tekur eitthvað spennandi sumar við án efa 8)

Author:  srr [ Tue 24. Feb 2009 10:04 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Sumarið hjá mér....verður mjög líklega með tveimur skemmtilegum bílum.

E28 533iA 1982 <-- KRÚSER
E28 535i 1987 <-- LEIKTÆKI

533iA þarfnast lokafrágangs, aðallega að innan, púsla saman innréttingu etc....og setja m30b32 aftur ofan í, hann er bara b28 núna :lol:
Einnig fer undir hann aftur subframe með nýjum fóðringum, spyrnur með nýjum fóðringum og nýjum hjólalegum.
LSD verður svo skellt undir, 3.73 hlutfall
Svo verður hann bara eðal krúserinn í sumar. Leður, lúga, A/C etc....
Geri ráð fyrir honum á götuna eftir 1-2 mánuði.

535i fær vonandi nýja fjöðrun fyrir sumarið....það er sennilega eina sem ég geri fyrir hann að svo stöddu.
Geri ráð fyrir að taka þátt í götumílunni á Akureyri á honum ásamt því að taka frumraun mína á akstursbrautinni :)
Honum vantar heilsprautun....en það er ekki alveg mögulegt strax.
Hann fær að koma úr vetrarfríi um leið og ALLT frost, hálka, salt etc er bókað FARIÐ :)

Author:  gunnar [ Tue 24. Feb 2009 10:15 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Ohhh ekki segja þetta, ég vildi að ég gæti unnið í E30 hjá mér fyrir sumarið :argh:

Annars eru plönin ekkert stórvægileg,,, svona miðað við hvað hefur gengið á hjá manni í gegnum tíðina með bílinn.

- Klára að setja IE swaybars undir
- Klára að fitta strutbarið í húddið.. Passar EKKI vel :|
- Stilla fjöðrun / hjólastilling
- Smíða hitaskjöld fyrir síu
- Reyna að komast áfram í Mtech I væðingunni... Má samt alveg bíða ef ég kemst út að keyra fyrr.
- Fara yfir driflínu og ganga úr skugga um að bíllinn sé í standi fyrir sumarið

Ég held að þetta sé svona listinn sem ég þarf að fara í gegnum áður en ég get farið að nota bílinn að einhverju viti..

Sumarið verður bara í lagi \:D/ \:D/

Author:  Daníel [ Tue 24. Feb 2009 10:19 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Sé ekki fram á að minn verði á götunni í sumar. Ætla frekar að gefa mér tíma í að klára allt sem ég ætla mér með hann. Þarf að gera við tjón sem hann varð fyrir um jólin og svona og liggur í sjálfu sér ekki á að koma honum í gagnið.

Sjáum svo bara hvernig sumarið 2010 kemur út! :mrgreen:

Author:  Röggi R900 [ Tue 24. Feb 2009 10:20 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Umm, ég ætla að reyna að leika mér meira á Saab R900 Turbo

er búinn að strípa alla innréttingu úr honum að aftan og orðinn frekar léttur

Ætla að taka þátt í kvartmílu allavega og götumílunni hugsanlega, svo læt ég sjá mig á leikdögum, oftar á Saab en hugsanlega BMW líka

Author:  Danni [ Tue 24. Feb 2009 11:01 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Ég fer að fara að kaupa mér sumardekk undir 540, ásamt hvarfakútum. En síðan þarf ég að koma honum í gegnum skoðun sem ætlar að reynast vesen vegna þess að það eru filmur frammí sem mig langar ekki að taka úr, bara ljótt að sjá bíla með filmur afturí en ekki frammí :argh:

Svo þegar það fer að koma sól og gott veður ætla ég að keyra Hvalfjörðinn og aðrar leiðir sem er örugglega skemmtilegt að keyra á góðum bílum :D

En ég mun ekki komast á bíladaga vegna vinnu, það finnst mér mesti bömmerinn :(

Author:  Geirinn [ Tue 24. Feb 2009 12:04 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Danni wrote:
Ég fer að fara að kaupa mér sumardekk undir 540, ásamt hvarfakútum. En síðan þarf ég að koma honum í gegnum skoðun sem ætlar að reynast vesen vegna þess að það eru filmur frammí sem mig langar ekki að taka úr, bara ljótt að sjá bíla með filmur afturí en ekki frammí :argh:

Svo þegar það fer að koma sól og gott veður ætla ég að keyra Hvalfjörðinn og aðrar leiðir sem er örugglega skemmtilegt að keyra á góðum bílum :D

En ég mun ekki komast á bíladaga vegna vinnu, það finnst mér mesti bömmerinn :(

Er lögbundið að vera með fram-hliðarrúður yfir höfuð ?

Tekurðu þær ekki bara úr ? Eða öryggið fyrir rúðumótorinn ?

Author:  SteiniDJ [ Tue 24. Feb 2009 12:22 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Bíð spenntur eftir sumrinu. Ef það verður ekki öskrandi rigning, þá held ég kannski bílnum mínum hreinum í meira en 30 mínútur. :( Annars er það bara vinna, vinna, vinna og vinna, svo maður eigi efni á einhverjum breytingum í sumar. :D

Author:  sh4rk [ Tue 24. Feb 2009 12:23 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Ég er allavega klár fyrir sumarið með 4 stk 265/40r17 dekk 8)

Author:  Dr. E31 [ Tue 24. Feb 2009 12:31 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Smá pickles ennþá í ofurtækinu (þ.e. Capri SC). Hann ætti að verða reddy fyrir fyrsta rönn. 8)

Author:  Einarsss [ Tue 24. Feb 2009 12:33 ]
Post subject:  Re: Styttist í sumarið, eru menn reddí??

Dr. E31 wrote:
Smá pickles ennþá í ofurtækinu (þ.e. Capri SC). Hann ætti að verða reddy fyrir fyrsta rönn. 8)

ertu með myndir af þessu projecti hjá þér? Fór ekki heddpakkning einhvern leikdaginn annars?

Page 1 of 10 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/