bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Þriðji dagur jóla með sköfu milli hjóla...
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=3516
Page 1 of 1

Author:  bebecar [ Wed 26. Nov 2003 09:28 ]
Post subject:  Þriðji dagur jóla með sköfu milli hjóla...

Bla bla bla, mig langaði bara að ríma.

Nú er búin að vera snjór í þrjá daga - þá koma aukaverkanir í ljós. Ekki er hægt að keyra eina einustu götu án þess að hlusta á "kling - klang" í hlífðarpönnunni undir bílnum.

Nú er ég búin að ryðja götur bæjarins ókeypis í þrjú ár, á ég ekki að senda vegagerðinni reikning?

Author:  Jss [ Wed 26. Nov 2003 09:30 ]
Post subject:  Re: Þriðji dagur jóla með sköfu milli hjóla...

bebecar wrote:
Bla bla bla, mig langaði bara að ríma.

Nú er búin að vera snjór í þrjá daga - þá koma aukaverkanir í ljós. Ekki er hægt að keyra eina einustu götu án þess að hlusta á "kling - klang" í hlífðarpönnunni undir bílnum.

Nú er ég búin að ryðja götur bæjarins ókeypis í þrjú ár, á ég ekki að senda vegagerðinni reikning?


Jú, sendu vegagerðinni reikning og mátt alveg endilega ryðja götuna á undan mér ;)

Mátt síðan láta mig vita hvernig gengur með vegagerðina :D

Heyri reyndar bara "kling - klang" þegar einstaka klakadröngull rekst undir bílinn (í hlífarnar undir honum)

Author:  bebecar [ Wed 26. Nov 2003 09:40 ]
Post subject: 

Það er eins gott að hafa þessa hlífðarpönnu undir honum, hann er enn lægri en M5 bíllinn...

Hann rekst meira að segja niðurundir á leiðinni af Hringbrautinni þar sem maður beygjir inn á Sóleyjargötu þó það sé all autt.

Author:  Jón Þór [ Wed 26. Nov 2003 13:24 ]
Post subject: 

Þið hafið það nú gott miðað við mig... hjá mér er helvítis framsvuntan að rekast niður allsstaðar! :evil: Ég skal senda borginni svona reikning með þér :lol:

Author:  bebecar [ Wed 26. Nov 2003 13:38 ]
Post subject: 

Sem betur fer er maður ekki að skemma neitt - en framsvuntan þolir nú ekki endalaust að skafa íshrönglið þó hlífðarpannan taki endalaust við.

Author:  Stebbtronic [ Wed 26. Nov 2003 14:56 ]
Post subject: 

já svona er þetta stebbinn var að keyra og klessti bara bensann sinn greyið Opel astran fór bara í drasl. ég hitti akkúrat á hurðarpóstinn milli fram og afturhurðarinnar og ég held bara að þessi astra fari ekki á götunna aftur en benzinn gamli tók bara brettið af og barði það út með hamri og nýtt ljós og áfrm gengur hann.

Author:  bebecar [ Wed 26. Nov 2003 15:12 ]
Post subject: 

Uss uss - voðaleg óheppni var þetta - Hvaða Benz var þetta sem þú varst á?

Author:  Stebbtronic [ Wed 26. Nov 2003 16:28 ]
Post subject: 

280c "77" antík kerran mín en hann er samt eins og skriðdreki, og eyðir eins og skriðdreki.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/