Page 1 of 2

Afhverju BMW

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 12:10
by Iceman
1 spurning. Afhverju veluru BMW frekar en annað? :?:
Með smá rökstuðning :wink:

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 12:25
by bebecar
Einfalt. Sambland af notagildi og hagstæðu verði í bland við performance sem fæst ekki nema í mun dýrari bílum. Þá á ég auðvitað við það að með samskonar layout þá færðu ekki sambærilegt performance nema í mikið dýrari bílum.

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 12:28
by bebecar
Hvaða bíla getur maður keypt á undir milljón sem eru með góða aksturseiginleika, afturhjóladrif, 6 strokka vél og nóg af hestum??? Það má nefna eitt einfalt dæmi.

Farðu á http://www.mobile.de og skoðaðu úrvalið af bílum á 5000 evrur með blæju og 150+ hestöfl... það kemur ekkert annað til greina í þeim flokki t.d. en BMW E30 325... :D

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 12:29
by Stefan325i
Persónulega valdi ég BMW þegar ég fékk mér minn, vegna mikillar BMW dellu frá æsku, og bíllin sem ég keipti var með öllu því sem ég vildi fá í bíl.

svo eru liðinn 7 ár þannig að ég get sagt.
Vegna aksturs ánæju.
Lágri bilanatiðni
Útliti
Kraft og afturdrif

Ef ég væri að kaupa mér nyjan Bíl myndi ég velja BMW vegna þess að ég treysti þessum bílaftamleiðanda, og vélaþróunn hja þeim er framúrskatandi. Ofur falleg hönnum, RWD, þetta eru lúxus bílar fyrir bílaáhugamanninn sem fynst gaman að keira gefa og jafnframt geta tekið fjölskylduna uppí sveit að elta gamla geit :)

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 12:33
by bebecar
Ég veit ekki hvort ég myndi velja BMW ef ég væri að kaupa nýjann, mér finnst það líklegt samt sem áður. Ef það kemur BMW 2 lína þá held ég að það væri næstum 100% - back to basics...

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 12:51
by Jss
Er nú bara mjög sammála bebecar og Stefan325i, góðir bílar, mikil akstursánægja, mjög fallegir, afturhjóladrifnir, góður kraftur án mikillar eyðslu o.s.frv.

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 14:23
by BMWaff
Það er nú svoldið fyndið að áður en ég fékk mér minn þoldi ég eiginlega ekki þessa Bimma og Bimma nörda sem áttu svoleiðis, fannst þeir alltof over Rated... Þangað til að vinur minn keypti sér 318is, þegar ég fékk að keyra hann þá varð ég strax einn af þessum veiku BMW fan-um. Svo keypti ég minn 320i og varð bara "in Love"... Svo að fá að rúnta á 5**, 7** þá verður maður alveg veikur. Á næstunni er ég að fara að kaupa bíl, og það er bara eitt merki sem kemur til greina... ?M? (GMC) :D

nei nei... audda BMW, mér langar ekki í neitt annað (þá meina ég ekki einusinni Porka eða svoleiðis þvælu)

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 14:36
by bebecar
Ég var afskaplega mikið á móti BMW líka þangað til ég prófaði einn slíkann skömmu eftir að ég fékk prófið - það er ekki aftur snúið.

En auðvitað set ég markið hærra og stefni á Porsche...

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 14:44
by BMWaff
Held að þeir sem drulla sem mest yfir BMW og segja að það sé ekkert betri bílar en Toyota og Suzuki, bara miklu dýrarim hafa bara aldrei prófað að keyra BMW :D

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 18:37
by BMW 323I
BMWaff wrote:Held að þeir sem drulla sem mest yfir BMW og segja að það sé ekkert betri bílar en Toyota og Suzuki, bara miklu dýrarim hafa bara aldrei prófað að keyra BMW :D



kannast við þetta, þetta fólk veit ekki afhverju það er að missa :?

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 21:20
by íbbi_
ég hef reyndar aldrei átt bmw, en það sem mér líkar við bmw eru skemmtilegar vélar og maður fær vissa gæða tilfinningu þegar maður keyrir þá.. skemmtilegir akstursbílar.

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 21:27
by Jss
BMW 323I wrote:
BMWaff wrote:Held að þeir sem drulla sem mest yfir BMW og segja að það sé ekkert betri bílar en Toyota og Suzuki, bara miklu dýrarim hafa bara aldrei prófað að keyra BMW :D



kannast við þetta, þetta fólk veit ekki afhverju það er að missa :?


Ég geri mitt besta til að láta fólk vita af hverju það er að missa :D

PostPosted: Tue 25. Nov 2003 22:10
by fart
Sumt verður ekki útskýrt....

BMW fyrir mig takk fyrir.

....

PostPosted: Wed 26. Nov 2003 19:08
by Wolf
Maður getur ekki hætt þegar maður er búinn að eiga 1

PostPosted: Wed 26. Nov 2003 19:45
by hlynurst
Því er ég alveg sammála! :wink: