bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW og Benz ræða samvinnu https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=35013 |
Page 1 of 1 |
Author: | Jss [ Sun 15. Feb 2009 15:18 ] |
Post subject: | BMW og Benz ræða samvinnu |
Var að sjá þessa grein á vef viðskiptablaðsins: http://www.vb.is/frett/2/52789/bmw-og-benz-raeda-samvinnu vb.is wrote: Þýsku bílaframleiðendurnir og keppinautarnir BMW og Benz ræða nú um samvinnu sín á milli og Frankfurter Allgemeine Zeitung segist hafa heimildir fyrir því að fyrstu samningar þessa efnis séu tilbúnir til undirritunar.
Allt það sem notandi bílsins verður ekki var við og skaðar þar með ekki hvora bílategund fyrir sig verður mögulega unnið í samvinnu, að því er FAZ hefur eftir háttsettum yfirmönnum beggja fyrirtækja. Segja má að BMW og Benz hafi verið höfuðkeppinautar en bílaframleiðendur hafa fundið verulega fyrir kreppunni og hafa þess vegna orðið að grípa til óvenjulegra aðgerða. Þýsku framleiðendurnri hafa ekki farið varhluta af ástandinu og framleiðandi Benz hefur til að mynda tvisvar á þessu reikningsári þurft að lækka spá sína og jafnvel það virðist ekki ætla að duga, að sögn FAZ. Magnað ef satt reynist, þarf ekki að skaða ímynd félaganna eða samkeppni, gæti mögulega dregið mjög mikið úr þróunarkostnaði ýmissa hluta og kerfa í bílana. Í það minnsta finnst mér þetta hljóma vel, þ.e. ef þeir passa uppá að halda sérkennum merkjanna áfram. |
Author: | elli [ Sun 15. Feb 2009 15:28 ] |
Post subject: | |
Þetta hljómar bara vel. Þeir hafa nú verið eitthvað að stinga saman nefjum með þróun á vetnisbílum... veit svo sem ekkert hvað hefur komið út úr því annað en fréttatilkynningin. |
Author: | Zatz [ Sun 15. Feb 2009 18:54 ] |
Post subject: | TTT |
ef þetta verður samþykkt og þessir 2 risar passa vel sama mun þetta alveg pottþétt enda vel! ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |