BMW og Benz ræða samvinnu

Hér skal spjalla um BMW.

BMW og Benz ræða samvinnu

Postby Jss » Sun 15. Feb 2009 15:18

Var að sjá þessa grein á vef viðskiptablaðsins:

http://www.vb.is/frett/2/52789/bmw-og-benz-raeda-samvinnu

vb.is wrote:Þýsku bílaframleiðendurnir og keppinautarnir BMW og Benz ræða nú um samvinnu sín á milli og Frankfurter Allgemeine Zeitung segist hafa heimildir fyrir því að fyrstu samningar þessa efnis séu tilbúnir til undirritunar.

Allt það sem notandi bílsins verður ekki var við og skaðar þar með ekki hvora bílategund fyrir sig verður mögulega unnið í samvinnu, að því er FAZ hefur eftir háttsettum yfirmönnum beggja fyrirtækja.

Segja má að BMW og Benz hafi verið höfuðkeppinautar en bílaframleiðendur hafa fundið verulega fyrir kreppunni og hafa þess vegna orðið að grípa til óvenjulegra aðgerða. Þýsku framleiðendurnri hafa ekki farið varhluta af ástandinu og framleiðandi Benz hefur til að mynda tvisvar á þessu reikningsári þurft að lækka spá sína og jafnvel það virðist ekki ætla að duga, að sögn FAZ.


Magnað ef satt reynist, þarf ekki að skaða ímynd félaganna eða samkeppni, gæti mögulega dregið mjög mikið úr þróunarkostnaði ýmissa hluta og kerfa í bílana. Í það minnsta finnst mér þetta hljóma vel, þ.e. ef þeir passa uppá að halda sérkennum merkjanna áfram.
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby elli » Sun 15. Feb 2009 15:28

Þetta hljómar bara vel.

Þeir hafa nú verið eitthvað að stinga saman nefjum með þróun á vetnisbílum... veit svo sem ekkert hvað hefur komið út úr því annað en fréttatilkynningin.
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

TTT

Postby Zatz » Sun 15. Feb 2009 18:54

ef þetta verður samþykkt og þessir 2 risar passa vel sama mun þetta alveg pottþétt enda vel! :wink:
Zatz
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 486
Joined: Sat 19. Apr 2008 19:36
Location: HFJ


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests