Page 1 of 2

Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Thu 05. Feb 2009 15:22
by toms
Image

Leðurlitun - húsgögn og bílar !!


Toms ehf. - leðurlitun, sérhæfir sig í litun á leðursætum í bílum og leðurhúsgögnum.
Litum leður sem orðið er snjáð eða upplitað. Einnig getum við lagað rispur og bletti.
Notum efni sem viðurkennd eru af öllum helstu húsgagnaframleiðendum í heiminum.
Seljum hreinsiefni og leðurnæringu sem nauðsynlegt er að bera á til að lengja líftíma leðursins.


Heillitun á sófasetti

Image
Fyrir
Image
Eftir

Blettur í sæti á bíl

Image
Fyrir

Image
Eftir

Óli Geir
s: 8241011

Þorgeir
s:8926890

Við erum bestir

ttt

PostPosted: Mon 16. Feb 2009 09:12
by toms
upp á topp

PostPosted: Mon 16. Feb 2009 09:17
by arnibjorn
Við leyfum fyrirtækjum vanalega ekki að auglýsa inná síðunni okkar nema að Bmwkraftur fái einhvern afslátt.

Fáum við einhvern afslátt? :)

Leðurlitun

PostPosted: Tue 17. Feb 2009 09:34
by toms
Sæll,

Við erum vonandi að auglýsa þjónustu sem að þig getið nýtt ykkur,við erum bestir í leðurlitun á Íslandi og mjög sanngjarnir í verði.
Auðvitað getum við gert eitthvað extra fyrir ykkur,bara að mæta á staðinn við erum í samningastuði :-)

kv.

Óli Geir
s:824-1011
Krókháls 4
110 Reykjavík

Re: Leðurlitun

PostPosted: Tue 17. Feb 2009 12:09
by gardara
toms wrote:Sæll,

Við erum vonandi að auglýsa þjónustu sem að þig getið nýtt ykkur,við erum bestir í leðurlitun á Íslandi og mjög sanngjarnir í verði.


Það er ekki verið að spara stóru orðin.... Vona að þetta sé satt :)

Re: Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Thu 02. Apr 2009 21:28
by toms
Gefur leðrinu nýtt líf hvort sem það er í bílnum eða heima í stofu.

Image

Re: Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Fri 03. Apr 2009 11:34
by SteiniDJ
Var bara að velta því fyrir mér, er hægt að lita svart leður rautt? Eða er það alveg no no?

Re: Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Fri 03. Apr 2009 20:12
by toms
sæll,það er möguleiki að breyta um lit,ég verð að sjá leðrið.

Re: Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Sat 04. Apr 2009 18:46
by lacoste
SteiniDJ wrote:Var bara að velta því fyrir mér, er hægt að lita svart leður rautt? Eða er það alveg no no?

Rautt,,,,

Rautt er ,,bara,, ---> 8)

Eins og meistari Alpina myndi orða það.

Re: Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Sat 04. Apr 2009 22:34
by Zed III
hversvegna myndir þú gera þetta ? hvað ef þú fílar svo ekki litinn

Ég er með fjólublátt leður hjá mér og væri mega til í að hafa þetta svart (come to think of it, það er örugglega auðveldara að lita mitt rautt en þitt svarta þannig ef þú vilt swappa... ).

Image

Re: Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Sat 04. Apr 2009 23:06
by IceDev
Ég hef sagt það áður og segi enn

Þetta er baaaaaaara pimp litur á leðri!

Re: Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Sat 04. Apr 2009 23:22
by Zed III
er bara ekki að fíla mig sem pimp :?

Re: Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Sat 04. Apr 2009 23:33
by jens
Þú mátt bara ekki lita þetta leður, svo flott.

Re: Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Sun 05. Apr 2009 12:12
by Zed III
Það fer fyrr en seinna, ég er ekki að fíla þetta.

Annaðhvort verður nýtt leður pantað á sætin að utan, þessi lituð eða stólunum swappað út.

Re: Leðurlitun,Heillitun eða blettun

PostPosted: Sun 05. Apr 2009 17:53
by SteiniDJ
DrWho wrote:Það fer fyrr en seinna, ég er ekki að fíla þetta.

Annaðhvort verður nýtt leður pantað á sætin að utan, þessi lituð eða stólunum swappað út.


Menn hrósa þessum lit á fullu, það hlýtur einhver af þeim vilja kaupa þetta leður! :tease: