bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Fást varahlutir í gamlar sjöur...? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=345 |
Page 1 of 2 |
Author: | Þórður Helgason [ Wed 20. Nov 2002 23:55 ] |
Post subject: | Fást varahlutir í gamlar sjöur...? |
Sælir strákar og stelpur vona ég. Hvar er helst að leita að t.d. framdempurum í gömlu sjöuna mína, og etv. krómbrettaköntum? Ég þarf aðeins að taka til hendinni, var að eignast hana og vantar smotterí. Sömuleiðis þokuljósin í svuntuna og etv. fleira, t.d. plasthlíf framanvið topplúguna, ég hef góða reynslu af slíku. Frábært að rekast á þennan vef, ég hef átt gamla BMWa meira og minna síðan 1980 og var strax viss um að ég var á réttri braut. ![]() |
Author: | saemi [ Thu 21. Nov 2002 00:08 ] |
Post subject: | |
Blessaður Þórður. Gaman að heyra af þér, ég vissi ekkert um þessa bíla. það væri gaman að fá meiri upplýsingar varðandi þessa bíla sem þú átt, og ekki sakaði ef þú ert með myndir líka. Ég á slatta til af þessu dóti. kíktu bara á vefinn minn www.islandia.is/smu Dempara... sko.. mín reynsla er nú bara að setja nýja dempara í, og þá er bara spurningin hvað þú vilt. Ódýrast er sennilega að fara í Bílanaust eða eitthvað soleizz og kaupa Monroe eða svipað. Notaða (sem ég mæli nú ekki með) á ég sennilega til. Best er náttúrulega að kaupa Bilstein, það er original í "performance" bílum frá BMW. Næstbest er Sachs. Það er original equipment í þessum bílum. Ég er með Bilstein í bæði 635csi og 745i bílnum mínum, og mjög sáttur. Krómbrettakanta á ég til, en þeir eru notaðir. Ef þú vilt nýja, er ráð að fylgjast með Ebay.de, ég hef séð þá vera að koma þar upp við og við á góðum prís. Þokuljósin... kaupa ný, nema þú sért svo heppinn að finna e-r notuð, en þau eru langflest brotin á þessum gömlu bílum. hægt er að fá glerið sér, ef það er bara það sem er brotið hjá þér. Þetta eru Hella ljós. Vona að þetta hjálpi, Sæmi |
Author: | Kull [ Thu 21. Nov 2002 00:09 ] |
Post subject: | |
Sæll og velkominn. Því miður get ég ekki hjálpað þér, nema kannski benda á partasöluna Bílstart, en þessi fyrsta setning þín kom mér til að hugsa. Eru nokkrar stelpur búnar að skrá sig í klúbbinn?? |
Author: | DtDesing [ Fri 22. Nov 2002 16:55 ] |
Post subject: | |
bessaður þórður ekkert yfirvaraskegg en bimmin þinn er flottur og sá rööndótti flottastur alltaf gaman að sitja í honum og aftaná þeim tvíhjóla en ég get boðið þér eingongu sprautanir slreitingar og kitt get smíðað ný braetti eftir mjög illa förnum gömlum ,dtdesign |
Author: | Þórður Helgason [ Wed 04. Dec 2002 00:25 ] |
Post subject: | Varahlutir |
Sko, ég var að eignast þessar sjöur. Þann fyrri, 735i skráður árg 1980, en er fimm gíra beinsk. sem kom ekki fyrr en 82, er mér tjáð, eignaðist ég um daginn í skiptum fyrir byssu. Hinn, þessi 733i, 77árg. var bara með í kaupunum, vantar afturbretti og sitthvað smálegt fleira. En hann var með ÞREM krómbrettaköntum. Mig vantar semsagt hægri krómkantinn að aftan. Þessi 733i er með flottum álfelgum (390mm!!) og spoilerum að framan og aftan. Sennilega færi ég þá yfir á hinn og þarf þá einhver ljós í framspoilerinn. Annars er þetta allt í bið hjá mér núna, ég setti þann 735 bílinn inn þegar snjóaði og löggan fór að bögga mig vegna óskoðunar. Veit einhver um 390mm dekk á eðlilegu verði? Ég hef því miður ekki hjá mér VIN númerið af 735i en ég næ því kannski á morgun, vitiði um hvað maður getur tékkað á þessu með árgerðina? Þessir bíll var fluttur inn 1987 og þá var oftast logið til um árgerð vegna tolla. Miðstöðvartakkarnir eru ekki snúnir, heldur þrýstitakkar fyrir allar mögulegar og ómögulegar stillingar, það breyttist einhvern tíma um þetta leyti. Meira síðar. |
Author: | Alpina [ Wed 04. Dec 2002 00:43 ] |
Post subject: | 735 |
735 bíllinn er örugglega eftir 06/82 fyrst hann er með vacum tökkum átti sjálfur ,,82,, 728iA Sv.H. |
Author: | bebecar [ Wed 04. Dec 2002 09:36 ] |
Post subject: | |
Velkominn á svæðið Þórður. Það væri gaman ef þú sæir þér fært að birta myndir af og segja frá bílunum þínum nánar. Með varahlutina get ég því miður ekki hjálpað þér, en ég fylgist vel með öllum þessum þráðum þar sem menn eru að leita þar sem ég stefni á eldri BMW í framtíðinni (eitthvað fyrir 1980). |
Author: | Þórður Helgason [ Wed 04. Dec 2002 13:15 ] |
Post subject: | 735i árg ? |
Win númerið á 735i sem er skráður árg 1980 (gott fyrir skattinn) er WBA66310007302483 skv. skráningarstofunni. (las ekki á bílinn sjálfan) Ef einhver getur lesið eitthvað útúr þessu, vinsamlega gerið það og látið vita hér. Þórður H. |
Author: | saemi [ Thu 05. Dec 2002 11:18 ] |
Post subject: | |
Sælir Þórður. Sko, varðandi þessa sjöu sem þú ert með. Þá er þessi bíll skráður sem 1980 árgerð, innfluttur í mai 1986. Númer innlögð síðan okt 2000. Þegar bílnum er flett upp skv. númerinu á disk frá BMW, þá segir að þessi bíll sé 732i bíll! Ég fæ hins vegar ekki árgerðina á honum upp. Er vélin í honum með innsogsgreinum sem eru allar í 180°, eða er hann með nýrri tegundinni af manifoldi ? Mig grunar nú bara að bíllinn sem þú sért með sé ekki original 735i bíll beinskiptur! Varðandi vacuum takkana, þá voru allir bílarnir að mér vitanlega með þessum vacuum tökkum. það eru hins vegar 2 útgáfur. Útgáfan sem er með loftkælingu lítur svona út ![]() en þegar ekki er loftkæling er útgáfan svona: ![]() Þannig að ég myndi nú ekki segja að hann sé örugglega eftir 1982 fyrst hann sé með vacuum tökkum. Ég hef allavega séð eldri bíla með þessum tökkum, og hef aldrei séð 7-línu bíla sem eru ekki með tökkum! Það sem breytist hins vegar 82-83 er framendinn á bílunum, ásamt afturfjöðruninni ofl. Krómkanturinn.. ég á hann ábyggilega til. Ég á svo 390mm dekk fyrir þig á slikk, eins og þú getur séð hér á vefnum http://www.bmwkraftur.com/spjall/viewtopic.php?t=144 Með kveðju, Sæmi |
Author: | saemi [ Thu 05. Dec 2002 11:19 ] |
Post subject: | |
Sælir Þórður. Sko, varðandi þessa sjöu sem þú ert með. Þá er þessi bíll skráður sem 1980 árgerð, innfluttur í mai 1986. Númer innlögð síðan okt 2000. Þegar bílnum er flett upp skv. númerinu á disk frá BMW, þá segir að þessi bíll sé 732i bíll! Ég fæ hins vegar ekki árgerðina á honum upp. Er vélin í honum með innsogsgreinum sem eru allar í 180°, eða er hann með nýrri tegundinni af manifoldi ? Mig grunar nú bara að bíllinn sem þú sért með sé ekki original 735i bíll beinskiptur! Varðandi vacuum takkana, þá voru allir bílarnir að mér vitanlega með þessum vacuum tökkum. það eru hins vegar 2 útgáfur. Útgáfan sem er með loftkælingu lítur svona út ![]() en þegar ekki er loftkæling er útgáfan svona: ![]() Þannig að ég myndi nú ekki segja að hann sé örugglega eftir 1982 fyrst hann sé með vacuum tökkum. Ég hef allavega séð eldri bíla með þessum tökkum, og hef aldrei séð 7-línu bíla sem eru ekki með tökkum! Það sem breytist hins vegar 82-83 er framendinn á bílunum, ásamt afturfjöðruninni ofl. Krómkanturinn.. ég á hann ábyggilega til. Ég á svo 390mm dekk fyrir þig á slikk, eins og þú getur séð hér á vefnum http://www.bmwkraftur.com/spjall/viewtopic.php?t=144 Með kveðju, Sæmi |
Author: | Alpina [ Thu 05. Dec 2002 18:40 ] |
Post subject: | 735 |
Soggreinin sem SAEMI er að tala um er annað hvort 180° eða að ég held ,, Z folge,, sem er önnur,, eða nýrri útgáfa af soggreinum sem BMW notaði á M-30,,, t.d. notaði ALPINA öfugt inntak á B-10 BITURBO þ.e.a.s. loftið fór ,, hinum meginn inn í gegnum soggreininna.. Sv.H. |
Author: | saemi [ Thu 05. Dec 2002 21:19 ] |
Post subject: | |
![]() gömul... var á gömlu 3.2L og fyrstu 3.5 vélunum ![]() nýrri... eins og á M30 vélunum frá c.a. 81 og uppúr |
Author: | Alpina [ Fri 06. Dec 2002 06:51 ] |
Post subject: | soggrein |
Vel gert SAEMI. |
Author: | bebecar [ Fri 06. Dec 2002 08:49 ] |
Post subject: | |
Gaman að sjá þessar myndir... það eru svipaðir takkar á miðstöðinni hjá mér, er það þá vacum??? |
Author: | saemi [ Fri 06. Dec 2002 10:16 ] |
Post subject: | |
Já.. ég hélt að allir hefðu séð þetta ... ![]() ![]() Ég er ekki viss um takkana hjá þér Ingvar. Ég bara veit ekki hvernig kerfi er í nýrri bílunum, hvort það er rafmagn eða hvað. Þetta Vacuum dæmi er svolítið sérstakt skohh.. Sæmi |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |