Page 1 of 2

Móðuvandamál

PostPosted: Fri 09. Jan 2009 23:37
by srr
Ég er að lenda í hundleiðinlegu móðuvandamáli með E28 518 '82.
Þegar ég er búinn að nota bílinn, stoppa í einhverjar mínútur....þá myndast verulega mikil móða að innan á öllum rúðum.
Hundleiðinlegt þegar maður fer svo aftur út að keyra eftir 10-15 mín, þá sér maður ekkert út fyrr en miðstöðin er búin að blása einhverju af framrúðunni....
...og er nú 27 ára gamall miðstöðvarmótor ekkert fljótur að því :lol:
Ég finn engan leka í teppunum né sætunum, þeas enginn raki.

Hvernig er þetta eiginlega að myndast ef það er ekki bleyta í bílnum?
Er þetta spurning um einhverjar síur etc ?

PostPosted: Fri 09. Jan 2009 23:50
by arni800
var eitthvað svipað hjá mér líka og það var skipt um frjókornasíu og þetta lagaðist

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 01:13
by Dr._Gizmo
athuga hvort miðstöðin sé nokkuð stillt á að taka loft innan úr bílnum og endurnýta það (hringsólun) . ef miðstöðin fær ekki nýtt loft myndast oft móða þegar inni hitinn kólnar, og ath. frjókorna síu

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 01:20
by BMWaff
Hef lent í svona 2x reyndar ekki bmw en í bæði skiptin voru það síur sem skipt var um og allt lagaðist

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 01:20
by srr
Dr._Gizmo wrote:athuga hvort miðstöðin sé nokkuð stillt á að taka loft innan úr bílnum og endurnýta það (hringsólun) . ef miðstöðin fær ekki nýtt loft myndast oft móða þegar inni hitinn kólnar, og ath. frjókorna síu

Það eru þrír sliderar.....
Einn segir til hversu mikið loft á að koma upp á framrúðu
Einn segir til hversu mikið ferskt loft kemur inn
Einn segir til hversu mikið loft á að koma á fæturna

Ég hef lokað fyrir miðjuna, því þá kemur bara kalt loft og í þessum kulda er maður ekki mikið fyrir það.

Er það vandamálið, að ég er ekki að hleypa fersku lofti inn ?

Ps. er frjókornasía í svona gömlum bíl ? 1982?

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 02:57
by birkire
Mjaka rain-x anti fog á draslið á meðan þú finnur út hvað er í gangi

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 03:23
by IvanAnders
Athugaðu hvort að drainið fyrir miðstöðina sé nokkuð stíflað.

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 12:05
by saemi
lekur nokkuð elementið? Ef svo er og það er frostlögur á rúðunni þá er þetta svona, algjört pain!

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 13:17
by hjaltib
Ég er líka að lenda í þessu með benzann hjá mér ég giskaði akkurat á elementið :cry:, en ætla að prufa að skipta um síu eins og nokkrir eru að tala um.

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 14:10
by Danni
saemi wrote:lekur nokkuð elementið? Ef svo er og það er frostlögur á rúðunni þá er þetta svona, algjört pain!


Mig grunar að þetta er að hrjá E36 hjá bróður mínum. Bíllinn fyllist mjög fljótt af móðu og svona neðst meðafram allri rúðunni myndast bara vatn! Ég lét miðstöðina blása á fullu meðan ég keyrði Reykjanesbrautina og rúðan þornaði, svo reyndi ég að þrífa rúðuna og þarna neðst þar bara var ekki séns að þrífa hana!

Er það þannig þegar elementið lekur og það er kominn frostlögur á framrúðuna eða er þetta anti-fog draslið sem hann setti á þegar bíllinn byrjaði með þessi leiðindi?

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 16:15
by bebecar
Ef að elementið lekur þá þarftu að bæta vatni reglulega á bílinn. Þannig að ef þú þarft þess ekki þá er þetta kannski frekar frjókornasían.

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 17:59
by Alpina
bebecar wrote:Ef að elementið lekur þá þarftu að bæta vatni reglulega á bílinn. Þannig að ef þú þarft þess ekki þá er þetta kannski frekar frjókornasían.



:shock: :shock:

Ef elementið lekur þá þarf án vafa að skipta um það

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 19:23
by bebecar
Alpina wrote:
bebecar wrote:Ef að elementið lekur þá þarftu að bæta vatni reglulega á bílinn. Þannig að ef þú þarft þess ekki þá er þetta kannski frekar frjókornasían.



:shock: :shock:

Ef elementið lekur þá þarf án vafa að skipta um það


Oh kræst maður :shock: Ef það þarf ekki að bæta á vatni, þá lekur elementið elementið ekki :wink:

Þýðing yfir á Alpínísku: Ef það er frostlögur innan á rúðunni og það þarf að bæta vatni á bílinn þá er það örugglega elementið.

Svo má vel vera að bíllinn leki vatni hvort eð er og þá er kannski lítið gagn í þessu :roll:

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 19:31
by Alpina
bebecar wrote:
Oh kræst maður :shock: Ef það þarf ekki að bæta á vatni, þá lekur elementið elementið ekki :wink:

Þýðing yfir á Alpínísku: Ef það er frostlögur innan á rúðunni og það þarf að bæta vatni á bílinn þá er það örugglega elementið.

Svo má vel vera að bíllinn leki vatni hvort eð er og þá er kannski lítið gagn í þessu :roll:


Þú hlýtur að vera með Dr. gráðu í bilanagreiningu 8)

PostPosted: Sat 10. Jan 2009 19:54
by bebecar
Bara að reyna að hjálpa.... ekki að reyna að misskilja :wink: