Page 1 of 1

Lyklar !?

PostPosted: Sun 04. Jan 2009 17:08
by lacoste
Sælir,

Ég þarf að redda mér aukalykli á Bimmann. Ég veit að það er hægt að panta lykil frá Deutschland i BogL fyrir 8þúsund krónur.

En þar sem að bíllinn minn er ekki með neinni fjarstýringu eða þannig, og það er ekkert svona EWS kóðunardrasl (1992 e36?) er þá ekki bara ódýrara fyrir mig að láta smíða lykil hjá einhverjum lyklasmið? :oops:

Er einhver lyklasmiður með BMW lykla?

PostPosted: Sun 04. Jan 2009 17:35
by Dóri-
Mig minnir að neyðarþjónustan á laugarveginum geti smíðað lykla fyrir þig, geta það allavegana fyrir benz sem eru með mjög svipaða lykla, ég veit samt ekki hvort að þú fáir lykil með bmw logo-i

PostPosted: Sun 04. Jan 2009 18:02
by Svessi
Dóri- wrote:Mig minnir að neyðarþjónustan á laugarveginum geti smíðað lykla fyrir þig, geta það allavegana fyrir benz sem eru með mjög svipaða lykla, ég veit samt ekki hvort að þú fáir lykil með bmw logo-i


Þeir geta gert það fyrir þig.
Þeir eru á Laugarvegi 168
http://www.las.is

BMW lyklarnir eru reyndar eitthvað aðeins dýrari en venjulegur bíllykill útaf því hvernig hann er skorinn. Ég veit reyndar ekki hvað það kostar í dag. Samt ódýrara en að panta laserskorinn hjá B&L.

PostPosted: Sun 04. Jan 2009 19:40
by Mazi!
Brynja á laugarvegi, kostar 500kall :lol:

Fín vinnubrögð, lykillinn minn var svo slitinn að ég gat tekið hann úr svissnum þegar bíllinn var í gangi og á ferð,

PostPosted: Mon 05. Jan 2009 00:39
by ValliFudd
Mazi! wrote:Brynja á laugarvegi, kostar 500kall :lol:

Fín vinnubrögð, lykillinn minn var svo slitinn að ég gat tekið hann úr svissnum þegar bíllinn var í gangi og á ferð,

E30 lyklarnir eru eitthvað einfaldari en e36 lyklarnir er það ekki? :)

PostPosted: Mon 05. Jan 2009 02:21
by BirkirB
mig vantar líka aukalykil en ég er með fjarstýringu...þá hlýtur það að kosta handlegg...
en fyrst þarf ég að laga samlæsingarnar :oops:

PostPosted: Mon 05. Jan 2009 08:07
by Einarsss
Jarðsprengja wrote:mig vantar líka aukalykil en ég er með fjarstýringu...þá hlýtur það að kosta handlegg...
en fyrst þarf ég að laga samlæsingarnar :oops:


í E39 þá kostaði lykillinn um 30k :?

PostPosted: Mon 05. Jan 2009 20:08
by crashed
Jarðsprengja wrote:mig vantar líka aukalykil en ég er með fjarstýringu...þá hlýtur það að kosta handlegg...
en fyrst þarf ég að laga samlæsingarnar :oops:


mig vantaði likil á minn e36 og hann kostaði þá 25þús fyrir krepu og ég er ekki með fjarstiringu

PostPosted: Mon 05. Jan 2009 20:11
by slapi
OEM eða sleppa því........ :)

PostPosted: Mon 05. Jan 2009 23:58
by BirkirB
ókey...þá er líklegast bara best að teipa lykilinn við hendina á sér svo hann týnist ekki... :x

PostPosted: Tue 06. Jan 2009 00:30
by Dóri-
Ég týndi nú lykli af bíl sem ég átti, var nýbúinn að setja svona lyklakippu með miða sem maður getur skrifað á, skrifaði þar númerið mitt, fór á djammið og týndi lyklinum, var vakið mig daginn eftir klukkan 9 um morgunin, þá var einhver úti að labba og fann lykilinn! 8)

Það asnalegasta við þetta var að ég var ekki búinn að fatta að þeir væru týndir :lol:

PostPosted: Tue 06. Jan 2009 08:15
by Einarsss
Dóri- wrote:Ég týndi nú lykli af bíl sem ég átti, var nýbúinn að setja svona lyklakippu með miða sem maður getur skrifað á, skrifaði þar númerið mitt, fór á djammið og týndi lyklinum, var vakið mig daginn eftir klukkan 9 um morgunin, þá var einhver úti að labba og fann lykilinn! 8)

Það asnalegasta við þetta var að ég var ekki búinn að fatta að þeir væru týndir :lol:



einhver hefði nú mögulega hringt í 118 og fengið heimilisfangið og náð í bílinn sjálfur ;)