bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Pantaði frá BMWSpecialisten https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=339 |
Page 1 of 1 |
Author: | Ozeki [ Wed 20. Nov 2002 08:44 ] |
Post subject: | Pantaði frá BMWSpecialisten |
Það er víst kominn tími á Inspection II hjá mér (var að toppa 150k) svo ég skoðaði bílinn skv uppskrift BMW. Meiningin var að fara sjálfur yfir uppskriftina og finna það sem þyrfti að laga, kaupa og fá handlaginn náunga til að skifta um ... Jæja, það kom á daginn að dempararnir að framan voru farinir að leka, svo best væri að skifta um þá. En .... það virtist enginn eiga þá hér á landi, hringdi í B&L, TB, Bílanaust, GS, Stillingu ... engir demparar. Það skrítna var að aðeins í GS var einhver viðleitni að athuga hvenær þeir gætu átt par af dempurum. Ég gekk á þá í TB og spurði hvenær ég gæti keypt þetta hjá þeim, en svörin voru : "þetta er ekki til og ég veit ekki hvenær við eigum þetta" Takk fyrir þjónustulundina á þeim bæ ! Þá var bara að prófa þjónustuna í Dk, fór á vefinn og pantaði 2 stykki framdempara og hringdi svo í þá (bjó í Dk í rúm 5 ár og er mellufær í dönsku). Spurði fyrst hvort maður ætti nokkuð að borga momsinn (vask) þar sem Ísland væri ekki í EB, þeir voru ekki vissir ![]() Síðan sendu þeir mér póst þar sem fram kom : Her har du det samlede beløb du skal indbetale på vores konto: 31-31-1-096-858 Støddæmpere for 2 * 899,- T39S Tågelygtesæt E39 1 * 1.075,- Fragt 1 * 225,- Samlet pris Danske kr. 3.098,- Beløbet skal indsættes på vores konto: Danske Kroner 3.098,00 BG Bank Bank nr. 1199 Konto nr. 60015007 SWIFT DABADKKK Fax venligst en kvittering til os på betalingen - så kan vi hurtigere sende varen. Fax nr. 0045 65940098 Sem sé engin moms. Það var engin möguleiki að gefa bara upp VISA kort númerið sitt ![]() Ég renndi niður í banka og sendi aurana í símgreiðslu, og lét bankann faxa kvittun í þá. Ég var svo rétt nýkomin út úr bankanum þegar þeir hringdu í mig, voru búnnir að fá faxið og vildu fá stell númerið á bílnum til að vera vissir um að senda mér réttu varahlutina ![]() Nú er svo bara að bíða og sjá hversu auðvelt verður að fá dótið afhent úr tollinum. Spurði reyndar líka eftir Rondell 58 settinu og það selst eins og sést á mynd með BF Goodrich dekkjum. |
Author: | Svezel [ Wed 20. Nov 2002 10:58 ] |
Post subject: | |
Ég get ekki betur séð en að þú sért að gera góð kaup í dempurunum, allaveganna borgaði ég hátt í 30þús fyrir minn upp í B&L |
Author: | gstuning [ Wed 20. Nov 2002 11:12 ] |
Post subject: | |
þegar þú segir GS ertu að tala um mig?? |
Author: | Ozeki [ Wed 20. Nov 2002 11:18 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: þegar þú segir GS ertu að tala um mig??
neibb ... átti við G S varahluti |
Author: | Alpina [ Wed 20. Nov 2002 21:28 ] |
Post subject: | ??????? |
Var í sambandi við þessa aðila um daginn og eru að gefa fín verð.. en þú átt eftir að borga toll og vsk. af þessu´þannig að þetta HÆKKAR EIL'ITIÐ,,,,,,,, ekki satt!!!!!!!! ps. gangi þér vel. Sv.H. |
Author: | gstuning [ Mon 25. Nov 2002 20:04 ] |
Post subject: | |
Ozeki, GSTuning er með umboð fyrir Rondell felgur á Íslandi, hverju ertu að leita eftir og í hvaða stærð |
Author: | Ozeki [ Wed 04. Dec 2002 14:03 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: Ozeki,
GSTuning er með umboð fyrir Rondell felgur á Íslandi, hverju ertu að leita eftir og í hvaða stærð Ok, tökum Rondell úrvalið á BMWSpecialisten ... best líst mér á 58 8,5x17 eins og þú sérð á vefinum hjá þeim eru þeir að selja þetta á 10.000 dkr með BF Goodrich dekkjum, klárt undir bílinn. Hvað kostar þetta hjá þér ? kv, |
Author: | Ozeki [ Wed 04. Dec 2002 14:14 ] |
Post subject: | |
gleymdi að nefna það að ég leysti dótið úr tollinum 13.185 í aðflutningsgjöld 1.405 í Tollskýrslugerð (lét póstinn gera tollskýrslu) 250 í Tollmeðferðargjald Dempararnir frá W.Germany (Sachs) kastarasett virtist orginal BMW með rofa |
Author: | Kull [ Wed 04. Dec 2002 14:57 ] |
Post subject: | |
Þú hefur þá borgað um 50 þús fyrir pakkann? |
Author: | gstuning [ Wed 04. Dec 2002 15:35 ] |
Post subject: | |
Ok, leyfðu mér að fá flutning og svoleiðis á hreint þá get ég svarað fyrir þessar felgur, ég er ekki með nein dekkja verð hjá Rondell, þannig að ég fæ svar á morgun, þegar þeir segja 10,000dkr, þá er það hjá þeim, Eftir að bæta flutning toll vsk og meðferðagjöld Ég myndi skjóta á að sá pakki kæmi inn á 215.000kr Einnig þar sem að BFG er amerísk dekk þá bætist á þau 7,5% auka tollur, sem ég reiknaði ekki inní þennan 215.000kr dæmi Ég er nokkuð viss um að geta boðið lægra |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |