bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

DT Design
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=338
Page 1 of 1

Author:  DtDesing [ Tue 19. Nov 2002 17:17 ]
Post subject:  DT Design

Dt Design býður upp á Air brush myndir á bílinn eða hjólið einnig alskonar skreytingar. Einnig sérsmíðum við spoiler kit, getum breitt orginal stuðurum og svuntum i þetta typíska Fast and the Furious street race lookið. Heilmálum einnig bíla. Gerum föst verð tilboð í flest job.

E-mail: dtdesign@hotmail.com
Sími: 6955713

Author:  Just [ Tue 19. Nov 2002 18:06 ]
Post subject: 

Það er bannað að gera svolleiðis við BMW :D

Author:  GHR [ Tue 19. Nov 2002 22:35 ]
Post subject: 

Just wrote:
Það er bannað að gera svolleiðis við BMW :D


Góður :D
Alveg sammála, kannski allt í lagi með spoilerkit (en ekki Fast and the furious look)

Author:  saemi [ Tue 19. Nov 2002 23:10 ]
Post subject: 

It's a no no ..... :lol:

Author:  Gunni [ Tue 19. Nov 2002 23:15 ]
Post subject: 

Just wrote:
Það er bannað að gera svolleiðis við BMW :D

eins og talað út úr mínum munni. spoilerkit eru mjög góð en f&f á bmw gengur ekki upp, hvað þá airbrush myndir sem sjást á dónavönum og öðruslíku (no offence við airbrush málara eða eigendur dónavana)

Author:  bebecar [ Wed 20. Nov 2002 09:39 ]
Post subject: 

Nú hittir þú illa á... það er nefnilega bannað að hrísa BIMMA :wink: og við erum greinilega flestir sammála um það.

Author:  GHR [ Wed 20. Nov 2002 12:02 ]
Post subject: 

Póstaðu bara í Live2cruize.com
Þar er nóg af grjónabílum og glimmergæjum :lol:

Author:  DtDesing [ Wed 20. Nov 2002 12:03 ]
Post subject: 

Ykkur þykir greinilega vænt um bimbana ykkar og ég skil enda er ég ekki að fá ykkur í f og f lookið eingöngu að láta vita hvað er í boði. en nú er ég að spá í að versla eitt stk bmw og senda ykkur mynd er við höfum lokið okkur af í dt og vönandi verðið þið á bmw kraft spjallinu himinlifandi yfir hönnunini og frágangi takkk taakkkk.

Author:  Raggi M5 [ Wed 20. Nov 2002 12:28 ]
Post subject: 

Póstaðu bara í Live2cruize.com
Þar er nóg af grjónabílum og glimmergæjum
_________________
BMW 750IA '93
Speed starts when you arrive at triple digits




GÓÐUR PUNKTUR :twisted:

Author:  Djofullinn [ Wed 20. Nov 2002 12:37 ]
Post subject: 

DtDesing wrote:
Ykkur þykir greinilega vænt um bimbana ykkar og ég skil enda er ég ekki að fá ykkur í f og f lookið eingöngu að láta vita hvað er í boði. en nú er ég að spá í að versla eitt stk bmw og senda ykkur mynd er við höfum lokið okkur af í dt og vönandi verðið þið á bmw kraft spjallinu himinlifandi yfir hönnunini og frágangi takkk taakkkk.

Þú mátt kaupa BMW-inn minn á 400 þúsund

Author:  DtDesing [ Wed 20. Nov 2002 13:58 ]
Post subject: 

Daníel þakka þér en er bíllin 520 eða 525 og hvaða árg helst vill ég fá 300. línuna en 500 kemur til greina. en hvað sem það verður ætla ég ekki að setja dónavans look á bimban sem ég tek í gegn ég skil alveg hvað þið eruð að eltast við sumt gerir maður bara ekki ja nema kanski einusinni til að prófa takkkk takkkk

Author:  Djofullinn [ Wed 20. Nov 2002 14:24 ]
Post subject: 

DtDesing wrote:
Daníel þakka þér en er bíllin 520 eða 525 og hvaða árg helst vill ég fá 300. línuna en 500 kemur til greina. en hvað sem það verður ætla ég ekki að setja dónavans look á bimban sem ég tek í gegn ég skil alveg hvað þið eruð að eltast við sumt gerir maður bara ekki ja nema kanski einusinni til að prófa takkkk takkkk

Ég er búinn að senda þér póst

Author:  bebecar [ Wed 20. Nov 2002 14:48 ]
Post subject: 

Hvað eruð þið með fleira á bílana.... það virðast nú flestir bimmarnir hérna vera til sölu!!!

Hmmm undarlegt..... en allir ætla að fá sér annan bimma í staðinn, þar á meðal ég!!!

Author:  DtDesing [ Wed 20. Nov 2002 16:31 ]
Post subject: 

við erum í augnablikinu í samningaviðræðum við erlenda aðila og af þeim er einn aðili sem sérhæfir sig á þýskum eðalvögnum bæði hestafla aukningum og útliti, felgur og dekk og verðin sem hafa verið nefnd eru betri en það sem okkur hefur verið boðið hér heima, en ekki stendur til að fara erlendis og ræða endalega við menn fyrr en eftir áramót. þess má geta að við getum breytt venjulegu mælaborði í klassík viðarlook
ekki gerfi heldur klætt með við, tekur smá tíma og viljum við helst ekki bjóða uppá þá þjónustu fyrr en við getum lánað bíl á meðan aðgerð fer framm, nema bíleigandinn geti mist bílinn sinn meðan aðgerðin fer framm. takkk takkkk

Author:  gstuning [ Wed 20. Nov 2002 23:58 ]
Post subject: 

DTdesign,

hverjir eru þessir þýsku eðalvagna tjúnarar,
þú getur sent mér private message eða email, ég hef ekki áhuga á að reyna að stela umboði ykkar, ég er bara að spá hvaða tjúnari fer að koma nafninu sínu hingað,

Þú veist að við erum með toppinn, það er sama hvert er litið, Hamann

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/