Page 1 of 4
Eigum við að banna "bílasöluauglýsingar" án verðs?

Posted:
Sat 13. Dec 2008 15:31
by IceDev
Hver er ekki þreyttur á "Verð í PM" eða "Verð: Tilboð"
Ég veit að ég er búinn að fá mig fullsaddann af þessu bulli. Ég legg því til að henda skuli út auglýsingum sem hafa ekki auglýst verð, verðhugmynd eða nokkurskonar glætu um hvað eigandi vill fá fyrir vöruna

Posted:
Sat 13. Dec 2008 15:35
by Djofullinn

Posted:
Sat 13. Dec 2008 15:36
by Alpina
Ansi margt til í þessu,,,,,,,
en er þá ekki orðið of mikið BIG-BROTHER í þessu

Posted:
Sat 13. Dec 2008 15:36
by slapi
Algjörlega sammála.
Og myndi þetta nátturulega eiga við bílatengda hluti einnig að mínu mati.
Alpina wrote:Ansi margt til í þessu,,,,,,,
en er þá ekki orðið of mikið BIG-BROTHER í þessu
Mikið til í þessu , L2C finnst mér ganga mjög langt í þessu með sínu punktakerfi etc.

Posted:
Sat 13. Dec 2008 15:40
by IceDev
Sé nú ekki einhvern big brother fíling í þessu
Þetta er ekkert ósvipað því að labba inn í 10-11 til þess að sjá enga verðmiða. Maður labbar upp að afgreiðslumanninum og segir "Hvað kostar þetta?"
"Hvað viltu borga?"

Posted:
Sat 13. Dec 2008 15:42
by zazou
Já.is
Þetta að vilja ekki gefa upp verð er bara draumhyggja um að bíða eftir sveitamanninum sem er með vasa fulla af seðlum.
X5 hlunkurinn minn er á 4.5, yfirtaka, áður en ég sendi hann til Noregs og fæ evrur, first come, first have.

Posted:
Sat 13. Dec 2008 15:43
by Alpina
IceDev wrote:Sé nú ekki einhvern big brother fíling í þessu
Þetta er ekkert ósvipað því að labba inn í 10-11 til þess að sjá enga verðmiða. Maður labbar upp að afgreiðslumanninum og segir "Hvað kostar þetta?"
"Hvað viltu borga?"
hehehe einnig góður punktur

Posted:
Sat 13. Dec 2008 16:18
by Róbert-BMW
Alpina wrote:IceDev wrote:Sé nú ekki einhvern big brother fíling í þessu
Þetta er ekkert ósvipað því að labba inn í 10-11 til þess að sjá enga verðmiða. Maður labbar upp að afgreiðslumanninum og segir "Hvað kostar þetta?"
"Hvað viltu borga?"
hehehe einnig góður punktur
Þetta er best
En ég er samála þessu...

Posted:
Sat 13. Dec 2008 16:44
by elli
Alpina wrote:IceDev wrote:Sé nú ekki einhvern big brother fíling í þessu
Þetta er ekkert ósvipað því að labba inn í 10-11 til þess að sjá enga verðmiða. Maður labbar upp að afgreiðslumanninum og segir "Hvað kostar þetta?"
"Hvað viltu borga?"
hehehe einnig góður punktur
Þessi "hvað viltu borga" pakki er gjörsamlega úti fyrir mér!
Ég þarf að vera fjandi desperate til að fara lengra með svoleiðis viðskipti. Ef menn treysta sér ekki til að verðleggja dótið sitt, bíla/varahluti eða annað, eiga þeir að bjóða þá annarsstaðar.
Mæli með því að söluþráðum án verðs verði skipulega eytt af stjórnendum.
Könnunin sem er hér að ofan stendur í 20/2 núna það segir allt sem þarf

Posted:
Sat 13. Dec 2008 16:53
by gardara
Ef menn eru feimnir við að gefa upp verð vegna þeir halda að hugsanlega kæmi einhver og bjóði hærra verð en þeir hafa í huga er alveg fáránleg.
Bara gefa upp verð sem þú ert sáttur með (eða hugsanlega aðeins hærra svo menn geti prúttað)

Posted:
Sat 13. Dec 2008 17:09
by jon mar
ef ég væri að auglýsa bílinn minn til sölu hérna núna, þá myndi ég líklega ekki gefa upp verð...
Afhverju?
Jú, það kæmi heill her skipaður áhugalausum mönnum um kaupin og drulluðu yfirverðmiðann hægri vinstri.
Þeir sem hafa raunverulegan áhuga hringja eða senda pm til að vita meira og athuga hvort þetta sé eitthvað fyrir þá.
Fyrir mér hefur reynslan sýnt að þeir sem raunverulegan áhuga hafa hringt strax og þeir hafa velt möguleikanum fyrir sér.
Eins, hvað er í gangi hjá fólki sem lætur sér detta í hug að senda sms í bílaviðskiptum?

Posted:
Sat 13. Dec 2008 17:16
by IceDev
Ég hef nú sjaldan séð óverðskuldað drull yfir verðum hér á kraftinum

Posted:
Sat 13. Dec 2008 17:19
by jon mar
IceDev wrote:Ég hef nú sjaldan séð óverðskuldað drull yfir verðum hér á kraftinum
margir hérna sem röfla útí verðmiða..
En ég vona að mönnum sé enþá frálst á íslandi að bjóða í bílana það sem þeir tíma að borga.
Eins virðast margir ekkert hafa hugmynd um hvað gagntilboð er þegar maður er að bjóða í bíla.

Posted:
Sat 13. Dec 2008 17:20
by Alpina
IceDev wrote:Ég hef nú sjaldan séð óverðskuldað drull yfir verðum hér á kraftinum
Óskar....... þú ert algerlega að gera ÚLFALDA úr mýflugu

Posted:
Sat 13. Dec 2008 17:24
by elli
jon mar wrote:IceDev wrote:Ég hef nú sjaldan séð óverðskuldað drull yfir verðum hér á kraftinum
margir hérna sem röfla útí verðmiða..
En ég vona að mönnum sé enþá frálst á íslandi að bjóða í bílana það sem þeir tíma að borga.Eins virðast margir ekkert hafa hugmynd um hvað gagntilboð er þegar maður er að bjóða í bíla.
Það er ekkert verið að breyta því, en hér viljum við (all margir allav.) hafa þetta með öðrum hætti.
Tekið úr söluþráðum hér eftir ca. 20 sek leit
...jæja, ég er að hugsa um að athuga með að selja
...hugsanlega til sölu bmw e30
...er falur fyrir rétt verð fystur kemur fær kannski
...bensín vél 5 gíra beinskiftur blár tilboð í ann?
Það á að stöðva þessa vitleysu hér og tek ég því undir með frummælanda og skora ég því á stjórnendur að gera eitthvað í málinu.