Kull wrote:
Þeir sem stunda bílabrask eða annað brask hljóta að gera sér grein fyrir því að það er viss áhætta fólgin í því.
Menn hafa væntanlega grætt ágætlega á þessu og núna þegar dæmið snýst við er varla hægt að ætlast til að ríkið komi til bjargar svo þeir tapi ekki.
En vissulega er meira vit í að flytja þessa bíla aftur úr landi frekar en að þeir sitji óhreyfðir í einhver ár.
hárétt, éf tek sjálfan mig sem dæmi þá var það að sjálfsögðu vitað að það væri viss áhætta fólgin í því, alveg eins og með hvers konar "rekstur"
en þetta eru nú orðnar dáldið sérstakar aðstæður, mér finnst varla hægt að lasta menn fyrir að hafa ekki bókstaflega reiknað með að þetta færi akkurat sona, ég t.d sit uppi með 2 bíla sem báðir voru eingöngu ætlaðir í sölu og ég hafði og hef ekki minnsta áhuga á sjálfur,
ég geri mér vel grein fyrir því að ég tók þá áhvörðun að taka áhættuna og hef tekið og er að taka afleiðingunum,
ég reiknaði með versnandi ástæðu og sló af mestan partinn af því sem ég var og ætlaði mér að gera,
það gleymist dáldið að skellurinn fyrir þá sem voru að braska/versla með bíla kom í febrúar/mars, þá missti ég einmitt 2 vinnur og lenti í að allt hækkaði og svo var krafist innborgunar á lánin ef það átti að nafnabreyta, þá strax var breytt verulega um áherslur og farið í að laga til og hreinsa upp, og það hófst með alveg helling af vinnu,
svo núna kemur annar skellur og maður missir aftur vinnua og afborganirnar á því sem voru eftir og voru á engann hátt vandamál hafa tvöfalldast, og það ekki í fyrsta skiptið, það munar 100þúsund á afborgunum hjá mér núna og fyrir þetta, plús það að 3 vinnur og aukavinnan eru bara horfnar ásamt fyrirtækjunum flestum,
þannig að það fer dáldið í taugarnar á mér þegar fólk er að segja við mann að "hefðir brahh ekkert átt að vera kaupa bíl sem þú hafnir ekkert efni á.." og þræta á móti einhverju sem gæti bjargað fullt af fólki sem er í vondum málum, það er fullt af mönnum sem hafa stundað alltof áhættusöm eða jafnvel misgáfuleg viðskipti, en það eru fjölskyldur sem fara oftast niður með þeim, og það kostar þjóðarbúið eflaust ekkert miklu minn að díla við brunarústirnar af fjölskyldum útúm allan bæ í meira mæli en nú þegar er að koma til,