bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hvað kostar það sirka í dag að fara með bílinn í smurningu? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=33598 |
Page 1 of 6 |
Author: | arni800 [ Tue 09. Dec 2008 14:09 ] |
Post subject: | Hvað kostar það sirka í dag að fara með bílinn í smurningu? |
Hvað kostar það sirka í dag að fara með bílinn í smurningu? 318 E46 veit það fer eftir auðvitað eftir því hvað er mikið dælt á hann og þannig en getur einhver gefið mér grófa tölu? Kærastan min fór nefnilega með póloinn sinn um daginn og það kostaði fokking 14þús kall ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Tue 09. Dec 2008 14:11 ] |
Post subject: | |
Dundaðu þér bara við þetta sjálfur |
Author: | arni800 [ Tue 09. Dec 2008 14:12 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Dundaðu þér bara við þetta sjálfur
ég kann það ekki og hef ekki aðstöðu í það... eða þori bara ekki að fikta í þessu. Ekki nema þú viljir gera það fyrir mig ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Tue 09. Dec 2008 14:17 ] |
Post subject: | |
Nei ég nenni ekki norður ![]() |
Author: | arni800 [ Tue 09. Dec 2008 14:18 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Nei ég nenni ekki norður
![]() löngu fluttur í bæinn maður haha ![]() ætti nu að gera borgað eitthvað smá kannski og auðvitað efniskostnað og sovna... ég fer bara í kaffi til pabba á meðan, hann býr þarna á hinum ganginum ![]() |
Author: | ingo_GT [ Tue 09. Dec 2008 16:49 ] |
Post subject: | |
Ég er ný hættur að vinna á smurstöð og þegar ég smurði minn bmw 320 e36 þá kostaði það sirka 17 þús fyrr efti því hverni oljía fyrr á mótorinn 15 þús kílómetra oljíja eða 30 þús kílómetra olíja þanni þú getur sjeð verðið svona nokkum veginn ekki búast við minna en 17 þús kall ![]() Síðan líka var mikið af fólki sem hringti til okkar og spurði hvað kostaði að smurja bíllanna hjá þeim það var ekki hægt að svara því maður veit ekkert hverni olíja er að fara á þeim bíl né hvað margir lítrar hehe bara svona svo þú áttir þér á því hversu erfit er að svara spurningunni þinni En ég mæli með því að þú fari á n1 og lætur smurja hann þar ![]() |
Author: | Shizzer [ Tue 09. Dec 2008 17:25 ] |
Post subject: | |
Held að það fari frekar mikið eftir olíunni, félagi minn á E34 525i, og hefur látið smyrja hann, og þá var það kosta held ég einhverja 2-3 auka þúsund kalla fram yfir olíuna. Dunduðum okkur svo við að smyrja hann fyrir stuttu, sparaði fáeina þúsundkalla og svo var þetta bara stemming ![]() |
Author: | HAMAR [ Tue 09. Dec 2008 17:35 ] |
Post subject: | |
Ég borgaði síðast ca. 14.000 kr. fyrir smurningu á M.B. E320 dísil, sett á hann Mobile1 og skipt um síur. |
Author: | arni800 [ Tue 09. Dec 2008 17:35 ] |
Post subject: | |
HAMAR wrote: Ég borgaði síðast ca. 14.000 kr. fyrir smurningu á M.B. E320 dísil,
sett á hann Mobile1 og skipt um síur. hvar? |
Author: | Mánisnær [ Tue 09. Dec 2008 17:40 ] |
Post subject: | |
Vá hvað þetta er orðið dýrt ![]() |
Author: | natalia/ros [ Tue 09. Dec 2008 17:51 ] |
Post subject: | |
ég for með minn 316 í sumar og það kostaði 15.þus. |
Author: | Axel Jóhann [ Tue 09. Dec 2008 18:47 ] |
Post subject: | |
Miðað við verðskránna hjá mér, þá er það svona: Mótorolía 10w40 verð per líter. 695kr Mótorolía 5w40 Synthetísk verð per líter. 1166 Mótorolía 5w40 dísel verð per líter. 597 Typical verð á olíusíum 900 og uppí 2000kr smurgjald frá 2900 uppí 4900(ef það er mikil vinna) Svo er alltaf tjékkað á loftsíu, drifum og skiptingu/gírkassa og skipt um ef þess þarf. Þannig meðalverð hjá okkur niðrí vinnu er svona 6-12k eftir bíl. |
Author: | SteiniDJ [ Tue 09. Dec 2008 18:48 ] |
Post subject: | |
Fór með minn á Olís Smurstöð (rétt hjá Laugardalnum, man ekki hvað hún hét) í sumar og fékk Mobil 1. Samtals var þetta í kringum 18.000 kr,- , og svo skvetti starfsmaðurinn olíu á nýbónaða bílinn minn. ![]() |
Author: | Dorivett [ Tue 09. Dec 2008 20:21 ] |
Post subject: | |
talaðu við ingvar á smurning.is (við hliðina á TB) hann er með pennzoil olíur sem eru hágæðaolíur, og mjög sanngjarn á verðið. Sími 5654440 |
Author: | Brútus [ Tue 09. Dec 2008 20:44 ] |
Post subject: | |
Hjá Nesdekk færð þú ódýrustu smurninguna á bílinn þinn. Það hefur lítið sem ekkert komið við veskið mitt að láta smyrja bílinn hjá þeim. Umfelgun o.f.l allt í Nesdekk. |
Page 1 of 6 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |