Page 1 of 2
Hvað er sanngjörn leiga fyrir skúr...

Posted:
Mon 08. Dec 2008 17:48
by saemi
Hvað er sanngjörn leiga fyrir skúr sem er 32 fermetrar, með köldu og heitu vatni, rafmagni, hurðaropnara og 2 stæðum fyrir framan.
Ég er að fara að flytja eftir áramót og ætla sennilegast að leigja íbúðina mína og skúrinn út.
Þetta er ágætis skúr, gott pláss fyrir framan og aftan bílinn þegar hann er kominn inn. Ég er meira að segja með hillur fyrir framan bílinn og til hliðar og samt ágætis pláss. Vaskur og borð er í skúrnum. Gluggar alla hliðina að ofan öðru megin svo það er fín birta líka.
Ég var að spá í að leigja þetta út með hita og rafmagni.
Hvað er sanngjarn prís fyrir leigu á svona?

Posted:
Mon 08. Dec 2008 17:49
by Aron Andrew
Getur fengið 40-45 þús fyrir þetta myndi ég halda.

Posted:
Mon 08. Dec 2008 17:55
by Angelic0-
vá.... fyrir 50þ er hægt að leigja 90-100 fermetra skúr í Keflavík...

Posted:
Mon 08. Dec 2008 17:56
by Aron Andrew
Angelic0- wrote:vá.... fyrir 50þ er hægt að leigja 90-100 fermetra skúr í Keflavík...
Enda er allt húsnæði ódýrara þar, ekki sambærilegt.

Posted:
Mon 08. Dec 2008 18:02
by gstuning
Aron Andrew wrote:Angelic0- wrote:vá.... fyrir 50þ er hægt að leigja 90-100 fermetra skúr í Keflavík...
Enda er allt húsnæði ódýrara þar, ekki sambærilegt.
akkúrat, kostar ekki minna enn 2tíma og 2000kr að skreppa fram og tilbaka.

Posted:
Mon 08. Dec 2008 18:34
by íbbi_
leiguverð hefur hríðfallið, ég var einmitt að skipta um íbúð og er búinn að fylgjast nokkuð vel með síðustu mánuði,
ég myndi segja já, eins og aron að þú gætir eflaust fengið 40-45þús fyrir hann,
en sangjörn leiga myndi ég segja að væri 30kall, en það er klárlega minna en þú getur fengið,
annars máttu gjarnar senda á mig betri upls ef þú villt, er með öllu aðstöðulaus

Posted:
Mon 08. Dec 2008 20:49
by Bandit79
myndi segja ca. 700-900kr per fm + hiti og rafmagn væri sanngjarnt.

Posted:
Mon 08. Dec 2008 21:50
by saemi
Jamm, ég var með í kollinum c.a. 1000 kall fermeterinn. Allavega er það verðið sem atvinnuhúsnæði er á í dag.

Posted:
Mon 08. Dec 2008 21:50
by Djofullinn
saemi wrote:Jamm, ég var með í kollinum c.a. 1000 kall fermeterinn. Allavega er það verðið sem atvinnuhúsnæði er á í dag.
Ég held að það sé mjög fair.

Posted:
Mon 08. Dec 2008 22:13
by Jón Ragnar
jamm alveg solid held ég, góður staður líka

Posted:
Mon 08. Dec 2008 22:18
by Alpina
Jón Ragnar wrote:jamm alveg solid held ég, góður staður líka
Mega

Posted:
Mon 08. Dec 2008 22:54
by HK RACING
saemi wrote:Jamm, ég var með í kollinum c.a. 1000 kall fermeterinn. Allavega er það verðið sem atvinnuhúsnæði er á í dag.
Það lækkar nú daglega,ég er búinn að vera að fá tilboð uppá minna en 1000 kall fermeterinn og það í Hafnarfirði....

Posted:
Mon 08. Dec 2008 23:02
by finnbogi
ég er nokkuð viss að leigurverðið sé dottið undir 1000 á fermeterinn
svo mikið sem stendur autt ........ iðnaðar húsnæði ofl

Posted:
Mon 08. Dec 2008 23:15
by saemi
Það má vera.
Ég hef þetta frá aðila í bransanum fyrir 2 vikum.
En svo fer líka svolítið eftir staðsetningunni. Þetta er ekki úti í rassati


Posted:
Mon 08. Dec 2008 23:23
by HK RACING
Húsnæði sem ég er að skoða fæst á 900 kall fermeterinn á dalshrauni,þegar ég talaði við hann í september var verðið 1250 fermeterinn,og öll húsnæði sem ég skoðaði í september standa enn auð í dag,það er ein ástæða þess að ég ákvað að bíða framyfir áramót með að fá mér annað húsnæði,þetta bara hrynur niður....