bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Þokuljósanotkun https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=3356 |
Page 1 of 2 |
Author: | oskar [ Thu 13. Nov 2003 13:47 ] |
Post subject: | Þokuljósanotkun |
Þetta er kannski "boring" spurning en ég var bara að velta fyrir mér hvað þetta væri með Íslendinga og þokuljós. Þokuljós eru ein ofnotuðustu ljós á bílum á þessu landi. Það er frekar pirrandi að mæta bílum með öll þessi ljós kveikt, sérstaklega í myrkri. Svo eru líka sumir sem hafa líka kveikt þokuljós að aftan sem er ennþá verra. Auðvitað er ekkert að því að nota þessi ljós ef aðstæður eru þannig og utan þéttbýlis en innanbæjar á þetta ekki að sjást! Hvað er fólk að spá?? |
Author: | iar [ Thu 13. Nov 2003 13:56 ] |
Post subject: | |
Nota þokuljósin aldrei innanbæjar nema þegar fór pera í sumar í aðalljósunum þá setti ég kastarana á og slökkti á ljósunum. Þá er maður amk. löglegur þangað til ný pera er komin í. ![]() Hafið þið annars tekið eftir því hvað er mikið um bæði eineygða og rangeygða bíla? Hrikalega óþægilegt að keyra á undan og mæta þessum rangeygðu. ![]() PS: Hef reyndar einu sinni sett þokuljósin að aftan á innanbæjar, það var þegar ég lenti fyrir aftan þennan sem reykar svona og hefur verið rætt um hér á spjallinu. Þá var maður bara allt í einu inní þykkum reykjarmekki og sá ekkert. Smellti þokuljósunum á til að fá síður einhvern aftan á mig. |
Author: | arnib [ Thu 13. Nov 2003 14:37 ] |
Post subject: | |
Ég nota þau ekki innanbæjar, en kveiki reglulega á þeim utanbæjar þar sem mér finnst lýsingin þægileg. Líka þegar ég er að keyra innanbæjar þar sem er ekki upplýst og fáir bílar. Og mér finnst þeir flottir þannig að ég kveiki ef ég ætla mér að taka flotta mynd ![]() |
Author: | Jss [ Thu 13. Nov 2003 15:02 ] |
Post subject: | |
arnib wrote: Ég nota þau ekki innanbæjar, en kveiki reglulega á þeim utanbæjar þar sem mér finnst lýsingin þægileg.
Líka þegar ég er að keyra innanbæjar þar sem er ekki upplýst og fáir bílar. Og mér finnst þeir flottir þannig að ég kveiki ef ég ætla mér að taka flotta mynd ![]() Það er nú bara nokkurn veginn eins hjá mér, nota þá ekki innanbæjar nema ef það er mjög dimmt og inn botnlanga og svona þar sem ýmislegt leynist. ![]() |
Author: | Raggi M5 [ Thu 13. Nov 2003 15:19 ] |
Post subject: | |
Þegar ég var á Bimmanum notaði ég þau alltaf,allstaðar, sést kannski á þeim myndum sem ég hef sýnt af bílnum, útaf því að mér fannst það bara 100 sinnum flottara ![]() |
Author: | GHR [ Thu 13. Nov 2003 15:26 ] |
Post subject: | |
Sama segi ég. Ég notaði þau alltaf á bimmunum (520-750-325), mér finnst þetta bara flott á öllum bílum!! Ég myndi meira segja nota þau á Eclipsinum en búið að taka þau í burtu svo loft komist betur að intercoolernum ![]() Síðan finnst mér líka helv.... töff á Mercedes Benz þegar þeir hafa miðjuljósin kveikt (gerði það líka alltaf sjálfur ![]() |
Author: | Benzari [ Thu 13. Nov 2003 19:53 ] |
Post subject: | |
Nota þau oftast bara í myrkri. Ekkert bögg frá löggunni hingað til enda eru þau sambyggð aðalljósunum á mínum bíl eins og þið vitið flest. |
Author: | ta [ Thu 13. Nov 2003 20:16 ] |
Post subject: | |
ég nota ekki þokuljós nema við þær aðstæður sem þeim er ætlað, slæmu skyggni utan þéttbýlis. annars hef ég ekkert út á það að setja, að aka með þau alltaf þ.e.a.s. fram-þokuljósin. en óþarfa aftur-þokuljósanotkun pirrar mig. |
Author: | Gunni [ Thu 13. Nov 2003 20:29 ] |
Post subject: | |
Ég hef einusinni notað þokuljós innanbæjar, og geri það ekki aftur því ég var sektaður fyrir það ![]() |
Author: | bjahja [ Thu 13. Nov 2003 20:31 ] |
Post subject: | |
Á daginn er ég með stöðuljósin og þokuljósin en í myrkri er ég bara með venjulegu aðalljósin. Það er löglegt að nota þau svona og þau fara ekki í augun á bílum sem koma á móti í dagljósi og síðan finnst mér þetta bara miklu flottara ![]() |
Author: | oskar [ Thu 13. Nov 2003 20:34 ] |
Post subject: | |
Sektin hefur líklega komið vegna þessarar greinar í umferðarlögum: 32. gr. [Við akstur vélknúins ökutækis skulu lögboðin ljós eða önnur viðurkennd ökuljós jafnan vera tendruð.]1) [Við akstur ökutækis í rökkri, myrkri eða ljósaskiptum og þegar birta er vegna veðurs eða af öðrum ástæðum ófullnægjandi, hvort heldur er til að ökumaður sjái nægilega vel fram á veginn eða til að aðrir vegfarendur sjái ökutækið, skulu lögboðin ljós vera tendruð. Ökutæki, sem eigi skal búið ljósum, skal þá auðkennt samkvæmt reglum2) sem dómsmálaráðherra setur.]1) Nota skal háan ljósgeisla þegar sjónsvið ökumanns nægir annars ekki til að aka örugglega miðað við ökuhraða. Háan ljósgeisla má eigi nota: a. þegar ekið er um nægilega vel lýstan veg, b. þegar ekið er á móti öðru ökutæki, þannig að valdið geti ökumanni þess glýju, eða c. þegar ekið er svo skammt á eftir öðru ökutæki, að valdið geti ökumanni þess óþægindum. Nota skal lágan ljósgeisla, þegar ekki er skylt eða heimilt að nota háan ljósgeisla. [Í þoku, þéttri úrkomu eða skafrenningi má nota þokuljós í stað eða ásamt lágum ljósgeisla. Hjálparljós má eigi nota til annars en þau eru ætluð.]1) Ljós má eigi nota þannig að valdið geti öðrum vegfarendum glýju. Eigi má nota annan ljósabúnað eða glitmerki en boðið er eða heimilað í lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim. Dómsmálaráðherra getur sett reglur um varúðarmerki fyrir reiðmenn og hesta. |
Author: | bjahja [ Thu 13. Nov 2003 20:37 ] |
Post subject: | |
Ég var sektaður af því að þá var ég með kveikt á kösturum og aðalljósum.........og þá sagði löggan mér að það væri löglegt að vera með kastara og stöðuljós á daginn en það má ekki í myrkri síðan þá hef ég aldrei lent í veseni með þetta |
Author: | Jss [ Thu 13. Nov 2003 20:41 ] |
Post subject: | |
Gunni wrote: Ég hef einusinni notað þokuljós innanbæjar, og geri það ekki aftur því ég var sektaður fyrir það
![]() Það vill oft vera þannig, "síbrotamennirnir" komast upp með hlutina, þeir sem brjóta einu sinni af sér eru teknir. Annars notaði ég kastarana um daginn þar sem ljósastaurarnir í götunni voru bilaðir og það er svo mikið um krakka í kring, slökkti ekki á þeim strax, lenti síðan á eftir löggunni og fattaði þá að slökkva á þeim og án vandkvæða. ![]() |
Author: | Svezel [ Fri 14. Nov 2003 01:16 ] |
Post subject: | |
Hver þarf þokuljós þegar maður er með XENON ![]() |
Author: | Haffi [ Fri 14. Nov 2003 14:06 ] |
Post subject: | |
bleble þokuljósaþursar .... Ég notast bara við þau utanbæjar og þar sem birtuskilyrði eru hýr. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |