Page 1 of 6

Hópferð á hringinn. (eða Gatebil-Mantorp Park)

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 09:48
by JonFreyr
Jæja kraftsgaurar og gellur !

Ég veit að það er langt í næsta sumar og menn eru kannski ennþá með bílana sína hálf-kláraða í skúrnum. Þar á meðal ég :) en þar sem margir hafa diskúterað hópferð á hringinn finnst mér tilvalið að athuga með áhugann og viljann til að láta þann draum verða að raunveruleika.
Ég er með smá "kontakt" hjá Norrænu í Færeyjum og hef í gegnum tíðana fengið mikið ódýrari pakka hjá þeim en ég gæti nokkurn tímann fengið hjá söluskrifstofunni heima. Þórður var svo djöfull góður að pósta Nurburgring dagatalinu og hans þekking á svæðinu er gulls virði, tel auk þess líklegt að Sveinbjörn hafi nokkra góða punkta í pokanum.

Ég veit fullkomnlega að áhuginn er til staðar og að margir munu sýna þessu rosalega mikinn áhuga. Ég veit líka að áhuginn dofnar og margir gefa skít í þetta þegar nær dregur. Ég er hins vegar 100% viss um það má forðast brottfall úr röðum áhugasamra með því að gera þetta á concrete hátt.

Mín reynsla af svona hópferðum er takmörkuð, ég viðurkenni það fúslega :) veit hins vegar að svona óformlegar klúbbferðir byrja oftast á jákvæðri umræðu og þá helst með góðum fyrirvara. Hvernig væri að safna saman þeim sem hafa áhuga og svo hittast yfir köldum bjór og fara í gegnum hugmyndir áhugasamra??

Kv. Jón Freyr

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 09:52
by gunnar
Það var planið hjá mér að fara út næsta sumar en miðað við hvernig gengið verður líklegast að þá veit maður ekki hvernig málin munu standa.

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 10:07
by JonFreyr
Skil þig en er nú þegar byrjaður að athuga með gistingu og ferðakostnað :) fyrst þegar kostnaður er kominn á hreint er hægt að atlífa hugmyndina. Gefum þessu sjéns, það er Ok-piss :lol:

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 11:09
by doddi1
kúl

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 11:16
by gstuning
Ef ég fer ekki til íslands yfir sumarið þá fer ég bókað á hringinn
maður fer til íslands allaveganna í mánuð (nóg þarf að tjúna þarna)

Annars er það Gatebil og hringurinn næsta sumar vonandi 8)

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 11:45
by Einarsss
Hefði áhuga á að fara en ef gengið og ástandið lagast ekki mikið, þá er ekki sjéns að ég komist.

Euro trip á rauðhettu frestast því miður.

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 11:45
by arnibjorn
gunnar wrote:Það var planið hjá mér að fara út næsta sumar en miðað við hvernig gengið verður líklegast að þá veit maður ekki hvernig málin munu standa.


What he said... :?

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 11:47
by Alpina
Skil eldmóðinn Jón Freyr,, þrusu hugmynd.............. en


eins og staðan er ,, þá er þetta algerlega ótímabær hugdetta,,
vitum ekki einu sinni hvort það verði flugfélag hérna í vor ??

hörmungin er rétt að byrja




sorry fyrir neikvætt innlegg,, en þetta er samt það sem koma skal vil ég meina ,,

Ég vildi nú helst bara vera þarna og skiptast á að keyra gula og hvíta,,

eeen Ísland suckar feitt

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 12:18
by Kristjan
Ég er með! Ég verð úti í svíþjóð í Maí og því lítið mál að renna niðureftir.

Þeir sem verða erlendis á þeim tíma, endilega látið mig vita, það væri gaman að skipuleggja eitthvað sameiginlegt.

Þið hinir eyjaskeggjar getið bara haldið áfram að vera þunglyndir hérna heima.

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 12:31
by Alpina
Frá landamærum DK/D við Flensburg eru 650 km á slaufuna


ég fór fræga ferð í sumar með 13L @ 100 á norðurleið en 17+ á suðurleið

average 15 @ tour-retour = 1600+ km 52.000 iskr í bensin enda var gengið ca 140 á evrunni

ath,, hvernig verður gengið eftir 4 mánuði .... þetta er ekkert gefið

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 12:44
by gunnar
Hvað kostar líterinn í segjum bara þýskalandi núna ? svona ca ?

Ég keyrði 15.000 km í Eurotour hjá mér... Heildar eyðsla var svona 9-11L á 100/km

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 13:18
by bimmer
gunnar wrote:Hvað kostar líterinn í segjum bara þýskalandi núna ? svona ca ?

Ég keyrði 15.000 km í Eurotour hjá mér... Heildar eyðsla var svona 9-11L á 100/km


Vpower er núna ca. 1.25 evrur líterinn.


Annars er ég alveg til í að skoða svona hópferð en þetta veltur allt á
því hvernig efnahagsástandið/gengið þróast. Held að við ættum að
líta á síðsumarsferð frekar en snemmsumars - gefa krónudruslunni
tíma til að jafna sig.

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 13:23
by Bjarkih
Ég væri alveg til ef fjárhagur leyfir, en þá þyrfti ég líklega að fá að sníkja far :( Hinsvegar dreyfir það kostnaði farveitanda :) En er sammála því sem komið hefur fram, þetta þarf að skoða eftir versló eða álíka.

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 13:24
by Alpina
gunnar wrote:Hvað kostar líterinn í segjum bara þýskalandi núna ? svona ca ?

Ég keyrði 15.000 km í Eurotour hjá mér... Heildar eyðsla var svona 9-11L á 100/km


Á slaufusvæðinu var í sumar SUPER 1.50-1.70 € @ L
Bensínið er einna ódýrast í Þýskalandi við HAMBURG

t.d. kostaði 95 1.09 á fimmtudaginn inni í Hamburg,,,,, SUPER er ca 6-8 cent dýrari

PostPosted: Sun 30. Nov 2008 13:34
by gdawg
Ég stefni á að fara á hringinn næsta sumar. UK crew-ið gæti jafnvel smalað í hópferð? :D

Ég er líka mikið að spá í að fara á Nürburgring 24h í Maí, alvöru kappakstur þar!!