bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Eitthvað vit í E38? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=33222 |
Page 1 of 2 |
Author: | bragi1 [ Sun 23. Nov 2008 16:16 ] |
Post subject: | Eitthvað vit í E38? |
Eflaust þráður eitthversstaðar til um þetta en whaddahell, let's live large. Ég hef meira eða minna alla mína tíð verið ástfanginn af 7-línu BMW, þá sérstaklega E38. Nú þykist ég vita að eitthver hér inni á, eða hefur átt svona bíl svo ég ætlaði að fiska eftir reynslusögum. Ég geri mér grein fyrir því að þetta eru engar Corollur í rekstri, enda er mér svosem sama þótt ég þurfi að henda nokkrum þúsundköllum í viðhald. En má maður búast við því að keyra bílinn í mánuð og þurfa svo að selja ömmu sína fyrir viðgerðarkostnaði? |
Author: | Tommi Camaro [ Sun 23. Nov 2008 16:17 ] |
Post subject: | Re: Eitthvað vit í E38? |
bragi1 wrote: Eflaust þráður eitthversstaðar til um þetta en whaddahell, let's live large. Ég hef meira eða minna alla mína tíð verið ástfanginn af 7-línu BMW, þá sérstaklega E38. Nú þykist ég vita að eitthver hér inni á, eða hefur átt svona bíl svo ég ætlaði að fiska eftir reynslusögum.
Ég geri mér grein fyrir því að þetta eru engar Corollur í rekstri, enda er mér svosem sama þótt ég þurfi að henda nokkrum þúsundköllum í viðhald. En má maður búast við því að keyra bílinn í mánuð og þurfa svo að selja ömmu sína fyrir viðgerðarkostnaði? getur byrjað að veðsetja hana. en þetta fer bara allt eftir eintakinu sem þú kaupir |
Author: | íbbi_ [ Sun 23. Nov 2008 16:28 ] |
Post subject: | |
E38 er síðasti bíll á jörðini sem ég myndi fá mér ef það skipti máli hversu dýr hann má vera í rekstri, af sona sirka 5 dýrustu bílum rekstrarlega séð sem é ghef nokkurntíman séð.. voru svona 3 af þeim E38 bílar, æðislegir bílar samt, er að spá í að finna svoleðis bíl sjálfur, en þvílíkt og annað eins að reka þetta og elta vesenið í þeim stundum |
Author: | Bjarkih [ Sun 23. Nov 2008 16:28 ] |
Post subject: | |
Skoðaðu þennan þráð, held að þarna séu góðar upplýsingar um rekstrarkostnað líka: http://www.blyfotur.is/viewtopic.php?t=5026 |
Author: | bragi1 [ Sun 23. Nov 2008 16:40 ] |
Post subject: | |
Bjarkih wrote: Skoðaðu þennan þráð, held að þarna séu góðar upplýsingar um rekstrarkostnað líka: http://www.blyfotur.is/viewtopic.php?t=5026
Ekkert smá flottur þráður! Þó ég efist um að ég myndi fá mér V12. |
Author: | íbbi_ [ Sun 23. Nov 2008 16:51 ] |
Post subject: | |
minn var 8cyl, reksturinn var meiri hjá mér en hjá honum sýnist mér, ég hef verið viðriðinn 730 v8 740 v8 735v8 750 v12 og allir hafa þeir verið voða svipaðir, nema v12 bílllinn eyddi meira en hinir, vélar og skiptingar voru lítið að bila, það var alltaf stasnlaust rafmagnspillerí á þeim öllum, og þetta eru ekki einföldustu bílarnir til að laga, |
Author: | bragi1 [ Sun 23. Nov 2008 16:56 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: minn var 8cyl, reksturinn var meiri hjá mér en hjá honum sýnist mér,
ég hef verið viðriðinn 730 v8 740 v8 735v8 750 v12 og allir hafa þeir verið voða svipaðir, nema v12 bílllinn eyddi meira en hinir, vélar og skiptingar voru lítið að bila, það var alltaf stasnlaust rafmagnspillerí á þeim öllum, og þetta eru ekki einföldustu bílarnir til að laga, Þetta var svona nákvæmlega það sem ég var að pæla í. Finnst persónulega mikill munur á hvort það sé rafmagnsdútl ( þó það geti oft verið þreytandi ) eða hvort maður þarf að leita að nýrri vél eða láta taka upp skiptingu. Ertu þá helst að tala um pixlavandamálið og svoleiðis eða var þetta alvarlegra? |
Author: | íbbi_ [ Sun 23. Nov 2008 17:11 ] |
Post subject: | |
pixlavandamálið flokkast ekki undir bilun i.m.o.. bilun jú en ekkert sem er ekki í þeim öllum, þetta eru bara kveljur, þetta er mun flóknari bíll en flestir bílar í framleiðslu í dag, og 15ár síðan þetta kom fyrst, þú getur alltaf átt von á að skipting fari í svona bíl, þeir eru allir mikið keyrðir í dag, og flestir mun meira keyrðir en þeir eiga að vera, 8cyl bílarnir eru mjög gjarnir á að leka olíu, bæði með ventlaloks og tímalokspakningum, sú seinni er BARA mikið vesen og rándýrt að eiga við, stýrisdælu geturu átt von á að þurfa skipta um, þær leka mikið í þessum bílum og þar af leiðandi oft skemmdar, ef það er ekki búið að fara yfir framhjólastellið lendir það líklegast á þér.. þar er slatti, og svo framvegis og framvegis, nú er ég ekki að "lasta" bílnum, þetta eru einhverjir mestu vagnar sem ég hef átt og verið á, en þetta eru gríðarstórir og miklir og flóknir bílar, og oftar en ekki enganvegin fyrir amatör að laga, ég væri gjarnan til í að eiga svona bíl, en mæli samt ekki með rekstrinum, svona þar sem ég veit líka að þú ert ekki sama týpa af bíladellukarli og ég t.d, |
Author: | bragi1 [ Sun 23. Nov 2008 17:16 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: pixlavandamálið flokkast ekki undir bilun i.m.o.. bilun jú en ekkert sem er ekki í þeim öllum,
þetta eru bara kveljur, þetta er mun flóknari bíll en flestir bílar í framleiðslu í dag, og 15ár síðan þetta kom fyrst, þú getur alltaf átt von á að skipting fari í svona bíl, þeir eru allir mikið keyrðir í dag, og flestir mun meira keyrðir en þeir eiga að vera, 8cyl bílarnir eru mjög gjarnir á að leka olíu, bæði með ventlaloks og tímalokspakningum, sú seinni er BARA mikið vesen og rándýrt að eiga við, stýrisdælu geturu átt von á að þurfa skipta um, þær leka mikið í þessum bílum og þar af leiðandi oft skemmdar, ef það er ekki búið að fara yfir framhjólastellið lendir það líklegast á þér.. þar er slatti, og svo framvegis og framvegis, nú er ég ekki að "lasta" bílnum, þetta eru einhverjir mestu vagnar sem ég hef átt og verið á, en þetta eru gríðarstórir og miklir og flóknir bílar, og oftar en ekki enganvegin fyrir amatör að laga, ég væri gjarnan til í að eiga svona bíl, en mæli samt ekki með rekstrinum, svona þar sem ég veit líka að þú ert ekki sama týpa af bíladellukarli og ég t.d, Got that right. Ef ég væri alvöru dellukarl hefði ég líklegast aldrei spurt, bara keypt. |
Author: | íbbi_ [ Sun 23. Nov 2008 17:33 ] |
Post subject: | |
það samt er einn til sölu hérna, nýlega innfluttur 740 sport, árg 2000 eða 2001, hann er reyndar mjög áhugvaerður, stendur allat við hróa í kópavogi á kvöldin, með sölumiða |
Author: | Bandit79 [ Sun 23. Nov 2008 19:26 ] |
Post subject: | |
Þessi linkur fer nú bara bookmarks sko http://www.bimmerboard.com/forums/posts/504260 En E38 7 línan eru æðislegir sleðar en auðvitað með sín vandamál og viðhald.. Íbbi hefur prufað þetta greinilega ![]() |
Author: | íbbi_ [ Sun 23. Nov 2008 20:06 ] |
Post subject: | |
hef átt eitt stk, var með tvo garma lengi vel í láni, nokkrir kunningja átt slíka vagna og ég sá á tímabili um smáviðhald á einum fyrir kunningja, þannig að nei ég hef enga súper reynslu af þeim, en nokkuð haldbæra reynslu af því hvernig þeir hafa reynst mér og þeim sem ég þekki, sweet bílar samt, |
Author: | elli [ Sun 23. Nov 2008 22:04 ] |
Post subject: | |
Það er allt vit í E38, prufaðu bara svona bíl og þá gleymirðu öllum vangaveltum um rekstrarkostnað. Menn meiga ekki alveg gleyma því að það kostar líka að gera við Ojotur. Og þær bila líka þó einhvernveginn í fjandanum sé næstum búið að troða öðru í hausinn á landanum. Þó eins og áður hefur komið fram þá er mikilvægt að velja eintakið vel. Það er mjög líklegt að hægt sé að gera góð kaup í þessum drekum núna. Persónulega tæki ég ekkert annað en V12 bíl, annað er bara málamyndun. Hljóðið, togið, og softnessið í þessum M73 vélum er ótrúlegt + að þeir nota minna benzín en margann grunar ![]() |
Author: | raxions [ Mon 24. Nov 2008 11:56 ] |
Post subject: | |
Sammála þessu. Eina vitið er að fá sér V12.... ![]() |
Author: | Dóri- [ Mon 24. Nov 2008 14:45 ] |
Post subject: | |
Ef að ég ætti að versla mér svona E38 þá myndi ég bara gera það fyrir fjárhag minn að fá mér arfamáttlausan 725d ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |