bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Útflutningur á fólksbílum https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=33173 |
Page 1 of 1 |
Author: | arnibjorn [ Thu 20. Nov 2008 16:51 ] |
Post subject: | Útflutningur á fólksbílum |
Sælir spjallverjar, Vildi bara benda ykkur á þetta, gæti komið einhverjum að notum sem eru að íhuga bílaútflutning ![]() http://www.samskip.is/flutningathjonust ... olksbilar/ Samskip wrote: Útflutningur notaðra fólksbíla frá Íslandi
Allir fólksbílar eru lestaðir í gáma og fluttir þannig til Evrópu. Skip Samskipa (Arnarfell og Helgafell) sigla frá Reykjavík á fimmtudagskvöldum. Hver ferð tekur um tvær vikur. Skipin koma til Immingham á Bretlandi á mánudögum, Rotterdam í Hollandi á þriðjudögum, Cuxhaven í Þýskalandi á miðvikudögum, Varberg í Svíþjóð á fimmtudögum og til Árósa í Danmörku á föstudögum. Móttaka ökutækja, bókun í skip og geymsla í útflutningshöfn Áður en ökutæki er afhent Samskipum til útflutnings þarf sendandi að vera búinn að hafa samband við skrifstofu Samskipa og fá verðtilboð í viðkomandi flutning. Einnig þarf sendandi að bóka ökutækið í skip og afhenda nauðsynleg gögn til að hægt sé að flytja ökutækið. Eins og fyrr segir siglir skip á fimmtudagskvöldi frá Reykjavík. Samskip taka við fólksbílum á föstudögum, mánudögum og þriðjudögum. Sendandi þarf að afhenda eftirfarandi: - Afrit af sölureikningi í þeim tilfellum þegar verið er að selja viðkomandi ökutæki. Sölureikningur þarf að innihalda eftirfarandi upplýsingar; bíltegund og undirgerð, skráningarnúmer, verksmiðjunúmer bifreiðar og árgerð. - Skráningarskírteini bifreiðar. Ef umráðamaður er annar en skráður eigandi þarf sendandi að afhenda skriflegt útflutningsleyfi frá eiganda. - Ef veðbönd hvíla á ökutæki þarf sendandi að afhenda veðbókarvottorð og skriflega yfirlýsingu veðeiganda um að flytja megi viðkomandi ökutæki úr landi. - “Græna kortið” alþjóðlegt tryggingarskírteini. Sendandi þarf að útvega þetta skírteini frá tryggingafélagi sínu. Sendandi er ábyrgur fyrir að afskrá ökutæki hjá Umferðarstofu. Þegar ökutækið hefur verið bókað í skip og nauðsynleg gögn hafa verið afhent fær sendandi upplýsingar um hvar afhenda á ökutæki til lestunar í gám. Ekki er leyfilegt að afhenda ökutæki til flutnings og hafa einhverskonar farm í ökutækinu, svo sem búslóð, föt, verkfæri o.fl. Ef gera á slíkt þarf allt sem í bílnum er að koma fram á farmbréfi og tollast sérstaklega. Slíkt er ávallt á ábyrgð sendanda. Ekki er mögulegt fyrir sendanda að ferðast með skipunum til áfangastaða. Tollafgreiðsla Samskip (Jónar Transport) annast útflutningsskjalagerð fyrir sendanda. Einnig er mögulegt að fá útgefið EUR-1 skírteini í þeim tilfellum sem þess er þörf. Sendandi er ábyrgur fyrir að afhenda öll gögn sem til þarf til þess að hægt sé að tollafgreiða. Bifreið er ekki flutt úr landi fyrr en útflutningsheimild er veitt frá tolli. Lestun, sjóbúnaður og tryggingar Samskip geta flutt allar þær fólksbifreiðar sem hægt er að lesta í gáma. Bifreið er ekið inn í gáminn, tvær bifreiðar í 40 feta gám. Bifreiðarnar eru beislaðir niður með sérstökum bílaströppum og því næst er gámurinn hífður um borð. Í flutningsgjöldunum er ekki innifalin trygging sem ábyrgist tjón í flutningi. Sendandi þarf sjálfur að kaupa tryggingu fyrir flutninginn. Þjónustudeild Samskipa getur aðstoðað við kaup á tryggingum. Uppskipun og afgreiðsla í erlendri höfn Erlendar skrifstofur Samskipa munu sjá um tollafgreiðslu bifreiða í erlendri höfn. Að tollafgreiðslu lokinni er bifreiðin tilbúin til afhendingar. Bifreið er geymd í vöruhúsi eða á plani þar til móttakandi sækir bifreiðina. Ef móttakandi sækir ekki bifreið á tilsettum tíma munu falla geymslugjöld á viðkomandi bifreið. Greiðslufyrirkomulag Greiða þarf fyrir flutning við afhendingu bifreiðar til Samskipa. -------------------------------------------------------------------------------- |
Author: | JonHrafn [ Fri 21. Nov 2008 20:43 ] |
Post subject: | |
Loksins komnar tölur um hvað ríkið er tilbúið að endurgreiða af vsk og tolli. http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/21/5000_bilar_ur_landi/ Besta mál að mínu mati í ljósi gjaldeyristekna og ekki er nú beint vöntun á notuðum bílum á klakanum. |
Author: | arnibjorn [ Mon 22. Dec 2008 09:47 ] |
Post subject: | |
http://www.tollur.is/displayer.asp?cat_id=2502 Þetta getur kannski hjálpað einhverjum ![]() |
Author: | zazou [ Tue 23. Dec 2008 11:22 ] |
Post subject: | |
Til gamans má geta að til að fá töluna sem yrði endurgreidd þarf að fylla út form E-31 og senda Mr Tollz. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |