bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW XDrive VS Audi Quattro https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=32730 |
Page 1 of 2 |
Author: | Einsii [ Wed 29. Oct 2008 15:43 ] |
Post subject: | BMW XDrive VS Audi Quattro |
http://video.google.com/videoplay?docid=9072883197544018466&hl=is Kemur mér reyndar mikið á óvart. Sniðugt test annars ![]() |
Author: | Bjarkih [ Wed 29. Oct 2008 16:50 ] |
Post subject: | |
Kom mér sko ekkert á óvart ![]() |
Author: | MR.BOOM [ Wed 29. Oct 2008 17:54 ] |
Post subject: | |
En þar sem hlutirnir skifta máli, þá er önnur saga. http://video.google.com/videoplay?docid=9171485126892796503&hl=is |
Author: | bebecar [ Wed 29. Oct 2008 18:40 ] |
Post subject: | |
Mér finnst þetta reyndar eitthvað fishy... það er ekki að ástæðulausu að Audi Quattro er goðsögn í rallýi t.d. |
Author: | íbbi_ [ Wed 29. Oct 2008 19:35 ] |
Post subject: | |
ég hef veripð töluvert á nýja X5 og Q7, fannst lítil nýja X5 koma þangað til ég fór að venjast honum, tæki samt ml550 frekar, Q7 fannst mér slakastur af þessum merkjavöru tísku jeppum |
Author: | gdawg [ Wed 29. Oct 2008 20:03 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Mér finnst þetta reyndar eitthvað fishy... það er ekki að ástæðulausu að Audi Quattro er goðsögn í rallýi t.d.
ástæðan fyrir því að Audi Quattro er goðsögn er að þeir voru fyrstir, ekki endilega að kerfið sjálft væri framúrskarandi. |
Author: | Lindemann [ Wed 29. Oct 2008 20:34 ] |
Post subject: | |
gdawg wrote: bebecar wrote: Mér finnst þetta reyndar eitthvað fishy... það er ekki að ástæðulausu að Audi Quattro er goðsögn í rallýi t.d. ástæðan fyrir því að Audi Quattro er goðsögn er að þeir voru fyrstir, ekki endilega að kerfið sjálft væri framúrskarandi. og ef það er eins lélegt og fyrsta videoið sýnir......þá hefur það ekki þróast neitt síðan það kom ![]() mér finnst þetta samt skrýtið. |
Author: | Dóri- [ Thu 30. Oct 2008 00:48 ] |
Post subject: | |
Er á audi quattro núna og verð að segja að þetta er bara hrein snilld, er eiginlega farinn að spá núna hvað maður hefur verið að gera á rwd á veturnar ![]() |
Author: | bebecar [ Thu 30. Oct 2008 07:39 ] |
Post subject: | |
gdawg wrote: bebecar wrote: Mér finnst þetta reyndar eitthvað fishy... það er ekki að ástæðulausu að Audi Quattro er goðsögn í rallýi t.d. ástæðan fyrir því að Audi Quattro er goðsögn er að þeir voru fyrstir, ekki endilega að kerfið sjálft væri framúrskarandi. Ég átti nú bara við að þeir hefðu nú varla unnið heimsmeistaratitil ef kerfið hefði ekki virkað eins og myndin þarna á rúllunum ber með sér. |
Author: | Einsii [ Thu 30. Oct 2008 07:41 ] |
Post subject: | |
Ég kynti mér þetta reyndar og þetta test er bara gert þannig að Quattro kerfið myndi klikka. Læsingin í Audi þarf smá átak frá lausu hjólunum svo hún færi aflið, Það eru ekki miklar líkur á að neinn quattro eigandi lendi í þessu í real life, það er að hafa 0 grip á báðum afturhjólum. Svo hefði dugað honum að þrýsta aðeins á bremsuna, það hefði myndað viðnám og þessi "Toursen" læsing hefði kikkað inn. En með hitt videoið, þá eru elstu gerðir af 3 Xi bíl þarna og X5 sem voru ekki komnir með þessa sjálfvirku kúplingu á fjórhjólakerfið. Þannig að þeir voru að bera saman eldri X-drive á móti nýrri Audi (Ekki það að það skipti máli hvað Audi er gamall, þetta hefur svo lítið breyst fyrren bara núna í fyrra held ég ![]() Allavega bæði testin voru unfair, en eftir að hafa átt X bíl þá hef ég alveg ástæðu til að taka mark á BMW þegar þeir seigjast hafa þróaðasta og besta All wheel drive kerfi sem er í boði í dag. Vetrar akstur er ekki líkur á non X bíl og svo þessum, og að drifta í snjónum er svo einfalt að konan leikur sér að því ![]() |
Author: | Hannsi [ Thu 30. Oct 2008 07:57 ] |
Post subject: | |
Besti AWD bíll sem ég hef keyrt var slammaður E30 IX Touring ![]() |
Author: | bebecar [ Thu 30. Oct 2008 08:24 ] |
Post subject: | |
Mér finnst svona fullyrðingar alltaf afar hæpnar. Ég hef líklega sjálfur bestu reynsluna af Subaru 4WD. Rakst reyndar á nokkur test sem eru skemmtileg að horfa á, álíka vitlaust og hitt, en með mismunandi niðurstöðum. http://uk.youtube.com/watch?v=Q7dVFY5CxT0 http://uk.youtube.com/watch?v=99xIVo43bbo&feature=related |
Author: | HAMAR [ Thu 30. Oct 2008 09:07 ] |
Post subject: | |
Það kom mér nú svolítið á óvart hversu slakur Lexus jeppinn var þarna í myndbandi nr.2 ![]() En kannski eru Toyotur bara ekki öflugri en þetta. Hefði verið gaman líka að sjá M.B. E500 4matic í þessu testi. |
Author: | Steini B [ Thu 30. Oct 2008 09:36 ] |
Post subject: | |
HAMAR wrote: Það kom mér nú svolítið á óvart hversu slakur Lexus jeppinn var þarna í myndbandi nr.2
![]() En kannski eru Toyotur bara ekki öflugri en þetta. Hefði verið gaman líka að sjá M.B. E500 4matic í þessu testi. Hver þorir að taka taxa þarna upp? ![]() En annars þá er þetta Quattro kerfi algjör snilld... Hefði alveg verið til í að eiga Audi inn yfir veturinn ![]() |
Author: | bebecar [ Thu 30. Oct 2008 09:44 ] |
Post subject: | |
Það er líka alveg rétt sem Gunni segir að það er hægt að koma þessum kerfum í gang, t.d. með að stíga létt á bremsuna. Þetta stendur meira að segja í handbókunum sumum. Það er pottþétt ekki verið að prófa þessa bíla og ná því úr þeim sem hægt er. En allavega, ég held að menn eigi að fara varlega í fullyrðingar um besta drifið. Eflaust fer það algjörlega eftir aðstæðunum. Það er t.d. alveg ljóst að 330XD er ekki hannaður fyrir alveg sama umhverfi og Outback. Tek undir að það væri gaman að sjá Benz þarna, hef ekki séð neitt myndband með Benz ennþá. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |