Page 1 of 3

Óháðar bílasölur sem selja bíla út?

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 14:41
by zazou
Eru einhverjar bílasölur að sérhæfa sig í því að koma bílum úr landi? Ég sá Heklu síðuna í gær en það eru væntanlega einungis þeirra eigin bílar.

Nú væri lag fyrir framsýna bílasala að komast inn á þennan niche markað (alveg eins og atvinnumiðlanirnar mættu að fara að ranka við sér með hið sama). Það hlýtur að verða sprenging ef draugarnir í Alþingishúsinu drattast til að klára lög & reglugerð um endurgreiðslu á svívirðilegum aðflutningsgjöldum.

Ég væri alveg til í að fara að losna við X5, gúndarnir í fjármögnunarfyrirtækjunum virðast líta á það sem hluta af sinni starfslýsingu að skemma sölur :evil:

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 14:49
by birkire
http://live2cruize.com/spjall/showthread.php?t=77320

Hérna er eitthvað minnst á að diesel.is ætli að taka þetta að sér

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 14:51
by Svezel
http://www.netbilar.is/

Sá auglýsingu frá þeim í Fréttablaðinu í gær þar sem þeir voru að auglýsa bíla til útflutnings

Re: Óháðar bílasölur sem selja bíla út?

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 15:13
by íbbi_
zazou wrote:Eru einhverjar bílasölur að sérhæfa sig í því að koma bílum úr landi? Ég sá Heklu síðuna í gær en það eru væntanlega einungis þeirra eigin bílar.

Nú væri lag fyrir framsýna bílasala að komast inn á þennan niche markað (alveg eins og atvinnumiðlanirnar mættu að fara að ranka við sér með hið sama). Það hlýtur að verða sprenging ef draugarnir í Alþingishúsinu drattast til að klára lög & reglugerð um endurgreiðslu á svívirðilegum aðflutningsgjöldum.

Ég væri alveg til í að fara að losna við X5, gúndarnir í fjármögnunarfyrirtækjunum virðast líta á það sem hluta af sinni starfslýsingu að skemma sölur :evil:


einmitt!, ég ætti ekkert af þessu drasli nema camaroinn ef það væri ekki fyrir þetta

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 15:19
by Aron M5
það er allveg orðið þreytt hvað þessi lánafyrirtæki eru buinn að skemma fyrir manni margar sölur

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 15:56
by Stanky
aron m5 wrote:það er allveg orðið þreytt hvað þessi lánafyrirtæki eru buinn að skemma fyrir manni margar sölur


Hvað eigiði við að skemma sölur?

(Ég er ekki að dissa þetta - er bara forvitinn)

Kveðja,
haukur

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 16:08
by Svezel
Væntanlega þegar lánafyrirtækin vilja fá borgað inn á lánið við nafnabreytingu

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 17:24
by íbbi_
það hljómar kannski eins og vitleysa og skrípaleikur í eyrum einhverja, en þeir hinir sömu meiga bara halda sinni skoðun í friði,

í mínu tilfelli t.d var ég með tvo bíla sem ég keypti á sama tíma, annar bíllinn var seldur(að nafniun til) þegar ég fæ hann, ég yfirtek lán á bílnum og sæki nokkrum dögum seinna um yfirtöku á láninu, þá er mér tilkynnt að nú sé búið að breyta lánsreglunum, og þurfi að aðlaga lánið að nýjum reglum, og borga fleyri hundruð þúsund inn á lánið, ég kem með athugasemd um að mér finnist skrítið að reglur á undirrituðum samningi breytist eftir á, svörin sem ég fékk voru þau að sdvona væri þetta bara, harðir tímar, það skal tekið fram að umræddur bíll var ekki yfirveðsettur, heldur voru nýju reglunar að þeir lánuðu aðeins 60% af verði bílsins núna,

þessu lenti ég svo aftur í með annan bíl, og ennþá hærri upphæð. með annan bílin fór ég að skitpa og skipta og reyna vinna mig niður, og borga jú helling inn á sum lánin, vitandi að þessir peningar myndu bara hverfa að vísu,

annan bílin á ég ennþá, og borga af honum núna í dag 80þús á mánuði (var 42) og hinn bíllinn er í raunini ennþá til staðar, í formi annars tæki, og er afborgunin af því búinn að hækka um 30þús á mánuði, hlutir sem ég væri margbúinn að selja, svo á ég annan bíl, sem ég á mikið í sjálfur en get ekki selt vegna þeirra einföldu ástæðu að það fær engin yfirtökur lengur í dag, kreppan hjá flestum sem voru í "bílageiranum" hvort sem það var sala eða annað byrjaði í febrúar, ég fékk mikin skell þá og mátti þakka fyrir að fara ekki niður eða missa bíla, ég vann mig útúr því og borgaði helmingin niður af þessu dóti.. sem er upphæð sem telur á milljónum, en sit ennþá með hlutina marg búinn að finna kaupanda og reyna yfirtöku og önnur viðskipti, en allt saman stoppað og krafist innnborgunar uppá óeðlilegar upphæðir, sem annahvort krefst þess að kaupandi reiði fram upphæðina, eða ég sjálfur og gefi nánast frá mér bílin í leiðini,

svo eru menn að hlægja af því að maður sé að spá í að fara bara með lyklana til heimahúsana..

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 18:48
by BMWRLZ
Fyrir mér er starfsstéttin "bílabraskarar" eitthvað sem ætti í rauninni ekkert að vera til, nema þá kannski helst að menn með tjóna og bilaða bíla. Að fleiri tugir manna ef ekki nokkur hundruð geti keypt bíla, mokað alveg ótrúlega háum lánum á þá með því að ljúga til um verðmæti bíls í afsali er bara ekki eðlilegt. Mér finnst nú bara magnað að þetta hafi viðgengist í svo langan tíma og auðvitað þurfa þeir að súpa seiðið af því þeir sem urðu gráðugir.

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 19:12
by Eggert
Mjög sammála seinasta ræðumanni.

En svo skil ég bara ekki afhverju ríkið ætti að vera að borga VSK til baka af bílum við útflutning. Það er nóg sem þarf að spenda í næstu mánuði og ár heldur en að vera að bjarga þeim sem tóku meiri áhættu en aðrir. Það ætti að fást fjandskoti nóg fyrir þessa bíla í €... (sem inniheldur andskoti margar krónur útí evrópu um þessar mundir)

Hvað fyndist ykkur um að ef menn væru actually að græða pening á því að flytja út bíla, afþví að ríkið borgar VSK til baka. Það væri í mínum augum svona eins og að verðlauna vitlausan aðila tvisvar.

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 19:15
by Bjarkih
Eggert wrote:Mjög sammála seinasta ræðumanni.

En svo skil ég bara ekki afhverju ríkið ætti að vera að borga VSK til baka af bílum við útflutning. Það er nóg sem þarf að spenda í næstu mánuði og ár heldur en að vera að bjarga þeim sem tóku meiri áhættu en aðrir. Það ætti að fást fjandskoti nóg fyrir þessa bíla í €... (sem inniheldur andskoti margar krónur útí evrópu um þessar mundir)

Hvað fyndist ykkur um að ef menn væru actually að græða pening á því að flytja út bíla, afþví að ríkið borgar VSK til baka. Það væri í mínum augum svona eins og að verðlauna vitlausan aðila tvisvar.


Rökin eru að þá fæst fýrmætur gjaldeyrir inn í landið í staðinn fyrir að hann sitji í einhverjum bíl engum til gagns.

Svo eru mismunandi skoðanir á því hversu réttlætanlegt þetta er.

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 19:19
by íbbi_
eiga þá ekki allir menn sem eiga fyritæki að fara á hausinn af því að lagerinn var borgaður með lánum? og allar bílasölur líka..

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 19:26
by BMWRLZ
íbbi_ wrote:eiga þá ekki allir menn sem eiga fyritæki að fara á hausinn af því að lagerinn var borgaður með lánum? og allar bílasölur líka..


Þurfa þau ekki að standa straum af sínum kostnaði og afborgunum eins og við hin?

Svo eru fyrirtæki hérna innanlands ekki að braska sín á milli með því að kaupa mjólurkex og selja hinum á hærra verði og jafnvel skuldsett.

Held að við séum kominn aðeins of langt út fyrir efnið með því að blanda fyrirtækjum inn í þetta því braskgeirinn er svo sannarlega ekki bygður upp eins og hugsaður eins og fyrirtæki.

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 19:33
by Lindemann
mig minnir að ég hafi séð sameiginlega auglýsingu frá Smára í hamburg og Georg úranus um að þeir tækju að sér að flytja út bíla........man ekki hvar það var.

Re: Óháðar bílasölur sem selja bíla út?

PostPosted: Tue 28. Oct 2008 19:36
by Alpina
zazou wrote:Eru einhverjar bílasölur að sérhæfa sig í því að koma bílum úr landi? Ég sá Heklu síðuna í gær en það eru væntanlega einungis þeirra eigin bílar.

Nú væri lag fyrir framsýna bílasala að komast inn á þennan niche markað (alveg eins og atvinnumiðlanirnar mættu að fara að ranka við sér með hið sama). Það hlýtur að verða sprenging ef draugarnir í Alþingishúsinu drattast til að klára lög & reglugerð um endurgreiðslu á svívirðilegum aðflutningsgjöldum.

Ég væri alveg til í að fara að losna við X5, gúndarnir í fjármögnunarfyrirtækjunum virðast líta á það sem hluta af sinni starfslýsingu að skemma sölur :evil:


Hvað er áhvilandi á þínum bíl og hvað er markaðsvirði ?