bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Skrítið mál https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=32624 |
Page 1 of 1 |
Author: | Kristjan [ Fri 24. Oct 2008 00:37 ] |
Post subject: | Skrítið mál |
Ég keypti varahlut fyrir 2 árum eða svo sem ég ætlaði að nota í Cabrio, hluturinn reyndist óþarfur og ég sótti hann aldrei til seljandans, svo gleymdi ég að ég ætti hann. ![]() Fyrir nokkrum vikum mundi ég eftir varahlutnum og ætlaði að selja hann aftur. Margir höfðu áhuga á honum og ég fann kaupanda. Sá kaupandi gaf mér svo útskýringu að hann gæti ekki notað hann útaf því að það var eitthvað við hann sem ég skildi hreinlega ekki. Ég ákvað því að reyna að losna bara við hann fyrir lítið. Bara kippu af bjór eða eitthvað svo ég losnaði bara endanlega við hann. Nýr kaupandi fannst sem vildi ólmur borga fullt verð fyrir hann. Núna kemur í ljós að þessi hlutur er stórgallaður og enginn getur notað hann. Hvað ætti ég að gera í þessu, láta þetta dautt liggja og hætta að hugsa um þetta eða fara og tala við upprunalega seljandan sem sagði mér á sínum tíma að þessi hlutur væri í lagi? |
Author: | Aron Andrew [ Fri 24. Oct 2008 00:44 ] |
Post subject: | |
Hlutur sem er rétt rúmlega 1k virði (kippa af bjór) er nú varla ástæða til að standa í miklu veseni er það? Hvað er þetta? |
Author: | Kristjan [ Fri 24. Oct 2008 01:06 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Hlutur sem er rétt rúmlega 1k virði (kippa af bjór) er nú varla ástæða til að standa í miklu veseni er það?
Hvað er þetta? Upprunalega keypti ég hann á 15k En svo var þetta bara orðið svo mikið vesen að ég ætlaði bara að láta hann á slikk. Það var nota bene áður en ég vissi að hann væri ónothæfur. |
Author: | gardara [ Fri 24. Oct 2008 01:09 ] |
Post subject: | |
Ekki eru þetta mottur sem eru ónothæfar því búið er að keyra yfir þær? |
Author: | Kristjan [ Fri 24. Oct 2008 01:18 ] |
Post subject: | |
gardara wrote: Ekki eru þetta mottur sem eru ónothæfar því búið er að keyra yfir þær?
hahaha nei, ég vil ekki gefa upp hvaða hlutur þetta er, því ég ætla ekki að gera neitt vesen útaf þessu. Fannst þetta bara svekkjandi og ég á ekki eftir að stunda viðskipti við þennan mann aftur. |
Author: | arnibjorn [ Fri 24. Oct 2008 08:46 ] |
Post subject: | |
Gíííírkassi... Hvað var svona mikið að kassanum? |
Author: | Kristjan [ Fri 24. Oct 2008 11:00 ] |
Post subject: | |
arnibjorn wrote: Gíííírkassi...
Hvað var svona mikið að kassanum? Engar fóðringar, bara eitthvað skítmixað bracket. |
Author: | 20"Tommi [ Fri 24. Oct 2008 13:03 ] |
Post subject: | |
Fyrir 2 árum keypt !!! ? eee sæll !!! gleymdu þessu !!! |
Author: | Hannsi [ Fri 24. Oct 2008 14:05 ] |
Post subject: | |
hmmmm ef fóðringar eru það eina sem er að er hluturinn nú ekki ónothæfur. Annars ef þú vildir ekki losa þig við þetta á meira en skít og kanil mundi ég bara sleppa þessu. En sleppa því að stunda viðskifti við einstaklinginn. |
Author: | Mazi! [ Fri 24. Oct 2008 15:44 ] |
Post subject: | |
Hannsi wrote: hmmmm ef fóðringar eru það eina sem er að er hluturinn nú ekki ónothæfur.
Annars ef þú vildir ekki losa þig við þetta á meira en skít og kanil mundi ég bara sleppa þessu. En sleppa því að stunda viðskifti við einstaklinginn. þetta eru ekki fóðringarnar, heldur dótið sem skipti stöngin fer í á kassanum hefur brotnað af og verið soðið eitthvað drasl í staðinn, virkar svona semi, en samt sem áður hefur þetta þau áhrif að það er skelifilegt að skipta um gíra með stöngina svoa lausa til og frá, ekki séns að ég setji þetta svona í minn bíl ![]() |
Author: | Einarsss [ Fri 24. Oct 2008 15:46 ] |
Post subject: | |
Mazi! wrote: Hannsi wrote: hmmmm ef fóðringar eru það eina sem er að er hluturinn nú ekki ónothæfur. Annars ef þú vildir ekki losa þig við þetta á meira en skít og kanil mundi ég bara sleppa þessu. En sleppa því að stunda viðskifti við einstaklinginn. þetta eru ekki fóðringarnar, heldur dóti sem skipti stöngi fer í á kassanum hefur brotnað af og verið soðið eitthvað drasl í staðinn, virkar svona semi en samt sem áður hefur þetta þau áhrif að það er skelifilegt að skipta um gíra með stöngina svoa lausa til og frá, ekki séns að ég setji þetta svona í minn bíl ![]() já þetta var algjört skítamix... langaði ekki beint að setja þennan kassa á mótor sem er 350hö+ þegar ég ætlaði að kaupa hann. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |