Ég keypti varahlut fyrir 2 árum eða svo sem ég ætlaði að nota í Cabrio, hluturinn reyndist óþarfur og ég sótti hann aldrei til seljandans, svo gleymdi ég að ég ætti hann.

Kjánalegt ég veit.
Fyrir nokkrum vikum mundi ég eftir varahlutnum og ætlaði að selja hann aftur.
Margir höfðu áhuga á honum og ég fann kaupanda.
Sá kaupandi gaf mér svo útskýringu að hann gæti ekki notað hann útaf því að það var eitthvað við hann sem ég skildi hreinlega ekki.
Ég ákvað því að reyna að losna bara við hann fyrir lítið. Bara kippu af bjór eða eitthvað svo ég losnaði bara endanlega við hann.
Nýr kaupandi fannst sem vildi ólmur borga fullt verð fyrir hann.
Núna kemur í ljós að þessi hlutur er stórgallaður og enginn getur notað hann.
Hvað ætti ég að gera í þessu, láta þetta dautt liggja og hætta að hugsa um þetta eða fara og tala við upprunalega seljandan sem sagði mér á sínum tíma að þessi hlutur væri í lagi?